HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 21. TBL
DAGSKRÁ 20. - 24. FEBRÚAR
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR
Nemendaráðsfundur í BS kl. 09:20
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR
Nemendaráðsfundur HS kl. 14:15
Stærðfræðinámskeið í Hs með Þóru Rósu kl. 13:30 - 15:30
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR
Heilsukaffi starfsfólks – starfsfólk mætir með eitthvað hollt og gott. Hlaðborði í hvorum skóla fyrir sig.
Krakkarnir í hverfinu - sýning fyrir 2. bekk
Fundur með Menntamálastofnun vegna samræmdra prófa kl. 13:00 í Bs.
Kennarafundir í báðum húsum kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR
Blóðþrýstings og- kólesteról mælingar í Hs kl. 8-10 (koma fastandi)
Stjórnendafundur í Bs kl. 15:00
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- VERTU NÆS - þriðjudaginn 28. febrúar, fulltrúi frá Rauða krossi Íslands fræðir nemendur um verkefnið "(V)ertu næs? - fjölbreytileiki og fordómar".
- Öskudagurinn er 1. mars - uppábrot í kennslu á yngsta- og miðstigi.
- Sinfóníuhljómsveit Íslands - fimmtudaginn 2. mars, nemendum í 1. - 5. bekk verður boðið á Maxímús Músíkús.
- Sinfóníuhljómsveitin verður með tónleika fyrir alla eyjamenn miðvikudaginn 1. mars, verður í íþróttahúsinu.
- Samræmd próf í 9. og 10. bekk verða 7. -10. mars.
- Samtökn 78 með fyrirlestur fyrir ungolingastigið 13. mars.
- Pörupiltar verða með sýningu fyrir unglingastigið 14. mars.
- Upplestrarkeppni 7. bekkja verður í Tónlistarskólanum 17. mars. Lokakeppni Suðurlands verður í Eldheimum 30. mars.
- Maríta fræðsla fyrir 5. - 10. bekk verður 21. og 22. mars.
Tilkynningar !!
- Árshátíð starfsfólks GRV verður 10. mars, takið daginn frá :)
- Lífshlaupi starfsfólks lýkur 22. febrúar, nú erum við í 7. sæti af 59 liðum í okkar flokki. Vel gert.
- Lífshlaupi grunnskólanna lauk 14. febrúar, GRV er í 1. sæti í sínum flokki.
Í skráningarleik Lífshlaupsins þá var dreginn út vinningshafi í Grunnskóla Vestmannaeyja og var það bekkurinn 5.AP sem var svo lukkulegur að hljóta vinning frá Mjólkursamsölunni :) Til hamingu með það.
- Maxi mús - Sinfóníu hljómsveit Íslands býður nemendum í HS á tónleika fimmtudaginn 2. mars. Bókin er til og lögin eru á K-drifi. Kennarar beðnir um að kynna lögin fyrir nemendum.
- Starfsmannaviðtöl í gangi núna, vinsamlegast finnið tíma með þeim stjórnanda sem hefur verið úthlutað á ykkur.
- Lesið við sama borð - Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
Afmælisbörn
Enginn á afmæli innan GRV á þessum tíma. Hinsvegar á:
Kurt Cobain og Rihanna afmæli 20. febrúar
Steve Jobs afmæli 24. febrúar
Georg Harrison afmæli 25. febrúar
Ofurnachos með sætkartöflum og bræddum mozzarella
Gott sem snarl, máltíð eða í klúbbinn.
2-3 meðalstórar sætar kartöflur
1 msk ólífuolía
tacokrydd
1 dós pinto baunir (kidney beans), vökvi fjarlægður
mozzarellaostur, magn að eigin smekk
2 tómatar, saxaðir
jalapenosneiðar, magn að eigin smekk
3-4 vorlaukar, saxaðir
safi af 1 límónu
kóríander (má sleppa)
- Skrælið karöflurnar og skerið í þunnar sneiðar. Blandið ólífuolíunni saman við og kryddið með tacokryddi (hér er gott að setja olíu og krydd í plastpoka, bæta kartöflunum saman við og hrista vel). Raðið kartöflunum á ofnplötu með smjörpappír (tekur líklega 2 ofnplötur) og setjið í 200°c heitan ofn í um 15 mínútur. Snúið kartöflunum við og eldið í 5 mínútur í viðbót.
- Raðið því næst kartöflunum á eina plötu og setjið baunirnar og ost yfir og setjið í ofn í aðrar 5 mínútur.
- Blandið tómötum, jalapenos, vorlauk, límónusafa og kóríander saman í skál. Takið kartöflurnar úr ofninum og hellið blöndunni yfir kartöflurnar. Gott er að toppa þetta með avacado/guagamole og sýrðum rjóma.
Hrós vikunnar fá
Einnig fá kennarar í Bs fyrir virkilega vel heppnaða smiðjudaga og árshátíð á unglingastiginu.
Heyrst hefur ...
Heyrst hefur ...
Heyrst hefur ...
Íslenska sem annað tungumál - facebook
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.