HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 28. TBL
DAGSKRÁ 24. - 29. APRÍL
MÁNUDAGUR 24. APRÍL
Þriðja og síðasta lotan í knattspyrnuakademíunni hefst í dag.
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL
Nemendaráðsfundur í HS klukkan 14:15
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL
Nemendaverndarráð í BS kl. 8:15
Fagfundur í íslensku hjá unglingastigi, fagstjóri auglýsir.
Kennarafundur fyrir alla kennara í BS klukkan 14:30. Kynning á aðgerðaáætlun samkvæmt bókun 1 í síðasta kjarasamningi.
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL
Stjórnendafundur í HS klukkan 15:00
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL
Söngur á sal í Hs
Kynning frá Menntamálastofnun kl. 13:00 í sal Hs.
Flutningur á lager námsbóka frá Menntamálastofnun til A4 kynntur fyrir skólastjórnendum, kennurum og fræðslustjórum, sem og afnám kvóta á námsefni og breyttar áherslur á pöntunarfyrirkomulagi.
Góða helgi
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Í þessari vikur verður hópur nemenda og kennara frá Þýskalandi í heimsókn í skólanum.
- 26. apríl: fundur fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra vegna lokaverkefnis kl. 11:40
- 3. maí: Skóladagur Bs
- 8. og 11. maí verður vorskóli fyrir fimmáradeildina.
- Fundur hjá skólstjórnendum Suðurlands 11. - 12. maí í Eyjum. Munu koma í heimsókn í Hamarsskóla og Barnaskóla
- ENO verkefnið fer fram 12. maí 2017 http://treeday.enoprogramme.org/ 6. og 7. bekkja kennarar til í slaginn og verða með í þessu verkefni. Ef fleirri vilja vera með er það hægt. Hafa samband við Hönnu ef þið viljið frekari upplýsingar.
- Lokaverkefni í 10.bekk hefst 16. maí
- Foreldrafundur fyrir væntanlegra nemenda í 1. bekk verður 23. maí
- 24. maí skóladagur í HS
- Fjölgreindarleikar á mið- og yngsta stigi verða dagana 29. maí og 30.maí. Kennarar beðnir um að huga að sinni stöð. Allir starfsfólk beðnir um að horfa á þetta vídeó sem Eva Kára gerði í fyrra um leikana. https://www.facebook.com/grunnskolivestmannaeyja/videos/474742106067214/
- Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk verða 29. -31. maí
Tilkynningar !!
- Söngur á sal í Hs föstudaginn 5. maí.
- Minna á gistingu í BS um næstu helgi (28. - 29. apríl).
- Lögreglan heimsækir 9. og 10. bekk föstudaginn 28. apríl
Þriðja og síðasta lotan í knattspyrnuakademíunni byrjar 24. apríl og stendur til 12. maí.
- Handavinnuhittingur - GRV ætlar að taka þátt í verkefninu "kærleiksteppi".
Verkefnið gengur út á að prjóna eða hekla barnateppi sem við færum Útfarastofu kirkjugarðanna að gjöf. Tepppi verða notuð í kistur hjá fóstrum eða börnum. Ef einhverjir vilja taka þátt í þessu fallega samfélagsverkefni þá endilega fáið upplýsingar hjá flottu stelpunum í Handavinnuhóp - GRV. Upplýsingar um verkefnið verða á kaffistofum skólans. - Áhugaverður vefur: rímorðabók: http://islenska.org/rima/
- Lesið við sama borð - Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
Afmælisbörn
Ester Sigríður Helgadóttir 27. apríl
Guðbjörg Lilja Þórarinsdóttir 27. apríl
Jóhanna Njálsdóttir 27. apríl
Grillaður Lax með dill og sítrónu
Lax með dilli og sítrónu er klassísk blanda sem að við leikum okkur með í þessari marineringu áður en fiskurinn er grillaður.
- 800 g laxaflak
- safi úr einni sítrónu
- 1 msk rifinn sítrónubörkur
- 3 hvítlauksgeirar, pressaðir
- 2 tsk dill eða 2 msk saxað ferskt dill
- 2 msk olífuolía
Blandið saman sítrónusafa, sítrónuberki, pressuðum hvítlauk, dilli og ólífuolíu í plastpoka (frystipoka eða ziplock-poka). Setjið flakið í pokann og leyfið að marinerast í 1-3 klukkustundir.
Takið úr pokanum. Saltið og piprið.
Hitið grillið og setjið flakið á grillið með roðhliðina upp. Grillið í 2-3 mínútur. Snúið við og grillið áfram undir loki með roðhliðina niður þar til að flakið er fulleldað. Það fer auðvitað eftir hita grillsins og þykkt flaksins hvað það tekur langan tíma en gerið ráð fyrir 4-5 mínútum.
Meðlætið getur verið margvíslegt t.d. spergilkál með sítrónu eða steinseljukartöflur.
Stærðfræði kvíði barna og nemenda - Frábært myndband fyrir kennara, foreldra og stjórnendur.
Spakmæli vikunnar
"Abraham Lincoln"
Staðreyndir um skóladagatalið 2016-2017
Það eru eingöngu 23 hefðbundnir skóladagar eftir á þessu skólaári.
Staðreyndir um skóladagatalið 2016-2017
Staðreyndir um skóladagatalið 2016-2017
Eru strákar klárari en stelpur? frábært myndband frá TED-ED
Hrós vikunnar fá
Íslenska sem annað tungumál - facebook
5 leiðir til að hlusta betur- Stutt myndbrot frá TED-ED
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.