Skóladagur GRV í Hamarsskóla
9. maí kl. 16:15 - 19:00
Skóladagurinn
Skóladagur GRV - Hamarsskóla verður miðvikudaginn 9. maí frá kl. 16:15 - 19:00, hefst hann í Íþróttahúsinu með því að Litla lúðrasveitin spilar nokkur lög en kl. 16:30 hefst danssýningin.
Að lokinni danssýningu verður skólinn opnaður. Fjölbreytt dagskrá verður í boði sem nemendur og gestir geta tekið þátt í.
Nemendur 5. bekkja selja upprúllaðar pönnukökur og muffins á 100 kr. stykkið, ágóði af sölunni fer í ferðasjóð þeirra, ásamt hlutaveltunni sem verður á sínum stað.
Í kennslustofum ætlum við að kynna fjölbreytta kennsluhætti og verkefni nemenda. Í bekkjastofum verður ýmislegt sem gestir geta fengið að taka þátt í.
Hvað er í boði ?
Danssýning nemenda í 1.— 5. bekk ásamt 5 ára deild í umsjón Súsönnu Georgsdóttur danskennara skólans. Nemendur mæta prúðbúnir kl. 16:15.
Verkgreinastofur:
- Myndmennt, Þóra Gísladóttir myndlistakennari verður með skemmtileg verkefni.
- Handmennt, Ásta Júlíusdóttir textilmenntakennari verður með fjölbreytt verkefni.
- Smíði, Sverrir M. Jónsson smíðakennari býður upp á fjölbreytt verkefni.
Skólalóðin:
- Lukkuhjól með ýmsum skemmtilegum vinningum og þrautum. Íþróttakennar sjá um að snúa hjólinu.
Salurinn:
Hlutavelta í umsjón nemenda og kennara í 5. bekk.
Verð miða er 200 kr, 4 miðar fyrir 600 kr..
Helguvík:
- Tilraunir og náttúruvísindi í umsjón Valgerðar Bjarnadótt
Víkin 5 ára deild:
- Sýning á verkum nemenda, kennsluefnið Lubbi finnur málbeinið og stærðfræðileikir verða einnig til sýnis.
Bókasafn:
- Bókaþraut á nýuppgerðu bókasafni skólans, endilega kíkið inn.
Tónlistaratriði, nemendur sem stunda nám í Tónlistarskólanum spila, umsjón Jarl Sigurgeirsson tónlistarkennari.
Skólastofur
Helguvík
Lukkuhjólið
Matsalur og kaffistofa starfsfólks
- Nemendur í 5. bekk með fjáröflun í ferðasjóð.
- Verð 100 kr. stykkið, djús og vatn með. Kaffibolli fyrir fullorðna, frjáls framlög.
Stofur
1. bekkur, stofur 1, 2 og 3
2. bekkur, stofur 4, 6 og 7
- Nýjar áherslur í lestrar- og stærðfræðikennslu, fjölbreytt kennslugögn til sýnis ásamt verkefnum nemenda.
3. bekkur, stofur 8, 9, 9b
- Þar verða ýmis skemmtileg námsspil og kennslugögn til sýnis ásamt verkefnum nemenda. Rúnar G. Gunnarsson nemi í FÍV ætlar að slá Vestmannaeyjamet í að leysa Rubik kubb í stofu 9b, kl. 17:30 - 19:00.
4. bekkur, stofur 13 - 15
- Sýning á verkum nemenda, kynning á Osmó enskuverkefnum nemenda.
5. bekkur, stofur 10 - 12
- Sýningar á verkum nemenda, tafl í stofu 11, Fuglaspilið og Fánaspilið í stofu 12.