Stiklur
Stutt í dag en sumarið kemur á fimmtudaginn...er það ekki...
Það var...
...gott að byrja ekki of bratt og fá þriggja daga kennsluviku. Næstu tvær vikur verða síðan einnig skertar, á fimmtudaginn fögnum við sumarkomu og síðan á föstudeginum í þar næstu viku er 1. maí. Skipulag þessara tveggja næstu vikna verður að öllum líkindum með sama hætti og þessi. Síðan kemur 4. maí...hvað gerist þá er enn óljóst að nokkru leiti þó svo búið sé að gefa það út að skólahlad í grunn- og leikskólum verði með eðlilegum hætti. Strax eftir helgi eigum við von á nánari útlistun hvað þetta varðar...
Starfsmannaviðtöl
Skipulag skólastarfs næsta vetrar er hafið... því miður hafa starfsmannaviðtölin að mestu legið niðri s.l. mánuð en nú er ég byrjaður aftur að kippa fólki til mín...einnig er möguleiki á fjarviðtali ef einhver vill... endilega hafið samband ef þið eruð orðin óþolinmóð... :)
Laus störf
Fyrir páska fór í loftið auglýsing um laus kennarastörf við skólann. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 20. apríl.