Kópavogsskóli
Samstarf leik- og grunnskóla
Ágætu foreldrar/ forráðamenn barna sem hefja grunnskólagöngu í Kópavogsskóla haustið 2017.
Í fréttapistli þessum er fjallað um það sem framundan er í samstarfi leikskóla og Kópavogsskóla. Hér koma einnig fram upplýsingar varðandi skráningu í grunnskóla og heimsóknir foreldra og nemenda.
Upplýsingar um dægradvöl koma fram aftast í þessum pistli en það er starfsemi sem sér um lengda viðveru nemenda eftir að skólatíma lýkur.
Vonum við að upplýsingarnar reynist ykkur vel og verði til þess að öryggi ykkar og barna ykkar skapist um skólaskiptin og þær breytingar sem þeim fylgja. Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum ykkur velkomin í Kópavogsskóla.
Vinátta- Virðing - Vellíðan
Sjáumst í skólanum!
Bergþóra Þórhallsdóttir deildarstjóri
Móttökuáætlun
Fyrsta heimsókn:
Nemendur mæta í sal skólans þar sem þeim verður skipt upp í tvo hópa. Þau fá kynningu á Dægradvöl hjá forstöðumanni og fá að leika sér þar í nokkra stund. Gengin verður kynningarganga um skólann með deildarstjóra yngsta stigs. Nemendur fá ávaxtahressingu í þessari heimsókn.
Heimsóknin er áætluð föstudaginn 17. mars kl 10:00 - 11:00. Hópnum verður tvískipt.
Önnur heimsókn:
Nemendur mæta í skólann og nú fá þau tækifæri til að spreyta sig í kennslustund með hluta af núverandi 1. bekk. Þau vinna létt verkefni og fá sérstaka kynningu
i matsal skólans. Nemendur fá að borða í þessari heimsókn og fara til baka að afloknum matartíma.
Heimsóknin fer fram annars vegar mánudaginn 27. mars kl. 10:00 - 11:20 Skólatröð/ Urðarhóll og hins vegar föstudaginn 31. mars kl. 10:00 - 11:20 Kópahvoll. Foreldrar nemenda af öðrum leikskólum skipuleggja heimsókn annan hvorn þessara daga í samráði sín á milli. Þar sem leikskólar koma því ekki við að senda starfsmann með í heimsókn mælum við með því að foreldrar komi sjálfir eða hafi samráð sín á milli um að koma börnum af sama leikskóla í heimsóknirnar.
Nemendur mæta í suðurinngang við íþróttahús. Þar taka kennarar á móti hópnum og vísa þeim leiðina í stofur.
Þriðja heimsókn:
Í þessari heimsókn, sem er sú síðasta í röðinni, fá nemendur tækifæri til að spreyta sig í íþróttatíma í íþróttahúsi skólans. Þau fá kynningu á búningsklefa og íþróttasal. Nemendur mæta í íþróttaklæðnaði innan undir öðrum fatnaði. Íþróttakennarar taka á móti hópunum. Nemendur fara heim að afloknum íþróttatíma. Íþróttatíminn fer fram í byrjun maí mánaðar. Nánar auglýst síðar.
Við hvetjum samstarfsleikskóla og foreldra til þess að nýta tækifærið í heimsóknunum eða utan þeirra að skoða skólalóðina og reyna hana með væntanlegum nemendum.
Fylgist með á vefsíðu og/eða á Facebooksíðu skólans.
VORSKÓLI í maí
Síðari vorskóladaginn 23. maí verður foreldrafundur kl. 15:15 - 16:00 í sal skólans. Þar verður farið yfir væntanlegt skipulag skólastarfsins og stjórnendur svara spurningum foreldra.
Innritun í Kópavogsskóla
Dægradvöl Kópavogsskóla
Dægradvöl er með lokaða facebooksíðu þar sem samskipti fara m.a. fram milli Dægradvalar og heimila nemenda.
Um okkur
Foreldrum/forráðamönnum er velkomið að hafa samband um frekari upplýsingar um skólastarfið.
Email: kopavogsskoli@kopavogur.is
Website: http://www.kopavogsskoli.is/
Location: Kópavogur, Iceland
Phone: 441 - 3400
Facebook: https://www.facebook.com/kopskoli
Twitter: @kopskoli