Skólastarfið í október
Vinátta - Samvinna - Ábyrgð
Ólympíuhlaupið fór vel fram
Gulldrekalottó 3.-14. okt.
Nú er komið að árlega GULLDREKA-lóttó leiknum okkar. Leikurinn byrjaði mánudaginn 3. október og stendur yfir í 2 vikur.
Tilgangur leiksins er að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglum. Nemendur leggja sig fram við að sýna fyrirmyndarhegðun á almennum svæðum skólans, í matsal, á göngum og skólalóð. Jákvætt andrúmsloft skapast sem leiðir til betri hegðunar.
Allir nemendur geta verið með í leiknum.
Leikurinn gengur út á það að 10 nemendur skólans í 1.-4. bekk annars vegar og 5.-10. bekk hinsvegar, fá einn „Gulldreka“ á dag í 10 daga. Hvor hópur safnar þá samtals 100 „Gulldrekum“.
Þar sem þetta er lottó þá geta allir unnið ef þeir fara eftir SMT skólareglum.
Nemendur sem fá „Gulldreka“ fara með hann til ritara, skila „Gulldrekanum“ og draga númer. Þau skrifa nafnið sitt, bekk og dagsetningu á þar til gerðan miða og líma hann upp á „Gulldrekalottóspjaldið“ sem er fyrir framan hjá ritara.
Að leik loknum er dregin út vinningsröð á báðum lottóspjöldum og þeir nemendur sem eiga miða í þeim röðum koma sem fulltrúar árgangsins í veislu og taka á móti viðurkenningu fyrir þátttökuna sem allir í árganginum njóta.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast með og ræða um þennan leik heima.
Bekkjartenglafundur 11. okt.
Samtalsdagur 13. okt.
Samtalsdagur er fimmtudaginn 13. október. Kennarar opnuðu fyrir skráningu í samtölin þriðjudaginn 4. okt. kl. 08:00 og verður opið út sunnudaginn 9. okt. Umsjónarkennarar gefa þeim foreldrum/forsjáraðilum tíma sem ekki hafa skráð sig eftir helgina.
Svona til að rifja upp þá eru þetta samtöl umsjónarkennara, foreldra/forsjáraðila og barns og stendur yfir í að hámarki 15 mínútur. Farið er yfir líðan nemanda, stöðu hans og hæfni. Mikilvægt er að mæta stundvíslega þannig að allir nemendur fái sinn tíma yfir daginn.
Hraunsel er opið þennan dag frá kl. 08:00-17:00 fyrir þá sem eiga venjulega stað þar. Skrá þarf sérstaklega fyrir þennan dag og lýkur skráningu föstudaginn 7. okt. þannig að nú fer hver að verða síðastur.
Við hlökkum til að fá ykkur foreldra/forsjáraðila inn í skólann aftur.
Sleepover í unglingadeild 14. okt.
Skólinn opnar kl. 20:00 en kl. 22.00 verður hurðum læst og þeir sem hafa fengið leyfi frá foreldrum/forsjáraðilum fá að vera eftir. Eftir þetta fer enginn út og ber öllum að virða þessa reglu. Nemendur verða lesnir upp og ef nemandi er skráður en er ekki mættur er hringt heim til foreldra/forsjáðaðila. Klukkan 7:00 um morguninn verður húsið opnað á ný og nemendur fara heim.
Við hvetjum nemendur til að mæta, þetta er svo geggjað skemmtilegt.
Bleiki dagurinn 14. okt.
Föstudagurinn 14. okt. er dagurinn sem við ætlum að njóta saman í bleiku og vekja um leið athygli á árvekniátaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Flestar fjölskyldur hafa einhverja reynslu eða sögu um krabbamein og langar okkur að sýna stuðning í verki með því að nemendur og starfsfólk mæti í bleiku.
Vetrarfrí 24.-25. okt.
Foreldrarölt
Á undanförnum árum hafa foreldrar og forráðamenn í samstarfi við foreldrafélög skólanna, félagsmiðstöðvarnar og lögregluna farið í skipulagt foreldrarölt á kvöldin um helgar. Um er að ræða sjálfboðaliðastarf foreldra þar sem leitast er við að ná fram samstöðu þeirra á meðal um að virða reglur um útivist barna og koma í veg fyrir hópamyndun unglinga eftir að lögbundnum útivistartíma er lokið.
Með því að taka þátt í foreldrarölti kynnist þú öðrum foreldrum og hverfinu, styrkir tengslanet og auðveldar samskipti foreldra/forsjáraðila, hefur þú áhrif á góðan hverfisbrag og það félagslega umhverfi sem börnin okkar og unglingar búa í.
Besta forvörn ósækilegrar hópamyndunar unglinga er sýnileiki fullorðinna og með virku foreldrarölti minnka líkur á hópamyndunum, notkun vímuefna, eineltis og ofbelis. Allir þessir hlutir ógna öryggi hverfisins okkar, sem hefur bein eða óbein áhrif á þitt barn.
Foreldraröltið er frábært tækifæri til að virkja foreldra til samstöðu um að virða reglur um útivist barna og unglinga, búa til tengslanet þeirra á milli og koma í veg fyrir hópamyndun unglinga að loknum lögbundnum útivistartíma. Röltið er einnig gott verkfæri til að efla og styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu.
Foreldrarölt fer alla jafna fram á föstudagskvöldum en stundum kemur það fyrir að það sé á miðvikudagskvöldum.
Tómstundamiðstöð skólans
Hraunsel
Hlutverk frístundaheimila er að bjóða upp á fjölbreytt frístunda- og tómstundastarf án aðgreiningar fyrir börn á aldrinum 6-9 ára eftir að kennslu lýkur. Markmið starfsins er að efla sjálfstraust og félagsfærni. Starfsemi frístundaheimila hefur áhrif á félagsþroska barna og er vettvangur þar sem þau æfa sig í vináttu og samskiptum. Börnin læra gagnkvæma virðingu, traust og umburðarlyndi í gegnum leik og starf. Umhverfi frístundaheimila einkennist af öryggi og fagmennsku. Aðstæður eiga að einkennast af jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum starfsháttum. Í frístundaheimilinu er hlustað, rætt saman og ekki síst er pláss fyrir allar tilfinningar.
Hér er dagskrá uppbrotsdaga í OKTÓBER. Hraunsel er opið alla virka daga frá kl. 13:20-17:00.
Mosinn miðdeild
Markmið félagsmiðstöðva er að ná til allra nemenda í miðdeildum og unglingadeildum skólanna og gefa þeim tækifæri á að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli. • Félagsmiðstöðin skal vera vettvangur þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að sýna frumkvæði, axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
Mosinn unglingadeild
Hér er dagskrá fyrir OKTÓBER en Mosinn er opinn á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl. 19:30-22:00. Við hvetjum alla til að mæta enda hefur þátttaka í tómstundastarfi ákaflega jákvæð áhrif á nemendur.
Hraunvallaskóli
Email: hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is
Website: hraunvallaskoli.is
Location: Drekavellir 9, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 590-2800
Facebook: facebook.com/hraunvallaskoli
Twitter: @hraunvallaskoli