HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 15. TBL
DAGSKRÁ 12. DES. - 6. JAN.
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER
Nemendaverndarráðsfundur í Bs kl. 9:20
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER
Nemendaverndarráðsfundur í Hs kl. 14:00
Jólasundmót hjá 6. og 7.bekk
Stjórnendafundur í Bs kl. 15:00
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER
Sævar Helgi kemur í heimsókn í skólann, sjá auglýsingar á kaffistofum
Tónleikar Litlu lúðrasveitarinnar fyrir 1. - 5. bekk í íþróttahúsinu kl. 11:15
Enginn kennarafundur
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER
Stjórnendafundur kl. 14:30 í Hs
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER
Takk fyrir vikuna og góða helgi
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER
Litlu jól hjá 5. -10. bekk
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER
Litlu jól hjá 1. -5.bekk
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR
Starfsdagur - fundur kl. 8:15 í sal Hs
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR
Skólahald hefst aftur skv. stundaskrá.
Kennarafundur í BS.
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR
Þrettándinn, Góða helgi og takk fyrir vikuna.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Sævar Helgi Bragason stjörnufræðigúru er væntanlegur í heimsókn til okkar 14. des. Plan verður sent í tölvupósti og á skjá á kaffistofu.
- Jólapeysur - hvetjum starfsfólk til að klæðast jólapeysum við hvert tækifæri í desember.
- 13. des. Jólasundmót hjá 6. og 7. bekk kl. 9:00, nemendur í 5. bekk horfa á.
- Tónleikar Litlu lúðrasveitarinnar verða 14. des. fyrir 1. - 5. bekk í Íþróttahúsinu.
- Helgileikurinn verður sýndur í Landakirkju sunnudaginn 18. des., á Hraunbúðum 19. des. sama dag verða sýningar fyrir nemendur í 1. - 4. bekk.
- Litlu jólin hjá 5. -10. bekk verða seinnipart þann 19. desember.
- Litlu jólin hjá 1. - 4. bekk verða þann 20. desember.
Tilkynningar !!
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
- Lesið við sama borð - Breyttur tími, er núna þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00. Sjálfboðaliðar aðstoða erlenda nemendur skólans við lestur og heimanám. Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð.
- Skólahald hefst aftur eftir jólafrí miðvikudaginn 4. janúar 2017. Kennarar og annað starfsfólk mætir hinsvegar til vinnu þriðjudaginn 3. janúar. Það er starfsdagur.
Afmælisbörn
Eyvindur Ingi 13. des.
Sigurjón Eðvarðsson 14. des.
Anna Rós Hallgrímsdóttir 17. des.
Rut Ágústsdóttir 21. des.
Unnur Katrín 26. des.
Jóhanna María Hafsteinsd. 28. des.
Ásdís Steinunn Tómasdóttir 30. des.
Guðný Jensd. 1. jan
Arna Björg Sigurbjörnsd. 5. jan.
Hrós vikunnar fá
Starfsmannafélagið fyrir að sjá um skipulagningu á jólamatnum
Uppskrift vikunnar - Ávaxtakonfekt
Þessi uppskrift hefur ekki glútein, egg né hnetur.
Innihald
100 g þurrkaðar aprikósur (þessar brúnu, lífrænt ræktuðu), saxaðar gróft
100 g döðlur, saxaðar gróft
100 g kókosmjöl
25 g kakó
70 g dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri, saxað smátt
2 msk agavesíróp
1 tsk vanillusykur
2 msk kókosolía (má sleppa ef notað er súkkulaði)
Svolítið kakó eða kókosmjöl til að velta kúlunum upp úr (má sleppa)
Aðferð
Saxið súkkulaðið smátt.
Saxið döðlur og aprikósur gróft og leggið í bleyti í 30 mínútur.
Hellið vatninu af (ekki notað) og setjið döðlurnar og aprikósurnar í matvinnsluvél.
Látið vélina vinna í upp undir mínútu þannig að allt blandist vel saman.
Setjið agavesírópið, kakóið, kókosmjölið og saxaða súkkulaðið út í. Blandið í nokkrar sekúndur.
Bætið kókosolíunni út í hér ef hún er notuð og blandið í nokkrar sekúndur.
Hnoðið blönduna aðeins saman með höndunum og setjið svo í skál. Látið skálina standa í ísskáp í 30 mínútur.
Mótið kúlur sem eru 12 grömm að þyngd hver (mega vera stærri eða minni) en mér finnst þetta fín stærð.
Veltið upp úr kókosmjöli, kakói, sesamfræjum o.s.frv.
Gott að hafa í huga
Einnig má sleppa því að setja súkkulaðið inn í kúlurnar og bræða frekar súkkulaði til að dýfa konfektinu ofan í. Best er að bræða súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hitið vatn í potti (bara botnfylli) á vægum hita. Setjið skál ofan í sem situr á brúnum pottsins og brjótið súkkulaðið ofan í. Fylgist með því og hrærið öðru hvoru þangað til nánast bráðnað, takið þá af hitanum. Gætið þess að súkkulaðið ofhitni ekki og að ekki fari vatnsdropi ofan í súkkulaðiskálina.
Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
Nota má carob í stað súkkulaðis og kakós.
Athugið að dökkt súkkulaði inniheldur yfirleitt mjólk, lesið ávallt innihaldslýsingu ef þið eruð með óþol/ofnæmi. Hægt er að nota mjólkurlaust súkkulaði í staðinn.
Spakmæli vikunnar
Roy L. Smith
Vissir þú um Jól ... 4
Vissir þú um Jól ... 5
Vissir þú um Jól ... 6
Íslenska sem annað tungumál - facebook
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.