VAL FYRIR HAUSTÖNN 2019
VALTÍMABIL 28.02.-08.03. 2019
Val fyrir haustönn 2019
Kæru nemendur
Nú er komið að vali fyrir vorönn 2019. Hér fyrir neðan geturðu kynnt þér allt um valið en valið sjálft fer fram í gegnum INNU. Allir nemendur í dagskóla sem ætla að halda áfram námi þurfa að velja áfanga fyrir næstu önn. Ekkert val þýðir engin stundatafla! Fjarnemendur sem ætla að halda áfram fjarnámi við skólann og borga fyrir fjarnámið geta líka valið áfanga.
Boðið verður upp á aðstoð við valið í fundartímanum fimmtudaginn 28. febrúar kl. 10:30-11:30 í stofu 10-11. Auk þess sem umsjónarkennarar geta aðstoðað við valið. Allir nemendur geta auk þess fengið aðstoð við valið hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa. Hægt er að panta tíma hjá ritara. Nemendur sem ætla að útskrifast í desember 2019 þurfa að panta tíma hjá áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa til að fara yfir valið.
Dagskólanemendur sem ætla ekki að vera við nám á haustönn þurfa að láta áfangastjóra vita (heidrun@misa.is)
Nemendur á 2. ári
Nemendur á 3.-4. ári
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/
Twitter: @MenntaskIsafird