Tæknimolinn
hagnýt ráð fyrir tölvurnar eða spjöldin okkar
SMÁ FRÆÐSLA FYRIR SUMARIÐ
TÆKNIMOLI 1
GOOGLE APPS FOR EDUCATION - GAFE
Ennnn... við þurfum við að fara hugsa lengra og íhuga næstu skref. Við teljum næsta verðuga viðfangsefni vera skýjalausnir, enda margir skólar byrjaðir að vinna eftir því og langar okkur að feta í þau fótspor. Við erum spennt fyrir framtíðinni og okkur langar að kynna GOOGLE APPS FOR EDUCATION inn á næsta skólaári. Við óskum eftir kennurum sem væru til í að skoða þetta betur með okkur.
En hvað er GOOGLE APPS FOR EDUCATION?
til þess að þið áttið ykkur betur á því þá er hér í viðhengi vefmálstofa sem útskýrir hugmyndafræðina og öpp/verkfærin mjög vel. Ég hvet ykkur til að kynna ykkur
http://samspil.menntamidja.is/um-samspil/vefnamskeid-webinar/
Þetta er vefmálstofa Skýjaþjónustur og samvinnuverkfæri sem Hans Rúnar Snorrason, kennari við Hrafnagilsskóla flytur. Mæli með að þið byrjið á 18.mín í fyrri hluta og svo skoðið vel seinni hlutann þar sem hann fer yfir öll öpp sem fylgja Google apps. Fínt að nýta þetta í endurmenntun :)
Fleiri myndbönd um GOOGLE APPS FOR EDUCATION - HÉR FYRIR NEÐAN
TÆKNIMOLI nr 2 :Snipping tool
Fljótlegasta leiðin er að fara neðst í vinstra hornið í tölvunni og ýta windowsmerkið og byrja skrifa strax Snipping tool og þá opnast forritið með þennan glugga sem þið sjáið fyrir ofan.
veljið New og þá dofnar skjárinn og músarbendillinn breytist í kross.
Nú er hægt að smella með músinni og draga kassa utan um það sem á að velja það sem þið ætlið að nota.
Ef þið viljið vista bútinn sem mynd þá fariði í save. En ef þið eruð að fara nota hann strax í öðru skjali er fljótlegast að ýta á copy hnappinn við hliðna á save hnappnum og fara inn í skjalið ykkar og ýta á paste. Þá er búturinn kominn strax í skjalið ykkar :)
Einnig frábært ef þið viljið skrifa inn á verkefni og vista, jafnvel senda nemandanum. Eða vilja bæta við aukaglósum á skjal sem þið sáuð á netinu. Þá veljiði pennaverkfærið og skrifið inn á. Sjáið mynd hér fyrir neðan.
Hvet ykkur til að prufa, þetta er þvílíkur tímasparnaður þegar maður temur sér að nota þetta. Takk fyrir að benda á þetta forrit Gugga og Jónatan.