Föstudags póstur
25.-29. maí
Kæru foreldrar/forráðamenn
Vikan sem leið var stutt og leið hratt. Námsmati er að mestu lokið og við héldum áfram með Eyjafjarðarþemað.
Í næstu viku munum við svo klára þemavinnuna. Við ætlum að fara í gönguferðir, taka nestið með og borða úti ef veður leyfir. Hápunktur vikunnar verður svo ísferð, en við ætlum að fara í gönguferð og fá okkur ís í boði Leirunestis.
Ísferð 2. bekkur: þriðjudagurinn 26. maí
Ísferð 3. bekkur: fimmtudagur 28. maí
Við munum senda út áminningu um hvenær áætlað er að fara í nestisferð þegar nær dregur.
Síðustu viku skólaársins verða vorþema dagar hér í skólanum og í Kjarnaskógi. Einnig verður Unicef- hlaupið haldið í Naustaborgum. Upplýsingar varðandi áheitasöfnunina koma síðar.
Góða helgi!
Bestu kveðjur frá okkur í 2.-3. bekkjarteymi