Vikupóstur
Upplýsingatækni í skólastarfi - 23. janúar 2020.
Verkefnisstjóri á Menntasviði
Undirrituð hefur hafið störf á Menntasviði. Verkefnin þessa viku felast einkum í lestri gagna, kynnast samstarfsfólki og að koma sér fyrir í nýju starfsumhverfi.
Undanfarnar vikur hefur verkefnisstjóri fundað með kennsluráðgjöfum í upplýsingatækni og farið yfir stöðuna á innleiðingu fleiri spjalda í bekkjarsett skólanna á yngsta stigi. Næstu skref eru síðan að opna fyrir almenna kennsluráðgjöf í einu pöntunarskjali eins og rætt hefur verið um. Opnað verður fyrir einn mánuð í senn a.m.k. til að byrja með.
Unnið verður að matsgrunni fyrir verkefnið næstu vikurnar og verður sá grunnur borinn undir alla hagsmunaaðila til umsagnar.
Samstarfskveðjur bestar!
Bergþóra Þórhallsdóttir verkefnastjóri UT í skólastarfi á Menntasviði Kópavogsbæjar.
Yngsta stig - bekkjarsett.
Staðan í innleiðingu á fleiri spjöldum í bekkjarsettin:
Álfhólsskóli: Innslætti á aðgangi lokið. Kennsluráðgjafar hafa verið í samskiptum við Júlíus.
Hörðuvallaskóli: Kennsluráðgjafar verða þar í næstu viku, mánudag til miðvikudags.
Kársnesskóli: Innleiðing í farvatninu. Kennsluráðgjafi með fræðslu í borgaravitund í þessari viku.
Kópavogsskóli: Innleiðingu og ráðgjöf lokið. Gömlu spjöldin nýtt fyrir í Osmo, Dash robot ofl. 15 - 16 spjöld er deilt á hvern árgang.
Lindaskóli: Bekkjarsettið er klárt. Gömlu tækin verða í 1. bekk en þau nýju fara í settið sem er í einu lagi í 2. - 4. bekk. Kennsluráðgjafar eru í Lindaskóla í þessari viku, miðvikudag til og með föstudags.
Salaskóli: Innleiðingu og ráðgjöf lokið.
Snælandsskóli: Innslætti er lokið. Nýju spjöldin fóru í 3. - 4. bekk.
Smáraskóli: Innleiðingu og ráðgjöf lokið.
Vatnsendaskóli: Búið að skrá aðgang í tækin. Tölvuumsjónamaður er að handleiða kennara við fyrstu notkun. Fundur með stjórnendum vegna innleiðingar á 1:1 í 5. bekk mánudag.
Stefnt er að því að innleiðingu spjalda í bekkjarsettin og ráðgjöf því tengdu verði lokið um mánaðarmótin. Það er aðeins seinna en upphaflega var áætlað.
Menntabúðir #Kópmennt 20.01.2020
Um 60 manns skráðu sig á Menntabúðir í Hörðuvallaskóla. Það er heldur lakara en hefur verið í haust, en ýmsar skýringar liggja að baki. Það fór vel um þá sem mættu og ekki var annað að heyra en að allir hafi fengið eitthvað fyrir sinn snúð.
Að þessu sinni voru Menntabúðir #Kópmennt í Hörðuvallaskóla.
Classcraft
Margt að sjá.
Pöntunarskjalið góða
Tengill á pöntunarskjalið er hér fyrir neðan. Hver skóli fær úthlutað tímamagn sem hann getur nýtt kennsluráðgjafana. Tímunum verður deilt á skólana eftir nemendafjölda. Nánar síðar.
Mikilvægt er að stjórnendur og tölvuumsjónamenn hvetji kennara til að velja að minnsta kosti eitt verkefni til að prófa sig áfram með kennsluhætti með tækni sem þeir hafa ekki prófað áður.
Kennarar horfi á kennsluáætlun sína nú á vorönninni og velti fyrir sér hvar helst er tækifæri að fá inn ráðgjöf. Ráðgjöf getur farið fram í samræðu um fyrirliggjandi verkefni og aðstoð og handleiðslu við framkvæmd.
Til að dreifa skráningareyðublaðinu til kennara í ykkar skóla notið þið tengilinn: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1_eRN1i0y2qY5V8hMW9o65LbDlG-yAnWss3aYPfwS_XA/edit#gid=1099715528
Þennan tengil getið þið afritað og límt í tölvupóst til allra kennara. Ef þið viljið hafa þann háttinn á að einhver ákveðinn eða ákveðnir sjái um skráninguna þá getið þið nýtt neðangreindan hnapp.
Mixtúra heimsótt
Kennsluráðgjafar spjaldtölvuteymisins heimsóttu Mixtúru sem sköpunar og upplýsingatækniver Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar (SFS). Ráðgjafar tóku á móti hópnum og kynntu starfsemina sem er af margvíslegum toga.
Sjá nánar á: http://mixtura.is/
Búnaðabanki Mixtúru
Bett 2020
Eyþór kennsluráðgjafi fór á Bett 2020 og tengda viðburði m.a. skólaheimsóknir og fræðslu frá Google.
Bergþóra verkefnisstjóri sótti sýninguna fimmtudag og föstudag.
Á næstu Menntabúðum verður umræðustofa fyrir þá sem sóttu ráðstefnuna og þá sem langar að forvitnast um hvað markverðast var þar að sjá og heyra.
Hleðslustöðvar
Þegar kennarar og nemendur á unglingastigi fengu ný spjöld í haust skiluðu þau ekki nema í undantekningartilvikum hleðslutækjum sem tilheyrðu þeim spjöldum og því er ekki úr vegi að stjórnendur og tölvuumsjónamenn innkalli þau í hverjum skóla. Þannig má ná allavega einhverjum hleðslutækjum inn.
Einhverjir skólar hafa einnig fjárfest í hleðslustöðvum sem eru mjög handhægar fyrir bekkjarsettin, en það verður hver skóli að gera upp við sig og greiða.
Upplýsingatækni í skólastarfi Kópavogsbæjar
Email: beggath@kopavogur.is
Website: https://spjaldtolvur.kopavogur.is/
Location: Kópavogsbær
Phone: 441-2713
Facebook: https://www.facebook.com/groups/360092074179541/