HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 9. TBL
DAGSKRÁ 31. okt. - 4. nóv.
MÁNUDAGUR 31. október
Nemendaverndarráðsfundur í BS kl. 8:30
ÞRIÐJUDAGUR 1. nóvember
Nemendaverndarráðsfundur í HS kl. 8:15
MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember
Fagfundur í BS náttúrufræði
Sameiginlegur kennarafundur í BS kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 3. nóvember
Stjórnendafundur í HS kl.15:00
FÖSTUDAGUR 4. nóvember
Söngur á sal í Hs
Fyrirlestur fyrir 9. og 10. bekk og foreldra þeirra seinni partinn
Áhugaverð atriði næstu vikur
- 4. nóv. Sigga Dögg kynfræðingur verður með fyrirlestur fyrir 9. og 10.bekk og foreldra þeirra seinni partinn
- 4. nóv. söngur á sal í Hs
- 7. - 11. nóv. Vinavika verður haldin hátíðlega, til að brjóta upp rútínuna.
- 8. nóv. Dagur jákvæðra samskipta: Baráttudagur gegn einelti
- 16. nóv. Dagur íslenskrar tungu
- 17.- 18. nóv. Starfskynning í 10. bekk
- 24. nóv. Þorgrímur Þráinsson kemur með fyrirlestur fyrir 10.bekk.
- 9. des. Jólamatur: Í ár verður jólamatur starfsfólks GRV hjá Einsa Kalda. Takið daginn frá.
Tilkynningar !!
- Fagstjóra vantar í samfélags- og náttúrufræðigreinar í HS
- Aðalfundur kennarafélags Vestmannaeyja verður mánudaginn 31. október í sal Barnaskólans kl. 14:30. Gestur frá stjórn FG mætir á svæðið.
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
- Kennarar líka hvattir til að nota myllumerkið #kennarar á sínum samskiptasíðum (instagram, facebook)
- Lesið við sama borð - Breyttur tími, er núna þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00. Sjálfboðaliðar aðstoða erlenda nemendur skólans við lestur og heimanám. Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð. Þátttaka hefur verið frekar dræm nú í vetur, megum ekki láta þessa aðstoð falla niður.
Afmælisbörn vikunnar
Jóhanna Alfreðsdóttir 29. október
Anna Lilja Tómasdóttir 30.október
Íris Huld Gunnarsdóttir 1. nóvember
Þóra Sigríður Sigurðardóttir 2. nóvember
Jarl Sigurgeirsson 3. nóvember
Hrós vikunnar fá
Uppskrift vikunnar - Graskers og eplasúpa
Graskers og eplasúpa með pistasíuhnetum
1 ílangt grasker (butternut squash)
4 græn epli
1 laukur, smátt skorinn
smjör, ólífuolía
4 bollar kjúklingasoð (1 bolli ca. 240 ml) ég lét 1 og 1/2 tening í þetta magn af vatni
1-2 msk karrý
1/2 tsk chillí duft
salt, pipar
sítrónusafi, kóríander (má sleppa)
sýrður rjómi
pistasíuhnetur (eða þær hnetur sem þið eigið eða líkar við)
Aðferð
- Afhýðið graskerið og fjarlægið steinana, skerið í teninga. Afhýðið eplin og kjarnahreisið og skerið einnig í teninga. Látið í skál, hellið smá olíu yfir og blandið vel saman. Látið inní 200°c heitan ofn þar til orðið mjúkt ca. 20-30 mínútur.
- Látið í pott 1 msk smjör og 1 msk olífuolíu og látið í laukinn, karrý og chillípipar. Látið vera við mjögvægan hita í ca. 15 mínútur.
- Takið eplin og graskerið og látið í blandara og maukið vel (ef þið viljið hafa súpuna aðeins grófari er hægt að taka nokkra epla og graskersbita frá, skera niður og bæta útí í lokin).
- Hellið soðinu í blandarann og hrærið saman.
- Hellið blöndunni útí pottinn með lauknum og hrærið vel saman. Bætið við kóríander og kreistið smá sítrónu (ca. 1 sítrónubát). Kryddið eftir smekk.
- Setjið í skálar og bætið við sýrðum rjóma og hnetum.
Spakmæli vikunnar
Vissir þú um lestur ... 4
Vissir þú um lestur ... 5
Vissir þú um lestur ... 6
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.