Skólafréttir Urriðaholtsskóla
Desember 2020
Aðventan - hugvekja til ykkar foreldra og forráðamanna
Kæru foreldrar og forráðamenn!
- Hvernig er aðventan hjá ykkur?
- Voru margir að keppast við að gera og græja fyrir jólin um helgina?
- Er einhver streita?
- Var rútínurask?
Það er einlæg ósk okkar í Urriðaholtsskóla að aðventan færi ykkur frið og gleði og að þið náið að njóta vel á þessum fordæmalausu tímum. Spenna og streita heimafyrir fer með börnum í skólann og munum að þessi myrkasti tími ársins er tilvalinn í góðar samverustundir og rólegheit. Upplestur úr góðri bók, spilastund, frjáls leikur er eitthvað sem börn almennt njóta og leyfið ykkur að næra barnið í ykkur sjálfum í leik með börnunum ykkar.
Í skólanum er lagt upp með að hafa skólastarfið á báðum skólastigum afslappað og áreynslulaust. Eðlilega er eitthvert uppbrot en innan skynsemismarka þó. Mantran okkar í desember er RÖÐ - REGLA - RÚTÍNA, hún kemur okkur langt.
Það styttist í komu bræðranna þrettán, þeir mæta a.m.k. til þeirra sem trúa á þá. Við biðjum ykkur að halda því heima sem þeir kunna að færa börnum og hvetjum umboðsmenn þeirra að vera hófsama í gjöfum.
Hér fyrir neðan má finna hagnýtar upplýsingar og fréttamola úr starfinu. Nýjar fréttir um takmarkanir eða tilslakanir í skólastarfi gætu borist í vikunni en við höfum stillt upp því plani að lífið verði óbreytt fram að jólum, uppfærum það ef breytingar verða.
Njótið aðventunnar kæru þið öll,
fyrir hönd okkar allra í Urriðaholtsskóla
Þorgerður Anna
skólastjóri
Verða leikskólabörn í fjölskyldufríi yfir hátíðarnar?
- 23. desember - miðvikudagur
- 28. desember - mánudagur
- 29. desember - þriðjudagur
- 30. desember - miðvikudagur
Vinsamlegast látið ykkar heimasvæðistjóra vita fyrir lok þessarar vikur.
Jólasveinarnir mæta til byggða
Það er með ljóðinu Jólasveinarnir í bókinni Jólin koma sem skáldið Jóhannes úr Kötlum kom jólasveinahefð nútíma Íslendinga í fastar skorður. Samkvæmt þessari hefð eru jólasveinarnir þrettán og koma til manna í þessari röð:
- Stekkjarstaur kemur 12. desember.
- Giljagaur kemur 13. desember.
- Stúfur kemur 14. desember.
- Þvörusleikir kemur 15. desember.
- Pottaskefill kemur 16. desember.
- Askasleikir kemur 17. desember.
- Hurðaskellir kemur 18. desember.
- Skyrgámur kemur 19. desember.
- Bjúgnakrækir kemur 20. desember.
- Gluggagægir kemur 21. desember.
- Gáttaþefur kemur 22. desember.
- Ketkrókur kemur á Þorláksmessu, 23. desember.
- Kertasníkir kemur á aðfangadag, 24. desember.
Skólastarf í desember
10. desember - rauður dagur, allir sem það kjósa mæta í einhverju rauðu eða með eitthvað rautt.
18. desember - jólaskemmtun og hátíðarmatur
Lokað á aðfangadag og gamlársdag. Leikskólastarf hefst að nýju mánudaginn 4. janúar.
Grunnskólastig:
10. desember - rauður dagur, allir sem það kjósa mæta í einhverju rauðu eða með eitthvað rautt.
18. desember - jólaskemmtun og hátíðarmatur - athugið þetta er skertur skóladagur. Tímasetning verður send út í vikunni.
Jólaleyfi grunnskólabarna hefst mánudaginn 21. desember og kennsla hefst að nýju mánudaginn 4. janúar.
Frístund:
Frístund er opin fyrir nemendur í 1.-4. bekk í jólaleyfi. Skráning stendur yfir en henni lýkur föstudaginn 11. desember. Búið er að senda allra upplýsingar á foreldra.
Starfið og mönnun er skipulögð út frá skráningu og því ekki tekið við skráningu eftir 11. desember. Innheimt er sérstaklega fyrir þessa daga.
Opnunartími frístundar í jólaleyfi er frá kl. 8:00 til 16:30.
Lína langsokkur 75 ára
Jólasaga Skröggs - leikhópurinn Vinir
Leikritið var um strákinn Jónatan sem vildi ekki halda jólin en það endaði allt vel þar sem hann hafði eignast fullt af nýjum vinum eins og Grýlu og Jólaálfinn og vildi alveg halda jól. Leikritið vakti mikla lukku, mikið helgið og gleðin alls ráðandi.
Takk kærlega fyrir okkur.
Æfum framkomu og sjálfstraust
Gullkorn inn í daginn
(Og Mandino)
URRIÐAHOLTSSKÓLI ER HNETULAUS SKÓLI
Urriðaholtsskóli
Email: urridaholtsskoli@urridaholtsskoli.is
Website: urridaholtsskoli.is
Location: Vinastræti 1-3, 210 Garðabæ
Phone: 591-9500