Föstudagspóstur 2. og 3. bekkur
15. - 22. nóvember
Kæru foreldrar og forráðarmenn
Vikan hefur gengið afar vel hjá okkur. Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag hafa verið þemadagar hjá okkur. Að þessu sinni var þemað afmæli Naustaskóla, sem er 10 ára um þessar mundir.
Nemendur unnu á sex stöðvum en innan hverrar stöðvar voru síðan margvísleg verkefni. Stöðvarnar voru; handverksstöð, útistöð, jákvæðs aga stöð, heimilisfræði stöð, íslensku stöð og þrautastöð. Gaman var fylgjast með nemendum og mjög ánægjulegt að sjá hvað eldri nemendur voru tilbúnir að aðstoða þá yngri.
Næsta vika verður með hefðbundnu sniði, nema á föstudaginn verður afmælishátíð Naustaskóla. Það verður ekki hefðbundin kennsla og því ekki íþróttir. Við förum í skrúðgöngu um hverfið, fáum köku, pizzu í hádeginu og ýmislegt annað spennandi verður í boði
Gaman væri að sjá nemendur klæða sig aðeins upp í tilefni dagsins, en það er að sjálfsögðu ekki skylda. Einnig þurfa nemendur að hafa með sér viðeigandi útifatnað.
Á döfunni
Mánudagur: Íþróttir
Þriðjudagur: Sund hjá 3. bekk.
Miðvikudagur: Sund hjá 2. bekk.
Föstudagur: Afmælishátíð skólans.
Góða helgi
2. og 3. bekkjar teymið
Email: silviab@akmennt.is
Website: www.naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 4644106