TÖFLUBREYTINGAR
Menntaskólinn á Ísafirði
Hægt er að sækja um töflubreytingar rafrænt í gegnum INNU eða með því að panta tíma hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa eftir kl. 14:00 miðvikudaginn 17. ágúst. Nauðsynlegt er að panta tíma í töflubreytingar annað hvort hér eða hjá ritara.
Ert þú að útskrifast í desember eða maí? Þá þarftu að passa sérstaklega vel upp á að allir áfangar sem þú valdir séu inni í stundatöflunni þinni. Ef svo er ekki þarftu að fara í töflubreytingar.
Töflubreytingum lýkur mánudaginn 22. ágúst n.k.
Stokkatafla
Hér sést hvernig áfangar raðast í svokallaða stokkatöflu og fyrir neðan hvernig áfangar raðast í stokka þ.e. í stundatöflu. Dæmi: Áfangi sem raðast á mánudögum í stokk 1 er alls staðar í stokki 1. Ekki er hægt að taka nema einn áfanga í hverjum stokki því annars verður árekstur.
Óþarfi er að koma í töflubreytingar nema þið sjáið möguleika á einhverjum breytingum. Í gegnum INNU er hægt að gera töflubreytingar rafrænt (sjá leiðbeiningar hér neðst). Athugið að sumir áfangar eru fullir og ekki hægt að bæta nemendum við í þá. Einnig bendum við á að ýmsir áfangar eru í boði fjarnámi í gegnum samstarfsskóla okkar í Fjarmenntaskólanum.
Áfangi í árekstri
Ef áfangi/áfangar er í árekstri er möguleiki að taka annan áfangann í fjarnámi. Um fjarnámið þarf að sækja sérstaklega hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa. Einnig er hægt að sækja um fjarnám hér.
Athugaðu að passi áfangi í töflu er ekki mögulegt að sækja um að fá að taka hann í fjarnámi nema að:
- Sérstakar ástæður liggi þar að baki og þarf þá að tilgreina þær ástæður í fjarnámsumsókninni
- Borga fyrir það fjarnámsgjald sem er 12.000 kr.
1.
Byrjaðu á að skrá þig inn í INNU, annað hvort með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Í valmyndinni hægra megin sérðu hnapp merktan töflubreytingum
2.
Smelltu á TÖFLUBREYTINGAR og veldu önnina 20211 (stendur fyrir vorönn 2021). Þar sérðu yfirlit yfir áfangana þína og hópa og töflu eins og hér sést
Þú getur tekið hakið úr þeim hópum sem þú vilt ekki vera í. Vinstra megin á skjánum er svo valmynd þar sem þú getur slegið inn áfangaheiti
3.
Þú velur áfangann sem þú vilt taka og ef fleiri en 1 hópur er í áfanganum þá birtast hóparnir sem úr er að velja
4.
Þú hakar við þann hóp sem þú vilt bæta þér í. Loks smellir þú á hnappinn: Staðfesta óskir um töflubreytingu
5.
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 4504400