Nesskólafréttir
Fréttabréf vegna skólastarfs næstu daga...
Í byrjun er rétt að minna á
...að enn er bara 22. apríl.... 4. maí er eftir 12 daga...
#hlýðumVíði
#öllerumviðALMAnnavarnir
#éggengumgólffyrirÞórólf
4. maí - Hvað þá
Í gær kom loksins auglýsing Heilbrigðisráðuneytis um takmörkun á samkomum vegna farsóttar eftir 4. maí.
Á vef Stjórnaráðs Íslands er að finna eftirfarandi síðu: Spurt og svarað: skólastarf á neyðarstigi almannavarna, þar er að finna svör við mörgum góðum spurningum.
Í stuttu máli sagt þá verður skólastarf aftur eðlilegt eins og var fyrir samkomubann...hvað nemendur varðar.
Þetta þýðir m.a.
að-
- Engar takmarkanir verði settar á fjölda nemenda
- Skemmtanir t.d. vorhátíðir, vorferðir og útskriftir geta farið fram en án fullorðinna gesta utan skóla s.s. foreldra
- Íþróttir inni (og úti) eru í lagi.
- Allir nemendur geta mætt samtímis í skólann, farið í útiveru og verið í mötuneyti.
- Hópmyndatökur verða hjá 1. - 4. - 7. - 10. bekk
Er þá bara allt leyfilegt?
Nei því miður er svo ekki... við fullorðna fólkið verðum áfram að passa okkur. Þetta þýðir m.a.
að-
- Árshátíðum yngsta og miðstigs, sem frestað var, verður aflýst
- Hefðbundin skólaslit 1. - 9. bekkjar verða óhefðbundin...nánar síðar
- Hefðbundin útskrift tíundu bekkinga getur því miður ekki orðið hefðbundin, en við finnum vonandi ásættanlega lausn
- Heimsóknum utanaðkomandi aðila, þar á meða foreldra, verður haldið í lágmarki.
Allt á hreinu...eða...
Ef eitthvað er óljóst kæru forsjáraðilar þá endilega sendið línu á okkur stjórnendur.
Vinasel
Frá 4. maí verður starfsemi Vinasels með sama hætti og fyrir samkomubann. Þeir foreldrar sem hyggja á breytingar varðandi vistun í maí, þ.e. frá því sem var fyrir samkomubann, eru beðnir um að koma skilaboðum til okkar sem fyrst.
Covid.is - Polski, English, Thailand, Arabic
Nesskóli
Email: nes@skolar.fjardabyggd.is
Website: www.nesskoli.is
Location: Skólavegur, Neskaupstadur, Iceland
Phone: 4771124
Facebook: https://www.facebook.com/Nessk%C3%B3li-1629687307303414/
Í lokin... (áður birt en góð vísa er aldrei of oft kveðin)
...langar mig að ítreka þakkir okkar til foreldra og annarra forsjáraðila - þið eigið þakkir skildar fyrir tillitssemina og skilningin sem þið sýnið í þessu ástandi. Við í skólanum vitum vel að það reynir aukalega á ykkur og börnin rétt eins og starfsfólk skólans þegar þjónustan breytist og skerðist og auknar kröfur eru gerðar til allra.
Það hefur verið áberandi í skólanum að nemendur eru heilt yfir að taka þessum breytingum ótrúlega vel miðað við hvað dagurinn þeirra er breyttur frá því sem var og augljóst er að allir eru að gera sitt besta.