Vikupistillinn
Tímabilið 24 - 29. febrúar 2020
Heilræði vikunnar
Maðurinn einn er ei nema hálfur,
með öðrum er hann meiri en hann sjálfur.
Einar Benediktsson
Hjálpum nemendum okkar að nota gott orðbragð og orðfæri við hvert annað
Punktar
- Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk.
- Það er mikilvægt að kennarar bregðist skjótt við þegar bjallan hringir inn og fari strax af stað í kennslu. Því of mikil bið skapar óróa hjá nemendum.
- Minnum umsjónarkennara á að skoða ástundun nemenda sinna samkvæmt nýju reglunum. Það er hægt að nálgast allar upplýsingar á vefslóðinni http://innri.hafnarfjordur.is/thjonusta/fraedsluthjonusta/form-og-eydublod/
Góð heimasíða sem hægt er varpa upp á skjáinn í stofum.
Hægt er að hafa skilaboð til nemenda, klukku og skeiðklukku, hvað mikið er eftir af tímanum. Hvernig veggfóður þið viljið hafa (einnig er hægt að setja sína eigin mynd/ir). Þá er einnig hægt að setja hávaðamörk. https://classroomscreen.com/
- Widgit Online er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar.
- Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði hefur undirgöngunum við Þorlákstún/Tjarnarvelli og aðliggjandi stígum verið lokað. Sjá nánar.
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt nýju fundaskipulagi ársins
- Frá 1. janúar 2020 eiga starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar rétt á ókeypis skírteini hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Framvísa þarf starfsmannaskírteini við stofnun / endurnýjun bókasafnsskírteinis. Vonandi sjáum við sem flesta starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar nýta sér bókasafnið.
SMT hugleiðingar
Ofurhvalamiðaleikurinn
Hann gekk vel fyrir sig, og takk fyrir hvað starfsmenn skólans stóðu sig vel í að koma út miðunum og voru tilbúnir í þetta. Nemendur voru glaðir og þakklátir þegar þeir komu og afhendu miðann sinn til Hrannar í glerinu.
Mánudagur 24. febrúar
- Bolludagur
Þriðjudagur 25. febrúar
Sprengidagur
- Stóra upplestrarkeppnin í Hvaleyrarskóla haldin kl 8:30 á sal, 6. og 7. bekkir verða í salnum. Fimmti bekkur verður því ekki á samveru.
- Á fundatíma kl. 15:00 eru niðurstöður Olweusarkönnunarinnar kynntar í fyrirlestarsalnum.
Miðvikudagur 26. febrúar
- Öskudagur, við hvetjum alla til að koma í náttfötum eða grímubúningi þennan dag en dagskrá/kennt er til kl. 11:20.
- Kennt er samkvæmt stundaskrá hjá nemendum í elstu deild.
- kl. 10:00 kemur Birgir Örn lögreglumaður með fræðslu í 8. GB.
- kl. 10:40 kemur Birgir Örn lögreglumaður með fræðslu í 8. SB.
- Skipulag fyrir öskudag - miðdeild.
- Skipulag fyrir öskudag - yngsta deild.
- kl. 14:05 er fundur hjá Brúarteyminu.
Fimmtudagur 27. febrúar
- Eyjólfur Örn sálfræðingur verður með fræðslu fyrir nemendur í 5. - 10. bekk um netöryggi sem hér segir:
- Kl. 8:30 - 9:30 fyrir nemendur í 5. - 7. bekk í salnum.
- Kl. 10:00 - 11:00 fyrir nemendur í 8. - 10. bekk í salnum. Athugið að nemendur í 8. bekk fara ekki í sund en verða þess í stað á fræðslunni.
- Kl. 14:00 er fundur hjá lausnateymi SMT.
- Á fundatíma kl. 15:00 eru teymisfundir B.
Föstudagur 28. febrúar
- Fundur hjá stjórnendum kl. 10:00 - 11:00.
Corona veiran
Handþvottur er okkar besta vörn gegn smiti corona veirunnar en það á líka við almennt um aðra smitsjúkdóma líka svo sem inflúensuna, magakveisur, og augnsýkingum svo eitthvað sé nefnt. Þvo þarf hendur með vatni og sápu ef þær eru óhreinar eða búast má við að á þeim séu óhreinindi (svo sem eftir klósettferðir) en handspritt dugar eftir notkun á sameiginlegum snertiflötum s.s. símtól, lyklaborð, hurðarhúnar og slíkt. Endilega skoðið góðar leiðbeiningar hér varðandi handþvott.
Vefur Landlæknis um Corona veiruna.
Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar
Miðasala á árshátíð Hafnarfjarðarbæjar 7. mars næstkomandi er hafin rafrænt á http://arshatid.hafnarfjordur.is – hægt er að nálgast hlekkinn á viðburði á Workplace eða á innri vefnum. Miðasölu lýkur á miðnætti mánudaginn 2 mars.
Dagskrá Versins fyrir febrúar
Líkamsræktarstyrkur
Eru ekki allir byrjaðir í líkamsrækt á nýju ári?
Hafnarfjarðarbær styrkir sitt starfsfólk um kr. 12.000,- til líkams- og heilsuræktar.Skila þarf útfylltu eyðublaði til skólastjóra ásamt kvittun fyrir útlögðum kostnaði.
Olweus - nemendaviðtöl
Aðgangur grunnskóla Hafnarfjarðar að Snöru
Út fyrir bókina - Áhugaverð facebooksíða
Opnað hefur verið fyrir skráningar á marsnámskeið fyrir grunnskólakennara á höfuðborgarsvæðinu
Í mars 2020 er grunnskólakennurum boðið upp á endurmenntunarnámskeið sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru af ýmsum toga og miða að því að færa aðferðir og skipulag í kennslu sem styður við nám fyrir alla.
MARS námskeiðin eru:
9. Agi og bekkjarstjórnun: Hofsstaðaskóli miðvikudagur 4. mars kl. 14-16.
10. Margbreytileikinn í okkur: Garðaskóli laugardagur 7. mars kl. 9-13.
11. Menntun fyrir lýðræðislega menningu: Háteigsskóli mánudagar 9., 16. og 23. mars kl. 14-16.
12. Sippukennsla í íþróttum og í frímínútum: Melaskóli þriðjudagur 10. mars kl. 14.30-16.30.
13. Skólaumhverfi ADHD nemenda: Smáraskóli miðvikudagar 11. og 25. mars kl. 14.30-16.30.
14. Hinsegin fyrir alla kennara: Hlíðaskóli föstudagar 13. og 20. mars kl. 14-16.
15. Óravíddir: rúmfræði fyrir alla aldurshópa kennd með leikjum, list og samtölum: Kópavogsskóli laugardagur 14. mars kl. 9-1.
16. Einfaldar hugleiðsluleiðir og jóga í kennslu: Hofsstaðaskóli laugardagur 21. mars kl. 10-12.
17. Náttúrufræðikennsla á unglingastigi í fjölmenningarlegum bekk: Hagaskóli mánudagur 23. mars kl. 14-16.
18. Kennsluaðferðir fyrir alla: Lágafellsskóli þriðjudagur 24. mars kl. 14-16.
Nánari lýsing á einstaka námskeiðum og vefslóð á skráningu: http://ssh.menntamidja.is/kennslufraedi/vornamskeid-2020/ eða í gegnum forsíðu ssh.menntamidja.is vefjarins.
Afmælisdagar í febrúar
Dísa 28. febrúar. Við óskum henni innilega til hamingju með daginn :-)
Frá skipulagsdegi
Frá skipulagsdegi
Frá skipulagsdegi
Kynning frá VR
Keilarar frá Hvaleyrarskóla
Samvera hjá miðdeild
Á döfinni í janúar og febrúar
- Skólapúlsinn – úrtak nemenda og starfsmanna í mars.
- Stjórnendur koma í innlit í kennslustundir.
- Nemendur í 10. bekk fara í heimsókn í Flensborgarskólann þann 3. mars.
- 100 mið veislan er færð til 4. mars kl. 10:00.
- Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar, laugardaginn 7. mars.
- Starfsmannasamtöl.
- Samræmd könnuarpróf, 9. bekkur - 10., 11. og 12. mars.
- Starfsfræðsla hjá nemendum í 10. bekk dagana 11. og 12. mars.
- Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar er 17. mars.
- Fræðsla frá Samtökunum 78, fyrir 8. GB 17. mars kl. 12:40 og 24. mars kl. 12:40 fyrir 8. SB.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200