Vikupóstur
9. - 13. mars 2020
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Nú er Byrjendalæsisáætluninni um hringrásir lokið. Börnin unnu samvinnuverkefni út frá heimsmarkmiðum UNICEF og reyndi m.a á hæfni þeirra til að vinna í hóp, skipta með sér verkum og að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Afraksturinn (plakötin) er nú til sýnis á gluggavegg fyrir framan svæðið okkar. Endilega kíkið við, flott vinna hjá börnunum ykkar.
Næsta áætlun er unnin út frá leikritinu Ávaxtakörfunni. Í dag horfðu börnin á leikritið sem er fullt af mikilvægum boðskap um vináttu, virðingu, lýðræði og bræðralag. Næstu vikur munu börnin síðan vinna ýmis verkefni tengd söguþræðinum og undirbúa og æfa atriði sem verður svo sýnt á árshátíðinni okkar 2. apríl n.k.
Ef þið eigið Ávaxtakörfubúninga heima viljið þið þá vera svo væn að lána okkur þá fyrir sýninguna?
Sólarkveðjur til ykkar og góða helgi.
Teymi 2. og 3. bekkjar.