HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 10. TBL
DAGSKRÁ 13. NÓV. - 17. NÓV.
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER
Norræn bókasafnsvika, stóri upplestrardagurinn.
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER
Fagfundur í stærðfræði
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER
Fundur með Vöndu Sigurgeirsdóttur fyrir allt starfsfólk.
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER
Dagur Íslenskrar tungu
Stjórnendafundur í BS klukkan 14:30
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER
Skáld í skólum verður í BS fyrir 5.-7. bekk. 5. bekkur fer í heimsókn í BS
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Fyrirlestur Vöndu Sigurgeirsdóttur fyrir allt starfsfólk verður í sal Hs miðvikudaginn 15. nóvember frá kl. 13:00 - 16:00.
- Vanda verður með fyrirlestur fyrir foreldra þriðjudaginn 14. nóv. í sal Framhaldsskólans kl. 17:00.
- Norræna bókasafnavikan vikuna 13. - 19. nóvember.
- Mánudaginn 13. nóvember er stóri upplestardagurinn í tengslum við Norrænu bókasafnavikuna. Í Hamarsskóla er hefti með sögunni og hugmyndabanka í tengslum við vikuna komið í hólf umsjónarkennara.
- Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember.
- Skáld í skólum fyrir miðstig og unglingastig 17. nóvember.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember. https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagur_mannrettinda_barna_grunnskolar.pdf
Tilkynningar !!
- Anna Rós verður í leyfi 6. -15. nóv. forföll skal tilkynna til Ingibjargar. Góð vinnuregla að senda alltaf tilkynningu til aðstoðarskólastjóra og deildarstjóra.
- Föndurdagurinn í HS verður 7. desember.
- Verkefni verða til sýnis í vikunni 13. - 17. nóvember. Við biðjum kennara að senda okkur hugmyndir að verkefnum þ.e.a.s. ef vilji er fyrir því að skipta út verkefnum.
- Nýjar verkgreinalotur í Hs hefjast 25. janúar 2018.
- Lestur við sama borð - tvítyngdir nemendur fá aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara vinnustundina sína viulega. Gott síðasta verk áður en farið er í helgarfrí.
Afmælisbörn
Berglind Þórðardóttir 14. nóvember
Helga Sigrún 15. nóvember
Sigurbjörg Jónsdóttir 18. nóvember
Snæborg Þorsteinsdóttir 18. nóvember
Kristín Sigurðardóttir 19. nóvember
Spakmæli vikunnar
Gleði sem ekki er deilt, fjarar fljótt út.
- Anne Sexton
Hafradraumur með súkkulaði og döðlum
Uppskrift (ca. 70 litlar kökur eða 35 stærri)
Innihald:
- 230 g smjör, við stofuhita
- 200 g púðursykur
- 60 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk vanillusykur
- 220 g hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- 270 g haframjöl
- 200 g döðlur, saxaðar smátt
- 150 g suðusúkkulaðidropar
Aðferð:
Ofn hitaður í 175 gráður. Sykur, púðursykur og smjör hrært saman þar til létt og ljóst. Eggjum bætt út í, einu í senn. Því næst er hveiti, vanillusykri, lyftidufti, salti, haframjöli, döðlum og suðusúkkulaði bætt út. Degið kælt í ísskáp í 1-2 tíma (það er hægt að sleppa kælingunni en þá fletjast kökurnar meira út við bökun). Mótaðar kúlur úr deginu (sem samsvara tæplega 1 matskeið að stærð fyrir minni kökurnar) og þeim raðað á ofnplötu klædda bökunarpappír. Bakað við 175 gráður í 10-14 mínútur – bökunartími fer eftir stærð.
Skóla og -símareglur
Hrós vikunnar fær
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.