FRÉTTABRÉF GARÐASKÓLA
Ágúst 2015 - 39. árgangur - 1. tölublað
Velkomin til starfa
Kæru nemendur, forráðamenn og starfsfólk í Garðaskóla.
Skólastarf hófst með miklum krafti í síðustu viku. Nemendum skólans hefur fjölgað um 30 frá síðasta hausti og nú stunda tæplega 480 nemendur nám við Garðaskóla. Þessi fjölgun er ánægjuleg en hún var ekki fyrirséð við skipulag skólaársins. Margir námshópar eru því orðnir fjölmennir og skólastjórnendur huga að aðgerðum vegna þessa.
Að venju er fjölbreytt starf framundan. Námfús verður áfram í þróun sem samskiptavettvangur skóla og heimilis. Áhersla verður lögð á að efla læsi innan allra námsgreina og yndislesturinn heldur áfram í því formi sem tekið var upp í janúar síðastliðnum. Í Garðaskóla lesa allir texta að eigin vali í 20 mínútur á dag, tíminn færist milli kennslustuna í hverri viku og er auglýstur á skóladagatali.
Við skólasetningu lagði skólastjóri áherslu á mikilvægi góðrar ástundunar til að ná árangri í náminu. Viðvera nemenda er grunnforsenda þess að vel gangi í skólanum og við biðjum forráðamenn að sýna ábyrgð þegar kemur að leyfisbeiðnum og öðru aðhaldi heima við vegna skólasóknar.
Með samstarfskveðju,
Brynhildur Sigurðardóttir, skólastjóri Garðaskóla
Kynningarfundir foreldra
Forráðamenn nemenda í 8. bekk hittu umsjónarkennara daginn fyrir skólasetningu. Forráðamönnum 9. og 10. bekkinga er boðið til kynningarfunda fimmtudaginn 3. september kl. 8.10-9.00. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta, hitta kennarann í upphafi skólaárs og spjalla við aðra foreldra.
Gildi Garðaskóla
Kjarninn í skólabrag Garðaskóla birtist í fjórum gildum skólans:
Frelsi
Ábyrgð
Vellíðan
Árangur
Jafnvægi milli frelsis og ábyrgðar er forsenda þess að nemendum líði vel og nái góðum árangri í námi og öðru starfi skólans. Nánar má lesa um gildi Garðaskóla á heimasíðu skólans.
Samskipti og skólaandi
Samskipti og skólaandi er bæklingur sem fjallar um þau viðhorf og vinnubrögð sem lög eru til grundvallar skólastarfinu í Garðaskóla. Þar má meðal annars lesa um hugmyndir Uppbyggingar-stefnunnar og tekin dæmi um hvernig þær eru útfærðar í daglegu starfi nemenda og starfsfólks. Gengið er út frá því að fólk komi ánægt og einbeitt til starfsins í skólans og sýni ábyrgð á verkum sínum og framkomu. Hægt er að nálgast bæklinginn á vef Garðaskóla og eru nemendur hvattir til að skoða hann vel.
Frá stjórn Foreldrafélags Garðaskóla
Kæra foreldri/aðstandandi. Já.... nú er skólinn að hefjast á ný..... eftir vonandi frábært sumar.
Vilt þú að barninu þínu líði vel í skólanum?
Vilt þú að barninu þínu gangi vel í skólanum?
Vilt þú að barnið þitt eignist góða félaga í skólanum?
Rannsóknir hafa sýnt og sannað, að með því að taka þátt í foreldrastarfi skólans tryggir þú einmitt betri líðan barns þíns og betri árangur. Er þetta þá nokkur spurning? :)
Mikið hefur áunnist að undanförnu í málefnum Garðaskóla og uppi eru frekari breytingar á skólamálum landsmanna. Því auglýsum við hér með eftir sterkum, jákvæðum og úrlausnaglöðum aðilum til að taka þátt í vinnu með okkur um málefni og hagi barnanna okkar. Hægt er að líta á þetta sem kjörið tækifæri til að spreyta sig í almannatengslum, fundarstjórnun, skipulagningu og dreifingu verkefna.
Hafir þú áhuga og eldmóð biðjum við þig um að gefa þig fram við umsjónarkennara bekkjarins og láta hann vita að þú hafir áhuga á að taka þátt sem bekkjarfulltrúa (undirbúa tvo bekkjarviðburði á ári) og/eða sem þátttakanda í stjórn foreldrafélaginu (skemmtilegir kaffi/te/kakó fundir ca. eitt kvöld í mánuði).
Við hlökkum til að heyra frá þér frábæra foreldri/aðstandandi.
Kveðja frá stjórn Foreldrafélags Garðaskóla
Námfús
Áfram verður notast við Námfús á komandi skólaári en þar geta forráðamenn og nemendur m.a. nálgast upplýsingar um daglegt skólastarf, verkefni og próf og samskipti við kennara. Ennþá verður unnið að úrbótum í vetur til að námsvefurinn standi undir öllum þeim kröfum sem skólinn gerir til hans. Við biðjum nemendur og forráðamenn að beina öllum athugasemdum til umsjónarkennara, sem koma þeim áfram til vefumsjónarmanns.
Allir nemendur og forráðamenn eiga að fá sent lykilorð í tölvupósti til að komast inn á vefinn. Ef lykilorð hefur af einhverjum ástæðum ekki borist skal hafa samband við Hildi Rudolfdóttur, kennsluráðgjafa (hildurr@gardaskoli.is) með upplýsingum um fullt nafn og netfang (sem og nafn og bekk nemanda, ef um aðstandanda er að ræða).
Við minnum á að mikilvægt er að fara yfir tengiliðaupplýsingar í Námfús, svo sem símanúmer, heimilisfang og netföng aðstandenda. Skráðir aðstandendur geta breytt og bætt við upplýsingum eftir þörfum.
Upplýsingamál og netstefna Garðaskóla
Garðaskóli vinnur markvisst að því að auka þátt upplýsingatækni í skólastarfi og hvetur nemendur til að nýta sér tækjabúnað og þráðlaust net skólans við nám sitt og undirbúning fyrir framtíðina. Til að tryggja öruggt tölvuumhverfi hefur skólinn mótað tölvu- og netstefnu í samráði við Tölvudeild Garðabæjar. Þessi stefna er sett fram með það að markmiði að notendur temji sér góða siði er varðar umgang og notkun á tækjabúnaði og neti.
Á vefsíðu Garðaskóla eru upplýsingar um starf skólans alltaf aðgengilegar. Í upphafi skólaárs er gott að líta á eftirfarandi:
Punktakerfi um ástundun og hegðun
Náms- og starfsrágjöf
Náms- og starfsráðgjöf í Garðaskóla er fræðsla eða ráðgjöf sem veitt er einstaklingi eða hópi við val á námsleiðum eða störfum.
Ráðgjöfin miðar að því að nemendur efli og þroski þekkingu á sjálfum sér, námsleiðum, störfum og atvinnulífi til að auðvelda ákvörðun um nám eða starf að loknum grunnskóla.
Aðstoð námsráðgjafa felst m.a. í:
viðtölum
upplýsingum og upplýsingaöflun um skóla, nám, störf og atvinnulíf
könnun á áhugasviðum, gildismati, hæfileikum o.fl.
að kenna leikni við ákvarðanatöku
að kunna að afla sér upplýsinga sem nýtast við val á námi eða starfi
Garðaskóli tekur þátt í verkefninu ,,Gegn einelti í Garðabæ” sem er samstarfsverkefni grunnskóla bæjarins. Markmið verkefnisins er að koma á samræmdum vinnubrögðum til að fyrirbyggja og bregðast við einelti, bæta líðan og öryggi nemenda og skólabraginn í heild. Í eineltisáætlun Garðabæjar er birt skilgreining á einelti, hvernig starfsmenn eiga að bregðast við og vinna með það. Allir starfsmenn skólans taka þátt í verkefninu.
Í skólanum er starfrækt eineltisteymi sem situr einnig í verkefnastjórn „Gegn einelti í Garðabæ“.
Ef grunur vaknar um einelti gagnvart þínu barni eða öðrum er mikilvægt að vitneskja um það berist til skólans sem fyrst. Einelti ber að tilkynna með formlegum hætti og með því að fylla út þar til gert eyðublað. Farið er eftir ákveðnu vinnuferli í meðferð eineltismála.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf á heimasíðunni.
Námsráðgjafar í Garðaskóla eru Ásta Gunnarsdóttir og Auður Sigurðardóttir.
Upplýsingar um viðtalstíma námsráðgjafa eru veittar á skrifstofu skólans í sími 590 2500.
Nýir starfsmenn í Garðaskóla
Ásta Huld
Heiða Lind
Hildur
Hildur Rudolfsdóttir starfar sem kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni. Hún er nýútskrifuð úr mastersnámi í hönnun á upplýsingatækni en þar áður starfaði hún sem kennari á unglingastigi í Kelduskóla í Grafarvogi.
Hilmar Þór
Hæ! Ég er 27 ára gamall nýútskrifaður sagnfræðingur og kennari. Aðfluttur Garðbæingur úr Breiðholtinu og knattspyrnuþjálfari hjá Stjörnunni til þriggja ára. Kenndi áður hjá Sjálandsskóla.
Rúna Björk
Garðalundur
Garðalundur heldur uppi félagslífi unglinganna í Garðaskóla og náið samstarf er á milli skólans of félagsmiðstöðvarinnar. Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar hefst um miðjan september og er auglýst jafnóðum á vefsíðu Garðalundar, sem og fésbókarsíðu Nemendafélagsins. Skipulag dagskrár er í höndum nemenda í félagsmálafræði og starfsmanna Garðalundar. Kvöldstarfið er ætlað nemendum í 8.-10. bekk og eru reglur um samskipti og umgengni samræmdar milli Garðalundar og Garðaskóla.
Beinn sími félagsmiðstöðvarinnar er 590-2575.
Netfangið er gardalundur@gardalundur.is
Forstöðumaður Garðalundar er Gunnar Richardson.
590-2570
Skólaþróun Garðaskóla 2015-2016
Stefna skólans er að styðja við þá kennara sem vilja sækja um styrki vegna þróunarverkefna. Garðaskóli hefur staðið að ýmsum þróunarverkefnum í gegnum tíðina.
Meðal þeirra þróunarverkefna sem starfsmenn Garðaskóla taka þátt í á skólaárinu eru:
Læsi til náms – Flestar fagdeildir taka þátt í verkefni sem stýrt er af Guðnýju Þóru Friðriksdóttur deidlarstjóra Námsvers. Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir sérfræðingur hjá Skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri leiðbeinir. Verkefnið er kostað með styrk úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla.
Þróun námsmats í Garðaskóla – Allar fagdeildir þurfa að ljúka endurskoðun á námsmatsaðferðum í Garðaskóla og koma ákvæðum Aðalnámskrár í verk fyrir útskrift 10. bekkinga vorið 2016. Ingibjörg Anna Arnarsdóttir aðstoðarskólastjóri stýrir.
Velferð barna og ungmenna í Garðabæ – Verkefnið felst í samstarfi allra grunnskóla í Garðabæ undir hatti Menntaklifsins um að innleiða verklag vegna gruns um ofbeldi eða áhættuhegðun barna og ungmenna í bænum. Einnig er í verkefninu hugað að forvörnum og fræðslu á sviði velferðar barna og ungmenna. Stýrihópur um velferð stýrir verkefninu innan skólans. Verkefnið er kostað með styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar.
SKÍN: Þróun kennsluhátta og innra mats – Verkefnið er unnið undir hatti Menntaklifsins og felst í samstarfi Garðaskóla við Hofsstaðaskóla og Shoeburyness High School í Bretlandi. Brynhildur Sigurðardóttir skólastjóri stýrir framvindu í Garðaskóla. Verkefnið er kostað með styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar og Sprotasjóði Mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Erasmus+ – Halla Thorlacius fer fyrir enskudeildinni og stýrir verkefninu Frá hugmynd til afurðar með samstarfsteymi sínu í Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Finnlandi og Grikklandi. Í Garðaskóla munu list- og verkgreinakennarar koma að samstarfinu og nýta þar hugmyndir sem kennarar fengu í verkefninu Frá frumkvæði til framkvæmdar sem unnið var undir hatti Menntaklifsins skólaárið 2014-2015.
Ýmis önnur verkefni falla líka undir þróunarstarf og eru unnin af einstökum starfsmönnum eða hópum. Þar má meðal annars nefna framhald vinnu notkun á Námfúsi, vinnu við nýtingu spjaldtölva í kennslu, þróun námskrár í samræðuþjálfun, þróun námskrár í lífsleikni, uppbyggingu speglaðrar kennslu í stærðfræði og náttúrufræði, eflingu starfsfræðslu með sérstaka áherslu á iðn- og tæknigreinar.
Garðaskóli
Kl. 7:30-15:00 mán-fim
Kl. 7:30-14:30 fös
Starfsmenn skrifstofu:
Anna María Bjarnadóttir ritari
Svanhildur Guðmundsdóttir
Email: gardaskoli@gardaskoli.is
Website: www.gardaskoli.is
Phone: 590-2500