Stiklur
...og það er kominn nóvember...næstum því jól...
Þriðjudaginn 12.
Hve margar
Falin
Hvaða dýr
Fjarverur
14. nóvember fundur á Reyðarfirði um persónuverndarmál
21. nóvember skólastjórafundur á Stöddanum
28. nóvember - 3. desember, ráðstefna í Luxemborg um "Makerspace" #Erasmus
5. desember fundur á Reyðarfirði með deildarstjórum sérkennslu og aðstoðarskólastjórum um skólaforðun
Einkunnarorðin
Viska - Virðing -Vinátta
Eins og kom fram í umræðunum þá eiga einkunnarorðin að endurspegla skólabraginn okkar, þá er gott að hafa texta á bakvið orðin, ekki láta þau standa ein og sér.
Viska
Með námi sínu öðlast nemendur visku sem nýtist þeim til framtíðar Í orðinu felst; vitsmunir, þekking, vísdómur og speki.
Virðing
Í skólanum er lögð áhersla á að allir séu metnir að verðleikum og fái viðurkenningu á vinnu sinni og því sem þeir leggja sig fram við. Í skólanum er komið fram við alla af virðingu, kurteisi og réttlæti. Lögð er áhersla á að allir geti verið öruggir um að verða ekki fyrir ofbeldi eða áreitni og unnið sé með það ef slíkt kemur upp.
Vinátta
Í skólanum er lögð áhersla á og unnið með vináttu og umhyggju. Lögð er áhersla á kurteisi í samskiptum, að allir séu hlýlegir og leggi sig fram við að aðstoða hvern annan. Það hafa allir þörf fyrir vináttu og umhyggja og sömuleiðis hafa allir þörf fyrir að sýna vináttu og umhyggju.
Karlmennskan og Fávitar
Þriðjudaginn 26. nóvember verður fræðsla fyrir unglingana okkar
Á mánudagskvöldinu 25. nóvember verður svo fræðsla fyrir foreldra í sal Nesskóla.
Sprotasjóður - áherslur fyrir næsta umsóknartímabil
Við höfum á undanförnum árum fengið styrki í verkefni...má þar nefna "Lærdómssamfélag á unglingastigi" og "Verði ljós"...er ekki um að gera að prófa aftur...
Áherslur Sprotasjóðs fyrir næsta umsóknartímabil eru á heimsmarkmið sameinuðu þjónðanna og þá sér í lagi eftirfarandi markmið:
- Heilsa og vellíða
- Menntun fyrir alla
- Sjálfbærar borgir og samfélög
- Ábyrg neysla og framleiðsla
- Aðgerðir í loftslagsmálum
Nú er enn nokkur tími þar til opnað verður fyrir umsóknir (sennilega í janúar) - en um að gera að byrja að leyfa hugmyndum að gerjast í kollinum :)
Þættir sem mikilvægt er að hafa í huga við þróun verkefnis - umsóknaskrif:
- Virkniþáttur nemenda - mikilvægt er að nemendur séu virkir þátttakendur í verkefninu
- Samstarf eykur líkur á styrkveitingu: Samstarf milli skóla, milli skólastiga, milli skóla og annarra stofnana - slík verkefni njóta alla jafna forgangs
- Svo eru það auðvitað þessir hefðbundnu þættir sem miklu skipta eins og að vanda til við umsókn, hafa skýran fjárhags- og tímaramma og slíkt.
Til dæmis hægt að hafa samstarf við annaðhvort leikskólann eða Verkmenntaskólann... :)
Kynning á fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar og áherslum til þriggja ára
Fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar verður dreift í hvert hús í Fjarðabyggð, kynningarfundir verða á Eski- og Fáskrúðsfirði, Þóroddur kemur með kynningu í skólana, þýtt á ensku og pólsku.