VAL FYRIR HAUSTÖNN 2022
VALTÍMABIL 15.-18. MARS
VAL FYRIR HAUSTÖNN 2022
Kæru nemendur
Nú er komið að vali fyrir haustönn 2022. Hér fyrir neðan geturðu kynnt þér allt um valið en valið sjálft fer fram í gegnum INNU.
Allir nemendur í dagskóla sem ætla að halda áfram námi þurfa að velja áfanga fyrir næstu önn. Ekkert val þýðir engin stundatafla! Nemendur þurfa að velja 1 áfanga í varaval.
Fjarnemendur sem ætla að halda áfram fjarnámi við skólann og borga fyrir fjarnámið geta líka valið áfanga.
Allir nemendur geta fengið aðstoð við valið hjá áfanga- og fjarnámsstjóra (Martha Kristín), náms- og starfsráðgjafa (Erna Sigrún), aðstoðarskólameistara (Hildur) eða skólameistara (Heiðrún). Hægt er að panta tíma hjá ritara eða hér.
Væntanleg útskriftarefni: Nemendur sem ætla að útskrifast í desember 2022 VERÐA að panta tíma til að fara yfir valið og fá staðfestingu á að allt sé klárt til að útskrifast.
Dagskólanemendur sem ætla ekki að vera við nám á haustönn þurfa að láta áfanga- og fjarnámsstjóra vita (marthakp@misa.is).
Lýsingar á áföngum í boði í bundnu áfangavali og í vali
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/
Twitter: @MenntaskIsafird