Frjóir Fimmtudagar - Menntabúðir
UT í námi og kennslu
31. október 2013 kl. 16:00-18:00
Fimmtudagana 31. október, 7. nóvember og 21. nóvember kl. 16-18 verða haldnar menntabúðir í stofu H-207 í aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Mikil vakning er í tengslum við spjaldtölvur í skólastarfi og fjölmörg áhugaverð verkefni í gangi úti í skólunum varðandi upplýsingatækni og nýjar aðalnámsskrár. Áhersla verður lögð á tengslamyndun fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Megin markmið menntabúða er að:
a) skapa jafningjaumhverfi þar sem miðlun þekkingar og reynslu á sér stað
b) veita þátttakendum tækifæri til að læra og prófa sig áfram með ýmis áhugaverð viðfangsefni
c) stuðla að tengslamyndun og samvinnu fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Menntabúðirnar eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og fyrir kennaranema. Þátttakendur fá staðfesta viðurkenningu á endurmenntun frá Menntavísindasviði HÍ. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku.
Þátttakendur eru beðnir að koma með framlag í búðirnar en alls ekki er ætlast til að allir komi með innlegg. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námsskrárvinnu, eða að varpa fram spurningum. Tryggt verður að nóg áhugavert efni verði til reiðu. Þátttakendur eru hvattir til að koma með fartæki (fartölvu, spjaldtölvu, snjallsíma,...) með sér og hægt verður að tengjast neti.
Samstarfsaðilar um menntabúðir:
UT-torg og Menntamiðja
Aðrir á Menntavísindasviði: Fagaðilar og framhaldsnemar í upplýsingatækni og miðlun, Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun (RANNUM) og Menntasmiðja
3f - félag um upplýsingatækni og menntun