HÚSBRÉFIÐ
14. ÁRG., 4. TBL
DAGSKRÁ 17. - 21. september
SUNNUDAGUR 16. september - Dagur íslenskrar náttúru.
MÁNUDAGUR 17. september
Nemendaverndrarráðsfundur í Bs. kl. 14:15.
Göngum í skólann: Keppni um "Gullskóinn 2018" heldur áfram.
ÞRIÐJUDAGUR 18. september
Örfundur - Stuðningsfulltrúar Hs kl. 8:00 í stofu 9.
Nemendaverndrarráðsfundur í Hs. kl. 14:15.
Fagfundir, bæði í samfélagsfræði og hjá íþróttakennurum. Fagstjórar boða til fundar.
Handavinnuhittingur í Barnaskólanum kl. 20:00.
MIÐVIKUDAGUR 19. september
Göngum í skólann: Keppni um "Gullskóinn 2018" lýkur í dag. Höldum samt áfram að ganga í skólann.
Enginn fundur skráður - vinna í námsmati.
Menntabúðir í Hamarsskóla frá 16:30 - 18:00
FIMMTUDAGUR 20. september
Örfundur - Skólaliðar Hs kl. 8:00 í stofu 9.
Samræmd próf í 7. bekk- íslenska. Fyrri hópur mætir 9:00, síðari hópur mætir 11:00. Prófin eru í tölvustofu og á bókasafni - gangur lokaður á meðan.
Stjórnendafundur í Bs. kl. 14:15
FÖSTUDAGUR 21. september
Samræmd próf í 7. bekk - stærðfræði. Fyrri hópur mætir 9:00, síðari hópur mætir 11:00. Prófin eru í tölvustofu og á bókasafni - gangur lokaður á meðan.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Keppni um Gullskóinn í 2. - 7. bekk stendur yfir 5.- 19.september. http://www.gongumiskolann.is/.
- Samræmd próf hjá 7. bekk eru 21. og 22. september. Verða í tveimur lotum frá 9:00-10:20 og seinni lotan frá 11:00-12:20.
- Samræmd próf hjá 4. bekk eru 27. og 28. september. Verða í tveimur lotum frá 9:00-10:20 og seinni lotan frá 11:00-12:20.
- Kennarar í 4. og 7. bekk, Upplýsingar um prófin er að finna á https://mms.is/samraemd-konnunarprof.
- Fyrstu menntabúðir vetrarins eru miðvikudaginn 19. september frá kl 16: 30 - 18:00 í Hamarsskóla
- Óvissuferð!!!! Munið að skrá ykkur fyrir 28. september. Listar á kaffistofum skólanna. KOMASO!
- Lestur við sama borð hefst þriðjudaginn 26. september. Tvítyngdir nemendur geta fengið aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
- Kennaraþing 29. september. Merkja við sig á skráningarblaði á kaffistofu.
Tilkynningar !!
Við hvetjum fólk til að taka þátt í Plastlausum september sjá nánar á https://plastlausseptember.is
- UTÁ- þarfaplattar: Starfsfólk er vinsamlegast beðið um að koma plöttunum sem fyrst upp á veggi skólans.
- Dagur íslenskrar náttúru er sunnudaginn 16. september.
- Evrópski tungumáladagurinn er miðvikudaginn 26. september.
Afmælisbörn septembermánaðar
Arnheiður Pálsdóttir 4. september
Daníel Geir Hjörvarsson 14. september
Sæfinna Ásbjörnsdóttir 14. september
Nina Ann Dau 16. september
Erna Tómasdóttir 18. september
Lára Skæringsdóttir 25. september
Hildur Jónasdóttir 26. september
Sigríður Hreinsdóttir 28. september
Dóra Guðrún Þórarinsdóttir 29. september
Svanhvít Friðþjófsdóttir 29. september
Uppskrift vikunnar - Moscow Mule
Hráefni: (1 drykkur)
50 ml Vodka
150 ml Engiferbjór (eða Engiferöl)
Lime
Ísmolar
Mintulauf
Aðferð:
Fyllið glasið með klaka og kreistið ½ lime ofan í glasið. Hellið Vodka út í glasið og fyllið upp með engiferbjór/öl. Væn limesneið og mintulauf notuð sem skraut. Drekkið!
Endurtakið :)
Hrós vikunnar fá:
Unglingastigskennarar fyrir frábæra náttúruvísindadaga
Tyrkja - Eva ... útaf dottlu :)
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.