Fréttakorn
Fréttabréf starfsmanna Oddeyrarskóla, desember, vika 52.
Gleðilega hátíð!
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Við hlökkum til samstarfsins á árinu 2016.
Kær kveðja,
Fjóla, Kristín og Rannveig
Breytingar
Talsverð röskun hefur orðið hjá skólaliðum og stuðningsfulltrúum vegna ráðstafana sem við þurftum að gera vegna nemenda. Við þökkum öllum innilega fyrir liðlegheitin. Útlit er fyrir að allt fari til fyrra horfs frá og með mánudeginum 11. janúar. Erna fer þá í sitt starf sem skólaliði og Sunna fer aftur í 1. bekk.
Starfsdagur 4. janúar 2016
Þennan dag nýtum við í nám um atferlistmótun undir leiðsögn Önnu Lindar Pétursdóttur. Kennarar og stuðningsfulltrúar mæta í Lundarskóla kl. 8:15 og þar verður dagskrá til kl. 11:30. Þar verðum við með kennurum og stuðningsfulltrúum Lundarskóla og Síðuskóla. Boðið verður upp á kaffi og rúnstykki í kaffihléinu.
Kl. 12:45 hittumst við í raungreinastofu og vinnum að þróunarverkefninu okkar, Tölum saman - lærum saman. Stefnum að vinnu til kl. 16:00.
Hefðbundinn vinnudagur hjá öðrum.
Árshátíð
Búið er að gera skjal á drive sem heitir Árshátíð 2016. Þar eru kennarar beðnir um að setja inn hvaða atriði þeir ætla að hafa og hverjir sjái um hvert atriði.
Um okkur
Email: kristin@oddeyrarskoli.is
Website: oddeyrarskoli.is
Location: v/ Víðivelli
Phone: 4609550
Frank Sinatra - White Christmas