Föstudagspóstur 17. janúar 2020
4.-5. bekkur
Fréttir úr skólastarfinu
Þá góðri skólaviku lokið. Sérstök áhersla var lögð á Jákvæðan aga í vikunni. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni tengd Jákvæðum aga. Þeir útbjuggu persónulegt lausnahjól. skrifuðu jákvæðar athugasemdir sem settar verða upp á vegg, hrósuðu hvert öðru, leystu klípusögur og fóru í hópeflisleiki. Verkefnin voru unnin í hópum og gekk vinnan yfirleitt mjög vel.
Námsmat er langt komið og merkt er við markmið í Mentor um leið og niðurstöður liggja fyrir. Rætt verður um námslega stöðu nemenda í foreldraviðtölum sem verða í lok mánaðarins. Frá og með deginum í dag er hægt að panta viðtalstíma í Mentor.
Foreldraviðtöl 27. og 28. janúar
Frístund verður opin allan daginn. Munið að skrá barnið í Frístund þessa daga.
Jákvæður agi
Matsmöppur
Góða helgi
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/