Fréttabréf Naustaskóla

9. tbl. 14. árg. 1. desember 2022

Kæra skólasamfélag

Skólastarfið næstu daga mun einkennast af öllu því lífi og fjöri sem fylgir aðventunni. Fram undan eru jólapeysu – og jólahúfudagur, jólaþemadagur og söngsalur með öllum nemendum skólans þar sem við syngjum jólalög saman. Litlu jólin eru á sínum stað þar sem við eigum saman hátíðlega stund áður en kærkomið jólafrí tekur við en skóli hefst aftur 3. janúar á nýju ári.

Fyrir hönd starfsfólks Naustaskóla þökkum við gott samstarf á þessu hausti. Starfsfólk Naustaskóla á einnig skilið hrós fyrir jákvæðni og umhyggju í garð nemenda sinna.

Með ósk um góða og notalega aðventu og gleðilega jólahátíð.

Stjórnendur Naustaskóla

Nemendadagurinn

Nemendadagurinn var stórkostlegur en hér ríkti mikil gleði og kátína. Allir náðu að spreyta sig á mismunandi verkefnum og stóðu nemendur sig vel í að sitja og horfa á starfsfólk skólans keppa um besta atriðið. Í ár unnu íþrótta- og sérgreinakennarar með sitt atriði þar sem Daníela íþróttakennari sýndi fimleikaæfingar á sviði og hinir stóðu heiðursvörð enda fræg kona þar á ferð. Við erum strax farin að telja niður í næsta nemendadag en þá munu nemendur keppa um besta atriðið.

Dagur gegn einelti 8. nóvember.

Allir í skólanum fóru út klukkan níu og tókum við höndum saman og mynduðum vináttukeðju utan um skólann. Með þessu vorum við að sýna í sameiginlegu átaki að við sem störfum í Naustaskóla starfsfólk og nemendur viljum að vinátta, falleg framkoma, umburðarlyndi og að engin sé skilin útundan eða sé lagður í einelti einkenni skólann okkar.

Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember.

Nemendur Naustaskóla hittust á sal skólans og byrjuðu daginn á söngsal. Mikil gleði var og allir tóku vel undir í söngnum. Formlegur undirbúningur hefst hjá 7. bekk fyrir Upptakt sem er lestrarkeppni sem endar í byrjun mars. En þá fara tveir fulltrúar frá skólanum í sameiginlega keppni á milli nemenda í grunnskólum Akureyrar.
Big picture

Smiðjuskil

Allt gott að frétta úr list og verkgreinum. Nemendur frá 2.b og upp í 10.bekk koma í ólíkar smiðjur og fá að reyna fyrir sér á ýmsum sviðum. Þar reynir á verkkunnáttu, sköpunarkraft, samhæfingu hugar, hjarta og handar og margar, ólíkar tjáningarleiðir. Hér má sjá myndir úr smiðjustarfinu.

Þemadagar

Þemadagarnir sem voru tileinkaðir barnasáttmálanum gengu mjög vel og gaman varað sjá hvað vel gekk að vinna með nemendum þvert á aldurshópa. Eldri nemendur hjálpur þeim yngri og ríkti mikil gleði innan hópsins. Á þemadögum ynnu nemendur að þessari flottu heimasíðu sem við hvetjum ykkur til að skoða: https://sites.google.com/naustaskoli.com/themadagarnaustaskola2022/

Barnaþing haldið í fyrsta sinn í Naustaskóla

Barnaþing var haldið í íþróttahúsi Naustaskóla þann 24. nóvember í tilefni af Alþjóðlegum degi barna sem var 20. nóvember. Nemendur í 5.-10. bekk tóku þátt í þinginu og gengu umræður afskaplega vel. Hver nemandi tók þátt í fimm hringborðsumræðum, málefni á þinginu snertu skólastarfið í heild sinni allt frá samskiptum yfir í skólalóðina. Nemendur voru virkir og verður spennandi að vinna úr niðurstöðum þingsins. Dagana á undan voru þemadagar helgaðir Barnasáttmálanum þar sem nemendur unnu margvísleg verkefni tengd Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Skv 12. grein Barnasáttmálans segir að „börn eigi rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif í líf þeirra“ og skv. 13. grein Barnasáttmálans eiga börn rétt á því að deila skoðunum sínum. Skólinn er fyrir nemendur og því eðlilegt að nemendur skólans hafi margt um sinn skóla að segja. Við erum afar stolt af þessum degi og erum ákveðin í að halda aftur barnaþing í Naustaskóla.

Big picture

Litlu jól

Mánudagskvöldið 19. desember 8. - 10. bekkur

Mæting 18:30 - 20:30

Þriðjudaginn 20. desember 1. - 7. bekkur

Mæting í stofur kl: 8:10 - 10:10

Á döfinni í desember

1. desember - Fullveldisdagurinn, jólapeysu, sokka og eða húfudagur.

5. desember Ævar vísindamaður les úr bók sinni fyrir 6. - 10. bekk.

6. desember Bjarni Fritz les úr bókum sínum fyrir 2. - 7. bekk.

7.desember Hlynur Þorsteinsson les úr bókinni Amma glæpon.

9. desember - Smiðjuskil 4. - 5. bekkur.

13. desember - Jólaþemadagur hvetjum nemendur að mæta í jólapeysu, sokkum og eða jólahúfu. Sætabrauðsnesti er leyfilegt þennan dag.

16. desember - smiðjuskil 6.-7. bekkur.

20. desember - Lítlu jól. Frístund er opin fyrir þau börn sem eru skráð í frístund frá 10:10.

21. desember - 1. janúar - Jólafrí. Frístund opin fyrir þau börn sem eru skráð.

2. janúar - starfsdagur. Frístund er lokuð.

3. janúar- fyrsti dagur eftir jólafrí.

Matseðill desember

Big picture

Gleðilega hátíð

Kæru nemendur og foreldrar

Við sendum ykkur hátíðarkveðjur

Starfsfólk Naustaskóla

Big picture