Föstudagspóstur
6. og 7. bekkur
Kæru foreldrar,
Þessa vikuna byrjuðum við í 6. og 7. bekk að undirbúa árshátíðina okkar sem verður 2. apríl næstkomandi. Bekkirnir sýna á tveimur sýningum hvor. Verður því mikið um uppbrot á hefðbundinni stundaskrá vegna árshátíðaræfinga.
Við erum að verða búin að leggja Evrópu undir okkur og stefnum við á að kynna verkefnin okkar í lok mánaðarins og taka eina lauflétta könnun úr efninu.
Útivistardagur
Áætlaður útivistardagur í Hlíðarfjalli er þriðjudagurinn 17. mars. Nánari upplýsingar eru í fréttabréfi Naustaskóla.
Upplestrarkeppnin
Ragnar Orri Jónsson og Sólon Sverrisson tóku þátt í Stóru upplestrarkeppninni síðastliðinn miðvikudag. Þeir stóðu sig báðir frábærlega en Sólon tók þetta alla leið og lenti í 1. sæti! Innilega til hamingju með þennan árangur Sólon!
Við erum gríðarlega stolt af okkar mönnum.
Sköpun bernskunnar
Nemendur okkar í 6. og 7. bekk eru með verk á sýningunni "Sköpun bernskunnar" sem mun opna í Listasafninu á morgun. Hvetjum alla til að fara og eiga notalega stund saman.
Upplýsingar
- Mette og Jeppe kennaranemarnir eru að tengjast krökkunum vel og eru nemendurnir almennt ánægðir með kennsluna frá þeim.
- Sund fellur niður á mánudaginn, en sundlaugin verður lokuð vegna verkfalls starfsmanna sundlaugarinnar. Sundkennararnir okkar verða með börnunum hér í skólanum og gera eitthvað skemmtilegt með nemendum í salnum.
- Borið hefur á því að nemendur okkar sýni hvorki kurteisi né virðingu gagnvart öðru starfsfólki skólans. Þetta á sérstaklega við í matsal og forstofu. Óskum við eftir því að foreldrar ræði börnin sín um mikilvægi þess að koma vel fram við aðra.
Eigið góða helgi,
Arna Ýr, Áki, Gunnar, Harpa, Heiða, Herdís, Inga, Jason, Jeppe, Kata, Kolla, Mette og Paula.