Kóramót í Derry á Írlandi
22. - 27. október 2020
Frábær söng- og skemmtiferð
til Derry og Dublin. Við tökum þátt í kórahátíð og syngjum tónleika án þess þó að keppa. Markmiðið er aðallega að njóta þess að syngja og hlusta á kórsöng. Gist er á fyrirtaks hótelum í tveggja til þriggja manna herbergjum. Morgunverður er innifalinn í verði. Ferðir til og frá flugvelli eru í umsjá ÍT ferða og með okkur í för verður umsjónarmaður á þeirra vegum sem sér til þess að allt gangi vel fyrir sig á þessu ferðalagi.
Dagskrá
22. október brottför frá KEF kl. 7.30 -lending 10.50 í Dublin
23. okt. Derry Choir Festival, sungið á tónleikum Kórafestivali
24. okt. Derry Choir Festival sungið á tónleikum og upplifum borgina
25. okt. Keyrt til Dublin, mælt með írsku skemmtikvöldi á Merry Ploughboys
26. okt. frjáls dagur í Dublin
27. okt. heimferð frá Dublin kl. 11.30 lending í KEF kl. 14.05
Derry
City Hotel Derry
Frábærlega vel staðsett hótel með öll helstu þægindi. Morgunverður innifalinn.
Bar-inn
á hótelinu er bar þar sem við getum kannski tekið lagið ... eða allavega skálað
2ja til 3ja manna herbergi
Twin og Double herbergi eru í boði en ef áhugi er fyrir að vera 3 í herbergi þá er hægt að mæta þeirra ósk
Dublin
Camden Court hotel
Stórfínt hótel sem fyrirrennarar okkar mæla með. Fín staðsetning og stutt í áhugaverða staði innan Dublin
2ja til 3ja manna herbergi
Twin og Double herbergi eru í boði en ef áhugi er fyrir að vera 3 í herbergi þá er hægt að mæta þeirra ósk
Veitingar og bar
Á hótelinu er fínn bar og veitingastaður.
2019 Highlights - City of Derry International Choir Festival
Verð: 149.900 kr. á mann
Skráning þarf að fara fram fyrir 14. febrúar næstkomandi og þá þarf að greiða staðfestingargjald sem er 40.000 kr. Síðari greiðsla fer fram 8 vikum fyrir brottför.