Stiklur
Þorri hálfnaður
Vika sjö
En í henni eru fertugasti og annar til fertugasti og áttundi dagur ársins, sem þýðir að í dag föstudag eru ekki nema þrjúhundruð og nítján dagar eftir af árinu, góðu fréttirnar eru þær að þetta eru ekki allt mánudagar.
Hápunktur vikunnar var ekki 6-0 tap hjá Höskuldi...heldur "Milljarður rís", dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi, sem fór fram í íþróttahúsinu í gær. Skemmtileg og fjörug stund...
Starfsmannafundur
Fundaþriðjudagurinn að þessu sinni verður helgaður starfsmannafundi. Við lítum aðeins á skóladagatal komandi árs og rennum yfir það sem framundan er.
KVAN
Á mánu- og þriðjudaginn verðið þið væntanlega vör við kunnuglegt andlit,...eða ekki..., á göngum skólans en þá verður Vanda Sigurgeirsdóttir hér. Hún ásamt nokkrum öðrum rekur fyrirtækið KVAN: Kærleikur - Vinátta - Alúð – Nám, vera hennar hér núna tengist vinnu með 8. bekk.
Starfsþróunarviðtöl
Starfsþróunarviðtölin ganga ágætlega, þar sem ég verð ekki heima fyrstu viku góu eða lokaviku febrúar væri gott að geta klárað kennarahópinn í næstu viku, en auðvitað gengur byrjun mars einnig. #komaogfátíma:)
Snjallsímabannið
Lítið hefur borið á símum uppi við að undanförnu og er það gott...gæsluaðilar hafa staðið sig vel í að minna nemendurna á..ef þeir gleyma sér...og látið mig vita...ef þeir gleyma sér oft og ítrekað :) ...önnur smá vandamál hafa komið upp...en höfum ekki áhyggjur af því í augnablikinu... framundan er nefnilega helgi og vonandi njótið þið hennar... :)
Föstudagspotturinn
Því miður komst ég ekki með í pottapartýið í sundlauginni...en þessar myndir voru að berast úr gleðinni... :)