Fréttabréf Leikskólans Undralands
17.10.22 Ábm. Ingveldur Eiríksdóttir
Rafræn samskipti og miðlun
Mikilvægt er að allir foreldrar hafi aðgang að karellen appinu. Nú er það að mestu komið í lag en einkum er fólk að lenda í því að leyniorðin innihalda ekki nógu margar breytur.
Endilega komið til mín, Ingveldar og við förum í gegnum þetta saman.
Þar koma oft tilkynningar og slíkt sem gaman og gott er að vita af.
Síðan er auðvitað mikilvægt að netföng foreldra séu rétt inni á karellen og gott er ef þið uppfærið allar upplýsingar, símanúmer, netföng og slíkt ef þörf er á.
Skólahópurinn okkar fór í heimsókn að Melum
Úr grænmetinu bjuggu þau til ýmsar fígúrur
Kindur voru til dæmis með í hópnum
Foreldrasamtöl
Um okkur
Email: undraland@undraland.is
Website: undraland.is
Location: Langholtsvegur, Flúðir, Iceland
Phone: 7686600
Facebook: https://www.facebook.com/leikskolinnUndraland
Bleikur dagur verður í leikskólanum 20. október
Vikan 24. - 28. október verður tileinkuð hrekkjavökunni
Bókasafnsheimsóknir
Við mælum með
Endilega njótið - flottur þáttur.
Ánægjuleg samskipti
Mikilvægt er fyrir góða tengslamyndun að samskipti milli umönnunaraðila og barnsins séu ánægjuleg fyrir báða aðila. Þá er gott að hafa í huga að ánægja barns og foreldris af félagsskap hvers annars er mikilvægari en fjöldi þeirra stunda sem þau verja saman. Til dæmis er gott að hafa í huga að draga úr utanaðkomandi truflunum líkt og frá farsíma eða sjónvarpi og njóta samverustunda heilshugar með barninu sínu.
Góðar samverustundir geta meðal annars verið að leika með barni, lesa bækur, fara í sund eða njóta annarar útiveru. Ef barni er veitt athygli, hlýja og ástúð sem einkennist af stöðugleika er lagður góður grunnur að andlegu heilbrigði þess.
Fimmtudagar eru dótadagar
Fram að áramótum eru það þessir fimmtudagar:
27. október
10. nóvember
Ekki verður 24. nóv. þar sem þá er skipulagsdagur
8. desember og
22. desember.
Skólaheimsóknir leik- og grunnskóla á Flúðum fram að áramótum
Fríður Sæmundsdóttir umsjónarkennari 1.bekkjar og Alda Kristín Jóhannsdóttir deildarstjóri halda utan um samstarfið. Stefnt er að því að 1. bekkur og Skólahópur hittist 3 sinnum í mánuði og að Skólahópur fái að heimsækja 1. bekk í allar námsgreinar Ein heimsókn á mánuði er í leikskólann.
Október 2022
4. Skólahópur kemur í heimsókn til Jóhönnu og Árna kl. 10
11. 1. bekkur fer í útiveru með Skólahóp í leikskóla
17. Skólahópur kemur í myndmennt kl. 10:55-12:15 og nýtur upplesturs með Skáldum í skólum.
Nóvember
2. Skólahópur kemur á generalprufu árshátíðarleikrist 1.-7. bekkjar.
8. Skólahópur kemur í tónmennt með 1. bekk kl. 9:15-9:55.
Fara með í frímínútur til kl. 10.15
17. Skólahópur heimsækir 1. bekk í Snússu kl. 10:15-11:35.
21. 1. bekkur fer í útikennslu með Skólahóp kl. 10:15-11:20 ca.
25. 1. bekkur og leikskóli horfa saman á Grýlu og jólasveinana.
Desember
8. Skólahópur kemur í heimilisfræði með 1. bekk kl. 8:35-9:55
1. bekkur í heimsókn í leikskóla á jólastöðvar
ATH - Skólahópur kemur í íþróttir-Rarsan með 1. bekk kl. 12:10-13:30
Viðhald og breytingar
Fataherbergi starfsmanna er sömuleiðis komið af stað í ferli og við erum svo sannarlega að vona að fljótlega komi hillur í nýju höllina okkar hér á skólalóðinni.
Það mæðir á köllunum okkar í áhaldahúsinu sem eru þó allir af vilja gerðir, - og bregðast vel við öllum bónum. - En það er líka í mörg horn að líta.
Það þarf að mála, setja upp hillur, laga læsingar, bæta lýsingu, færa þetta og færa hitt, taka niður eitt og setja hitt upp - og svona mætti lengi telja! Allt gera þeir þetta með bros á vör þó mikið sé nú á þá lagt á stundum af kerlingaskaranum - og Páli ;)
Starfsfólkið okkar
Auður Ólafs - leiðbeinandi á Grænhóli
Cornelía - hópstjóri á Hofi
Eva - leiðbeinandi á Grænhóli
Ingveldur - leikskólastjóri
Ída - deildarstjóri á Hofi
Jónína Kristbjörg leikskólaliði á Hofi
Júlía Sól leiðbeinandi á Grænhóli
Katrín Ósk - langvarandi veikindaleyfi
Margrét Elín - ýmsir staðir, hættir um áramót
Margrét Lilja - leiðbeinandi á Hofi
Nina - matráður
Olga - leiðbeinandi á Hofi
Páll - leiðbeinandi á Hofi
Rakel Ósk - Hof/Grænhóll
Sintija - Leikskólakennari á Hofi
Telma Þöll - stuðningur á Grænhóli
Valdís - deildarstjóri sérkennslu
Valný Björg - deildarstjóri á Grænhóli.
9 starfsmenn eru í fullu starfi, aðrir eru í hlutastarfi.
Nú í vikunni kemur piltur til okkar hann Ari Þór í stuðning en hann hefur hug á því að vera hjá okkur til áramóta.
Við bjóðum hann velkominn í hópinn.
Takk takk og aftur takk
Takk fyrir endalaust umburðarlyndi og vilja til þess að aðstoða okkur þegar vantað hefur upp á í starfsliðinu vegna veikinda eða viðburða sem það hefur þurft að sækja.
Ég fæ ekki fullþakkað góð viðbrögð ykkar, Ingveldur