Vikupóstur
27. janúar - 7. febrúar 2020
Kæra samstarfsfólk
Til að byrja með vill Heimir þakka fyrir hönd karlpunganna í skólanum fyrir þetta glæsileg kökuhlaðborð í tilefni bóndadags. Það verður aldeilis stjánað við konurnar í tilefni konudagsins í lok mars :)
Töluvert hefur verið rætt um matarsóun á teymisfundum. Biðjum við ykkur sem eruð að vinna og borða inn í matsal að fylgjast með skammtastærðum barnanna og grípa inn í ef ástæða þykir til.
Í upphafi nýs árs þykir okkur við hæfi að minna á samninginn okkar varðandi mataráskrift starfsfólks. Þ.e.a.s að þeir sem að borða með börnunum og hafa afskipti af þeim fá frítt að borða. Ef starfsmaður velur að borða inn á kaffistofu þarf sá hinn sami að skrá sig í mat hjá Kristjönu.
Útivistardagur Naustaskóla í fjallinu verður þriðjudaginn 17. mars og það verður pottþétt sól og blíða!
Við minnum á dag stærðfræðinnar 7. febrúar og á þeim degi mun hver árgangur fá stærðfræði verkefni frá Þóru og Stínu sem allir geta leyst. Viðburðanefndin bað þær um að redda þessu :). Einnig hvetjum við teymin til þess að vinna saman á þessum degi.
Viðtalsdagar eru 27. – 28. janúar og frístund verður opin allan daginn fyrir þá sem skrá sig. Inn á samgögnum er bæði viðtalsrammi og þar er einnig skjal með aðsetur hvers kennara. S:\Starfsfólk\2019 - 2020\Foreldraviðtöl-
Minnum á sushi kvöldið næsta föstudagskvöld. Það verður stuð!
Góða helgi!
Bryndís, Alla og Heimir.
Mánudagur 27. janúar
Viðtalsdagur (frístund er opin)
Leyfi:
Þriðjudagurinn 28. janúar
Viðtalsdagur (frístund opin)
Kennarafundur fellur niður
Leyfi: Hrafnhildur
Miðvikudagurinn 29. janúar
Geðfræðsla 9:50-10:30 í Naustaskóla fyrir 9.bekk
Leyfi: Hrafnhildur
Fimmtudagur 30. janúar
Fræðslufundur: samráðsfundur unglingadeildar og 6. – 7. bekkjar.
Samráðsfundur 1. – 5. bekkjar um kennsluhætti, dagsskipulag, notkun tölva og ipada o.fl. Gott að læra hvort af öðru.
Leyfi:
Föstudagur 31. janúar
Fræðsla 8.bekk klukkan 8:10. Sigga Dögg
Sushi gleði í boði unglingadeildar klukkan 17:00-21:00. Allir að mæta J
Leyfi: Aníta
Mánudagur 3. febrúar
Bendill lagður fyrir 10.bekk
Þriðjudagur 4. febrúar
Skóladagatal, hvernig eflum sjálfstæði nemenda í námi
Miðvikudagur 5. febrúar
7.bekkur 8:50-9:30 Vape fræðsla í Naustaskóla
Leyfi: Kolla Sigurgeirs
Fimmtudagur 6. febrúar
7.bekkur 8:50-9:30 Vape fræðsla í Naustaskóla
Dagur leikskólanna
Leyfi: Sandra
Föstudagur 7. febrúar
Dagur stærðfræðinnar – hvert teymi undirbýr skemmtileg stærðfræðiverkefni fyrir þennan dag. Hvetjum teymin til að ræða um samstarf á undirbúningi á þessum degi.
Leyfi: