DJÚPAVOGSSKÓLI

FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI

Nóvember 2021

08.nóvember Baráttudagur gegn einelti

15.nóvember Gestadagur (kennaranámskeið vegna Bootcamp smiðjur)

16.nóvember Dagur íslenskrar tungu og gestadagur

17.nóvember Gestadagur (mögulega viðburður fyrir mistig)

(laugardagur 20.nóvember Dagur mannréttinda barna)

24. nóvember - Heimsmarkmiða Bootcamp smiðjur - unglingadeild

26.nóvember Skipulagsdagur í Múlaþingi


Það er ýmislegt á dagskrá hjá okkur í nóvember. Það er verið að skipuleggja tvo viðburði með öðrum skólum í Múlaþingi. Það verður að koma í ljós hvernig það fer, staðan í heimsfaraldri stýrir því.

Sama má segja um skólaþingið okkar sem við urðum að fresta í september þegar smit voru mörg á Austurlandi, við þurfum að finna okkur tíma í það og vona það besta.


Við upplýsum um þetta þegar nær dregur.

NÆSTA VIKA

Mánudagur 1.nóvember

  • Heilsum nóvember með brosi á vör

Þriðjudagur 2.nóvember

  • 14:40 Starfsmannafundur - gæti haft áhrif á opnunartíma viðveru

Miðvikudagur 3.nóvember

  • Góður dagur til reikna auka dæmi

Fimmtudagur 4.nóvember

  • 14:40 Fagfundur

Föstudagur 5.nóvember

  • Förum hress í helgarfrí

MATSEÐILL

Big picture

Skólastjóra stúss

Nýlega fór ég á námsstefnu skólastjórnenda sem haldin var á Akureyri. Námsstefnan var einstaklega vel heppnuð, frábærir fyrirlestrar og flott skipulag, ekki síst þegar kom að sóttvarnarreglum. Það var mjög gott að hitta aðra skólastjórnendur og fá ráð og leiðbeiningar með ýmsa þætti skólastarfsins.


Stjórnendur í Múlaþingi komu saman á Egilsstöðum fyrir stuttu. Þar var farið yfir mannauðsmál, fjármál, ýmsar reglur og nýtt verklag í nýju sveitarfélagi. Þetta var mjög gagnlegur fundur og frábært að fá tækifæri til að hitta aðra stjórnendur og læra á nýtt kerfi saman.


Vikuna 1. - 5. nóvember verð ég í leyfi og Jóhanna Reykjalín verður minn staðgengill. Netfangið hennar er johanna.reykjalin@mulathing.is

Mánudaginn 8. nóvember stefni ég á að sitja Skólaþing Sambands íslenskra sveitarfélaga en það verður að koma í ljós vegna C-19 hvort að af því verði.


Minni ykkur á að tilkynna forföll hjá kristrun.gunnarsdottir@mulathing.is eða 4708710 (það er gott að hafa umsjónarkennara með í póstinum).


Bestu kveðjur,

Obba

KEPPNISDAGAR

Nemendur biðja reglulega um að Keppnisdagar verði endurvaktir. Við ákváðum að verða við því en með aðeins breyttum hætti. Það lukkaðist mjög vel og sjaldan verið eins róleg stemming á uppbrotsdegi.

Nemendum var skipt upp í lið, þvert á árganga, allir fengu viðurkenningu en eitt lið stóð uppi sem sigurverari.


Myndirnar segja meira en mörg orð.

SIGURLIÐIÐ

Öll lið fengu viðurkenningu en þetta lið fékk flest stig og telst því sigurverari keppnisdaga 2021.

Til hamingju :)


Að launum fengu þau að ráða hvaða hlutverki þau myndu sinna í skólanum þegar þau kæmu úr vetrarfríi, í einn dag :)

Big picture
Big picture

EINBEITING OG NÚVITUND

Á öllum þessum myndum sést vel hvað það var frábær stemming á keppnisdögunum. Eitt af því sem var alveg áberandi var hversu vel eldri nemendur hugsuðu um þá yngri. Það er ekki annað að sjá en hér séu allir alveg sultuslakir :)
Big picture
Big picture

NÝTT SKÓLASTJÓRNENDATEYMI

Bergþóra og Þorri völdu að vera skólastjórar og hér eru þau að fara yfir skóladagatalið. Ég hlakka til að sjá hvað hugmyndir bíða mín þegar ég kem úr fríi :)

MYNDIR FRÁ DÖGUM MYRKURS Í NÆSTU VIKU....

BESTU KVEÐJUR,

STARFSFÓLK DJÚPAVOGSSKÓLA