Stiklur
tvær vikur í fyrsta sunnudag aðventu...#spádómskertið
Næsta vika
Dagur íslenskrar tungu
Olweus
Nú síðar í nóvember verður síðan lögð fyrir alla nemendur 5. - 10. bekkjar árleg Olweusar könnun, ég mun koma lykilorðum og upplýsingum til umsjónarkennara fljótlega.
Útís 2019
Tímarnir breytast og mennirnir með...
"Allt er í heiminum hverfult", kvað áðurnefndur Jónas Hallgrímsson. Þetta eru orð að sönnu og á sérstaklega vel við í skólum...ekki síst á öldinni eftir gervihnattaöldinni...þar sem tíminn leið svo hratt.."Hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld".
Það er öllum mikilvægt, hvaða starfsstétt sem þeir tilheyra, að fylgjast vel með umhverfi sínu; breytingum, nýjungum, þróun o.þ.h. Veraldarvefurinn góði er uppspretta ýmislegs góðgætis. Barabyrja.is er dæmi um vefsíðu þar sem kennir ýmissa grasa, mest fyrir kennara, en líka fyrir aðra.
Byrgjum brunninn, bjargráð og forvarnir
Dagskrá
13:00 Setning Ragnar Þór Pétursson formaður Kennarasambands Íslands
13:05 Streita og streitutengd vandamál. Nýjustu rannsóknir um orsakir, afleiðingar og úrræði. Prófessor INGIBJÖRG H. JÓNSDÓTTIR forstöðumaður, Institutet för stressmedicin, Gautaborg.
14:20 Kaffihlé
14:45 Tökum þetta á seiglunni - eða hvað? Ingibjörg Loftsdóttir sviðstjóri hjá VIRK
15:15 Að sníða sér stakk eftir vexti, draumavinnuumhverfi leikskólakennara Sigrún Hulda Jónsdóttir leikskólastjóri Heilsuleikskólanum Urðarhóli
15:25 Samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust Leifur Garðarsson skólastjóri Áslandsskóla
15:35 Hlýja, hlustun, hagur - ábyrgð stjórnenda á vinnuumhverfi kennara Lára Stefánsdóttir skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga
15:45 Rými í tíma og rúmi, önnur störf og gæðakennsla Petrea Óskarsdóttir tónlistarkennari í Tónlistarskólanum á Akureyri og Tónlistarskóla Eyjafjarðar
15:55 Lífsgæði, heilsuhegðun og hagnýt bjargráð. Hvernig höldum við hamingju og gleði í krefjandi stöðu? Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur
16:40 Hundur í óskilum
17:00 Ráðstefnuslit