Vikupóstur
1. bekkur
Heil og sæl kæru foreldrar!
Þá er fyrstu heilu skólavikunni eftir jólafrí lokið og ættu allir að vera þreyttir en þó sælir eftir skemmtilega daga.
Við byrjuðum á nýju þema - Þorranum og lásum bókina Kuggur - Þorrablót eftir Sigrúnu Eldjárn. Þó að langt sé í þorrann, ákváðum við að byrja núna því næsta vika verður tileinkuð jákvæðum aga og gerum við þá hlé á þorranum.
Við unnum m.a. í stærðfræði, æfðum okkur að skrifa orð og teiknuðum mynd af Kuggi.
Búið er að lestrarprófa flest börnin, en það var gert á þriðjudag og miðvikudag. Farið verður yfir niðurstöður lesfiminnar og hvernig börnunum gengur að tileinka sér námið á viðtalsdögunum sem verða 27. og 28. janúar.
Við minnum á heimalestur 5 sinnum í viku og orðasafnið.
Næsta vika verður vika jákvæðs aga og munum við þá fara nánar út í verkfærin sem nemendur geta nýtt sér í ólíkum aðstæðum og gera bæði æfingar og verkefni sem tengjast því.
Njótið helgarinnar!
Bestu kveðjur,
Elín, Jódý, Sigga og Sunna