Vikupóstur unglingadeildar
Naustaskóli - 8. nóvember 2019
Sæl og blessuð
Annasamri viku að ljúka hjá unglingadeildinni. Nemendur eru búnir að vera leggja lokahönd á ritgerð í íslensku sem þau þurfa að skila í seinasta lagi á sunnudaginn. Á þriðjudaginn verður sagnapróf í ensku hjá öllum bekkjum og stærðfræðipróf hjá 8. bekk. Einnig eru nemendur í 8. bekk að leggja lokahönd á hópverkefni í stærðfræði.
Á mánudaginn er frí hjá nemendum vegna starfsdags hjá starfsfólki. Þeir sem eru á seinasta snúningi með einhver verkefni eða vilja undirbúa sig vel fyrir próf á þriðjudaginn eru hvattir til að nýta mánudaginn vel heima í lærdóm.
Fyrsta vika í hverjum mánuði er símalaus. Þessi vika gekk ekki eins vel í símaleysi eins og í seinasta mánuði. Við munum ræða betur við nemendur um reglurnar sem fylgja símaleysinu og taka harðar á brotum á þeim í næstu símalausu vikum. Foreldrar/forráðamenn geta aðstoðað okkur við að framfylgja símalausri viku með því að ræða við barnið sitt og hjálpa þeim að ákveða hvernig sé best að sleppa símanum með því t.d. að skilja hann eftir heima eða að hann sé ekki tekin upp úr töskunni.
13. - 15. nóvember eru þemadagar í tengslum við 10 ára afmæli Naustaskóla. Nemendum er skipt í hópa og fara þeir á milli stöðva. Stöðvarnar eru handverkstöð, útistöð, jákvæðs aga stöð, bakstursstöð, íslenskustöð og þrautastöð. Dagarnir verða því fjölbreyttir og vonandi skemmtilegir.
10. Bekkur verður með BINGÓ á fimmtudaginn 14. nóvember kl. 18:15 sem er hluti af fjáröflun fyrir skólaferðalagið. Við hvetjum alla til að mæta, spjaldið verður á 500 kr og seldar verða pylsur í hléi.Skipulag foreldrasamstarfs í Naustaskóla árið 2019-2020.
Ákveðið var með stjórn foreldrafélagsins að hafa fast tvo viðburði á skólaárinu með hverjum árgangi fyrir sig sem foreldrar sjá um. Átta til tíu forledrar þurfa að sjá um hvern viðburð.
Fyrri viðburður á að vera 18. nóv – 15. des en þá er lagt til að hver árgangur hittist og spili,skreyti piparkökur eða fari í bingó. Spil og bingó er hægt að fá lánað hjá skólanum en einnig geta nemendur komið með sín eigin spil að heiman. Ef ákveðið verður að hafa bingó þá koma foreldrar með einn vinning að heiman sem kostar hámark 300-500 krónum. Hver árgangur fær 10 þúsund krónur í styrk frá foreldrafélaginu fyrir hvern viðburð og er þá t.d. hægt að kaupa piparkökur fyrir þann pening.
Seinni viðburðurinn á að vera 2. – 31. mars en þá er ætlast til að foreldrar verði með útiveru með hópnum sem gæti falið í sér t.d. ferð í jólasveinabrekku, Kjarnaskóg eða annað skemmtilegt sem foreldrahópnum dettur í hug.
Ekki er ætlast til að hittingar bekkjanna taki meira en tvo klukkutíma en auðvitað er hverjum bekk frjást að ákveða það sjálf. Þeir sem vilja taka þetta að sér senda póst á kennara árgangsins eða senda á facebook síðu hópsins (messenger). Foreldrafélaginu og stjórnendur skólans finnst þessar uppákomur vera gríðarlega mikilvægar fyrir bekkjarandann og vonumst við til að foreldrar taki vel í bjóða sig fram í þessi skemmtilegu verkefni. Við vonumst til í framtíðinni að þetta skipulag muni halda sér næstu 10 árin a.m.k
Kær kveðja
Stjórnendur Naustaskóla
Foreldrafélag Naustaskóla