Vikupistillinn
Tímabilið 10 - 16. febrúar 2020
Heilræði vikunnar
Ástin setur öngul sinn í hjarta þér og knýr þig til að skilja að hið sterkasta af öllu sterku, ástin er ómótstæðileg.
Dalai Lama
Hjálpum nemendum okkar að nota gott orðbragð og orðfæri við hvert annað
Punktar
- Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk.
Góð heimasíða sem hægt er varpa upp á skjáinn í stofum.
Hægt er að hafa skilaboð til nemenda, klukku og skeiðklukku, hvað mikið er eftir af tímanum. Líka hvernig veggfóður þið viljið hafa (hægt líka að setja sína eigin mynd/ir). Þá er einnig hægt líka að setja hávaðamörk. https://classroomscreen.com/
- Widgit Online er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar.
- Minnum umsjónarkennara á að skoða ástundun nemenda sinna samkvæmt nýju reglunum. Það er hægt að nálgast allar upplýsingar á vefslóðinni http://innri.hafnarfjordur.is/thjonusta/fraedsluthjonusta/form-og-eydublod/
- Það er mikilvægt að kennarar bregðist skjótt við þegar bjallan hringir inn og fari strax af stað. Því of mikil bið skapar óróa hjá nemendum.
- Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði hefur undirgöngunum við Þorlákstún/Tjarnarvelli og aðliggjandi stígum verið lokað. Sjá nánar.
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt nýju fundaskipulagi ársins
- Frá 1. janúar 2020 eiga starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar rétt á ókeypis skírteini hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Framvísa þarf starfsmannaskírteini við stofnun / endurnýjun bókasafnsskírteinis. Vonandi sjáum við sem flesta starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar nýta sér bókasafnið.
Ytra mat Menntamálastofnunar - skýrslan
Geta má þess að við komum ákaflega vel út úr þessari úttekt og fékk skólinn mikið hrós á mörgum þáttum starfseminnar. Þarna er einnig bent á fjölmörg tækifæri til að gera betur.
Hér má nálgast skýrsluna. Hér eru glærurnar frá kynningunni.
Fyrir 1. mars þarf skólinn að skila umbótaáælun til Menntamálastofnunar. Skipulagsdaginn 19. febrúar ætlum við að stórum hluta að nýta til vinnu umbótaáætlunar.
SMT hugleiðingar
Ofurhvalamiðar:
100 miða leikurinn er komin í gang og SMT fáninn blaktir við hún af því tilefni. Markmið leiksins er að nemendur fari eftir SMT reglum Hvaleyrarskóla. Munið að að áherslan er á almennu svæðin: matsalur, gangar og frímínútur. Gott að hafa í huga þessi atriði:
1. Hrönn skráir niður þá nemendur sem fá ofurhvalamiða og það er nóg fyrir nemanda að fá einn miða. Því er gott að kíkja í bókina hjá Hrönn til að koma í veg fyrir að sami nemandi sé ekki að fá of marga miða.
2. Reyna að dreifa miðunum milli deilda.
3. Best er að koma miðunum út samdægurs.
Mánudagur 10. febrúar
- 100 miða leikurinn heldur áfram.
- Slysavarnarfræðsla fyrir nemendur í 4. bekk í umsjón Írisar skólahjúkrunarfræðings.
- Verið - miðdeild - Karaoke
- Verið - elsta deild - Fröllukvöld
Þriðjudagur 11. febrúar
- Alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Þetta kom frá Heimili og skóli: Hægt er að nálgast ýmislegt efni á heimasíðu okkar, www.saft.is til stuðnings fyrir kennara, góðar hugmyndir og fróðleik um netöryggi fyrir nemendur á öllum aldri. Einnig má finna myndbönd um efnið á Youtube síðu okkar www.youtube.com/saftinsafe auk þess sem við deilum reglulega áhugaverðu efni fyrir fagfólk og foreldra á Facebook síðu okkar: www.facebook.com/saft.iceland
- Söngsamvera.
- Nemendur í 8., 9. og 10. bekk taka könnunina Ungt fólk 2020 kl. 12:40 í heimastofum.
- Á fundatíma er kennarafundur í fyrirlestarsalnum.
- Kynning á framhaldsskólunum verður í Tækniskólanum í Hafnarfirði, fyrir nemendur í 10. bekk kl. 17:00 - 18:30.
Miðvikudagur 12. febrúar
- Söngsamvera
- Fundur hjá nemendaverndarráði kl. 14:05 í fundarherberginu.
- Verið - miðdeild - Crash Team Racing mót.
- Verið - elsta deild - Finish the lyrics.
Fimmtudagur 13. febrúar
- Heimanámsaðstoð Rauða krossins hefst kl. 13:20 á bókasafninu.
- Fundur hjá einelstisteymi kl.14:00 hjá námsráðgjafa.
- Á fundatíma eru Olweusfundir starfsfólks.
Föstudagur 14. febrúar
- Verið - elsta deild - Bíókvöld.
Corona veiran
Handþvottur er okkar besta vörn gegn smiti corona veirunnar en það á líka við almennt um aðra smitsjúkdóma líka svo sem inflúensuna, magakveisur, og augnsýkingum svo eitthvað sé nefnt. Þvo þarf hendur með vatni og sápu ef þær eru óhreinar eða búast má við að á þeim séu óhreinindi (svo sem eftir klósettferðir) en handspritt dugar eftir notkun á sameiginlegum snertiflötum s.s. símtól, lyklaborð, hurðarhúnar og slíkt. Endilega skoðið góðar leiðbeiningar hér varðandi handþvott.
Vefur Landlæknis um Corona veiruna.
Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar
Miðasala á árshátíð Hafnarfjarðarbæjar 7. mars næstkomandi er hafin rafrænt á http://arshatid.hafnarfjordur.is – hægt er að nálgast hlekkinn á viðburði á Workplace eða á innri vefnum. Miðasölu lýkur á miðnætti mánudaginn 2 mars.
Dagskrá Versins fyrir febrúar
Líkamsræktarstyrkur
Eru ekki allir byrjaðir í líkamsrækt á nýju ári?
Hafnarfjarðarbær styrkir sitt starfsfólk um kr. 12.000,- til líkams- og heilsuræktar.Skila þarf útfylltu eyðublaði til skólastjóra ásamt kvittun fyrir útlögðum kostnaði.
Olweus - nemendaviðtöl
Aðgangur grunnskóla Hafnarfjarðar að Snöru
Fréttir frá Bjargi
Starfsmannamál
- Þórunn Áslaug Harðardóttir er komin úr fæðingarorlofi og er í 80% stöðuhlutfalli.
- Grétar er að hluta farinn í feðraorlof en hann mun halda áfram að kenna nemendum í 10. bekk og er í um 30% stöðuhlutfalli.
- Helga Eyja er að koma inn úr veikindaleyfi og byrjar á að vera á miðvikudögum og fimmtudögum.
- Guðmundur Ingi sem kennir stærðfræði í 10. bekk og hefur verið að leysa Aðalstein af fyrir Helgu Eyju en hann mun halda áfarm að kenna nátturugreinar á mánudögum og þriðjudögum. Þá hefur hann tekið við að kenna litlum hópi nemenda íslensku í 10. bekk.
- Alda er í veikindaleyfi út febrúar. Til að leysa hana af höfum við fengið til liðs við okkur Orra Sigurjónsson en hann er sonur Þórunnar ritara.
Íslensk þýðing er á Sameign: S:\Sérgreinar\Dyslexía-myndband
Opnað hefur verið fyrir skráningar á febrúarnámskeið fyrir grunnskólakennara á höfuðborgarsvæðinu
Í febrúar 2020 er grunnskólakennurum boðið upp á endurmenntunarnámskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru af ýmsum toga og miða að því að færa aðferðir og skipulag í kennslu sem styður við nám fyrir alla.
FEBRÚAR námskeiðin eru:
3. Kami og Google lausnir í einstaklingsmiðuðu námi: Fimmtudagar 6. og 13. febrúar og 12. og 19. mars kl. 14-16.
4. Skapandi stærðfræði: Laugardagar 8. og 15. febrúar kl. 9-13.
5. Að stýra samræðu í skólastofunni: Mánudagur 10. febrúar kl. 14-16.
6. Microsoft Small Basic forritun: Þriðjudagur 11. febrúar kl. 14.30-16.30.
7. Teymiskennsla- skipulagning innan teymis: Miðvikudagar 12. og 26. febrúar kl. 14.30-16.30.
8. Heimspekileg samræða í almennri bekkjarkennslu: Mánudagur 24. og þriðjudagur 25. febrúar kl. 14-17.
Nánari lýsing á einstaka námskeiðum og vefslóð á skráningu: http://ssh.menntamidja.is/kennslufraedi/vornamskeid-2020/ eða í gegnum forsíðu ssh.menntamidja.is vefjarins.
Afmælisdagar í febrúar
Wendy 8. febrúar, Kristinn og Ægir þann 15. febrúar og Dísa 28. febrúar. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Heimsókn í 8. SB
Heimsókn í 8.GB
Flautuleikur á samveru
Frímínútur
Samvera í miðdeild
Samvera hjá 2. HSJ
Á döfinni í janúar og febrúar
- Skólapúlsinn – úrtak nemenda.
- Stjórnendur koma í innlit í kennslustundir.
- 100 miða veisla verður 18. febrúar.
- Úrslit stóru upplestrarkeppninnar í Hvaleyrarskóla þriðjudaginn 25. febrúar.
- Skipulagsdagur 19. febrúar.
- Vetrarfrí 20. og 21. febrúar.
- Öskudagur 26. febrúar, kennt til hádegis.
- Netöryggi barna og unglinga, fræðsla fyrir nemendur í 5. - 10. bekk, Eyjólfur Örn kemur þann 27. febrúar.
- Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar, laugardaginn 7. mars.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200