Vikupóstur
13. - 24. janúar 2020
Kæra samstarfsfólk
Framundan er jákvæðs aga vika og við förum fram á það að allt starfsfólk skólans taki þátt og noti verkfæri jákvæðs aga. Verkfæri vikunnar frá nefndinni er ,, notaðu griðastað ’’. Við hvetjum ykkur til að lesa meðfylgjandi pistil frá Jane Nelsen um griðastað: https://www.positivediscipline.com/articles/positive-time-out-1
Það hafa orðið breytingar í starfsmannahópnum. Svandís er farin í veikindaleyfi og mun Áki Sölvason koma í hennar stað í frístund. Særún er einnig í veikindaleyfi og mun Herdís leysa hana af og Lilja okkar er að koma tilbaka 15. janúar :)
Mjalldís í eldhúsinu mun hætta störfum í dag og mun nýr starfsmaður vera ráðinn fljótlega.
Minnum á að möppuskil eru í vikunni 20. – 24. jan og mikilvægt er að allir sendi heim í þessari viku.
Í pósti í nóvember bað réttindaráð ykkur um að lesa blaðsíður 1 - 16 í handbókinni góðu sem er að finna inn á samgögnum (nau-starfsfólk- réttindaskóli). Það átti að ígrunda vel greinar nr 2, 3 og 12, kynna þær fyrir nemendum og í framhaldi ræða þær á bekkjarfundum. Sé teymi ekki búið að þessu þarf að klára það verkefni í janúar því kannanir verða lagðar fyrir í lok mánaðarins.
Auk þess bað læsisnefnd að næsti mánuður verði helgaður lesskilningi og orðaforða. Við minnum á læsisstefnu Akureyrarbæjar lykillinn.akmennt.is og hérna er sérstaklega um lestur og lesskilning https://lykillinn.akmennt.is/wp-content/uploads/2017/09/Lestur-og-lesskilningur.pdf
Við þökkum ykkur fyrir góða byrjun á nýju ári. Gaman að sjá hvað allir eru ferskir eftir gott jólafrí og höldum galvösk áfram í þetta spennandi skólaár!
Bryndís, Alla og Heimir.
Mánudagur 13. janúar
Vika jákvæðs aga
Alla, Bryndís og Heimir á fundi skólastjóra á Akureyri kl. 14:30
Leyfi: Svietlana, Svandís
Þriðjudagurinn 14. janúar
Vika jákvæðs aga
Stjórnendafundur kl. 9:00 – 10:00
Kennarafundur kl. 14:45 – Teymi 8. - 10. bekkjar kynnir kennsluhætti í þemavinnu – kynning á starfsþróunaráætlun/ endurmenntunaráætlun 2020 – 21. Umræða um skóladagatal næsta skólaárs.
Leyfi: Svandís, Þóra Ýr og Stína í námi í HA e.h.
Miðvikudagurinn 15. janúar
Vika jákvæðs aga
Skólaliðafundur klukkan 9:00
Bryndís á skólastjórafundi kl. 8:00 – 10:00
Leyfi: Svandís
Fimmtudagur 16. janúar
Vika jákvæðs aga
Nemendaverndarráðsfundur kl. 9:00
Leyfi: Svandís
Föstudagur 17. janúar
Stjórnendafundur kl: 9:00 – 10:00
Söngvakeppni félagsmiðstöðva á Akureyri í sal Naustaskóla.
Leyfi: Svandís og Íris
Mánudagur 20. janúar
Í þessari viku eru Möppuskil
Mánudagur 20. janúar
Leyfi: Eva H
Þriðjudagur 21. janúar
Stjórnendafundur kl. 9:00 – 10:00
Nefndarstörf kl. 14.45
Miðvikudagur 22. janúar
Fimmtudagur 23. janúar
Nemendaverndarráðsfundur kl. 9:00
Fundur í skólaráði kl. 15:00
Föstudagur 24. janúar
Stjórnendafundur kl. 9:00 – 10:00
Bóndadagur!
Starfsmannafundur: Fræðsla um ADHD í umsjón sálfræðinga frá Fræðslusviði.