Sumarvíðóma
Fréttabréf Víðistaðaskóla maí - júní 2022
Sumarkveðja frá stjórnendum
Kæru nemendur og foreldrar
Við þökkum ykkur öllum fyrir samstarfið í vetur.
Þetta skólaár var að mörgu leyti krefjandi vegna ytri aðstæðna en engu að síður lærdómsríkt.
Á þessu skólaári höfum við unnið ötullega að umhverfismálum bæði með fræðslu og verkefnum.
Flokkun sorps var fylgt vel eftir og var sérstakt viðfangsefni að vinna gegn matarsóun í vetur.
Við enduðum síðan veturinn með því að fá grænfánann í fimmta sinn við hátíðlega athöfn.
Í vetur höfum við unnið að verkefninu heilsueflandi grunnskóli með því að taka þátt í ýmsum verkefnum tengdum heilsu og hreyfingu.
Einnig leggjum við áherslu á jóga og slökun og var slökunarherbergi skólans heilmikið notað bæði af nemendum og starfsmönnum.
Nemendalýðræði er okkur ofarlega í huga og er starfandi nemendalýðræðisnefnd á öllum stigum skólans sem undirbýr viðfangsefni fyrir lýðræðisþingið okkar sem við höfum árlega. Á þessum þingum höfum við rætt um aðstöðu í skólanum, skólalóðina, matarmálin, fræðsluefni, símamál og fleira.
Í mars vorum við með opið skólaþing fyrir foreldra og starfsmenn og þar var umfjöllunarefnið, skólareglurnar, heimanámsstefna skólans og símamálin.
Í gegnum þessa vinnu fáum við góðar samræður um þessi mál sem unnið er úr. Sátt var um reglurnar og heimanámsstefnuna enda er hún mjög sveigjanleg með einstaklingsmiðun í huga.
Á lýðræðisþingum nemenda og skólaþingi með foreldrum og starfsmönnum kemur fram að talið er heillavænlegast fyrir nemendur og skólastarfið að skólinn verði áfram símalaus skóli á öllum stigum.
Áhersla verði lögð á að í skólanum verði tíminn nýttur til að vera í góðum samskiptum sem efla samskiptafærni nemenda. Nokkrar rannsóknir eru komnar með niðurstöður sem sýna m.a. fram á neikvæð áhrif símanotkunar á samskipti og líðan.
Við horfum vongóð fram á við og hlökkum til næsta skólaárs.
Við óskum þess að þið eigið gott sumarleyfi.
Með kærri kveðju
Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri og starfsfólk Víðistaðaskóla
Útskrift 10. bekkjar
Útskrift 10. bekkjar var haldin hátíðlega í sal Víðistaðaskóla þann 8. júní síðastliðinn. Nemendur mættu í sínu fínasta dressi ásamt aðstandendum.
Birkir Óli Júlíusson, formaður nemendafélags og Sunna Björg Harðardóttir, gjaldkeri, fluttu flottar ræður og einnig tóku til máls Hrönn skólastjóri og Katrín Jónsdóttir fulltrúi bekkjartengla. Tvö flott tónlistaratriði voru á hátíðinni; Adam Logi Magnússon og Irena Hilmarsdóttir sem fóru með lagið Dream A Little Dream of Me og Svanhildur Júlía flutti lagið Morceau de Concours á þverflautu með aðstoð píanóspilara.
Viðkenningar voru afhentar fyrir framúrskarandi árangur í námsgreinum, félagsstörf og fleiru. Að því loknu áttu nemendur eina lokastund með umsjónarkennara í heimastofu áður en farið var í íþróttahúsið í kökur og kveðjur.
Þetta er frábær hópur ungs fólks sem útskrifaðist og við óskum þeim góðs gengis í framtíðinni.
Verðlaun hjá Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
Það er gaman að segja frá því að á dögunum hlutu nemendur úr 7. bekk í Víðistaðaskóla, þær Anna Heiða Óskarsdóttir, Helga Sóley Friðþjófsdóttir og Sveindís Rósa Almarsdóttir hönnunarbikar NKG fyrir hugmynd sína Lýsandi úlpa. Auk þess hlaut kennarinn þeirra, Ásta Sigríður Ólafsdóttir kennari í hönnun og smíði hvatningarverðlaun kennara. Hún er því Nýsköpunarkennari grunnskólanna árið 2022.
Eðlan
Tilnefningar Foreldraráðs Hafnarfjarðar
Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur árlega óskað eftir tilnefningum frá foreldrum og forráðamönnum. Margar tilnefningar komu og er gaman að segja frá því að við í Víðistaðaskóla fengum fjórar tilnefningar. Þeir sem hlutu tilnefningar eru Jóhanna Ómarsdóttir umsjónarkennari í 6. bekk, Kristmundur Guðmundsson umsjónarkennari í 9. bekk, Birkir Már Viðarsson umsjónarkennari í 10. bekk og Kristín Högna Garðarsdóttir textílkennari. Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum þeim fyrir sitt starf.
Á myndina vantar Birki Má Viðarsson.
Heimsókn frá landsliðskonu
Þann 8. júní fékk skólinn heimsókn frá landsliðskonu í fótbolta. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er fyrrum nemandi í skólanum og spilar núna með landsliðinu. Karólina settist niður með Grétu Brands fyrir utan skólann og áritaði nokkur plaköt. Það myndaðist örtröð af áhugasömum krökkum sem allir fengu gott spjall og eiginhandaráritun. Við þökkum Karólínu kærlega fyrir komuna og óskum henni góðs gengis í boltanum.
Útskriftarferð 10. bekkjar
Nemendur skemmtu sér konunglega í ferðinni og fengu að upplifa fallega og fjölbreytta íslenska náttúru. Nemendur fóru í boltaleiki, kubb og sumir mættu jafnvel með vatnsbyssur en hápunktar dvalarinnar í Þórsmörk var gönguferð á hálendið þar sem margir náðu flottum myndum fyrir samfélagsmiðla.
Á leiðinni heim komu nemendur við í Arctic Rafting í Hvítá og skelltu sér í flúðasiglingu. Krakkarnir létu kuldann ekki trufla sig og skemmtu sér vel. Eftir siglinguna beið þeirra hamborgari og sána. Frábær endir á ferðinni.
Vorferð 8. bekkjar
8. bekkur skellti sér á Akranes í vorferð. Þar fór hópurinn í Guðlaugu, lék sér á ströndinni og þau allra hörðustu fóru í ískaldan sjóinn. Öll nutu sín mjög vel og voru sjálfum sér og skólanum til sóma. Eftir sundið var litið við í Skógræktinni með nesti og leik.
Vorferð 7. bekkjar í Vindáshlíð
7. bekkur fór í Vindáshlíð 23. til 25. maí þar sem Covid kom í veg fyrir Reykjaferðina í janúar. Komum í frábæru veðri. Ferðin heppnaðist afar vel og skemmtu krakkarnir sér konunglega. Þau fóru m.a. í ratleik, eltingaleik í myrkrinu, kvöldvöku, útileiki og skelltu sér á ball. Það var mikið dansað og sungið það kvöld. Gaman var að geta farið í ferð saman í lok skólaársins.
Vorferð 6. bekkjar
Skemmtileg vorferð hjá 6. bekk var á Reykjanesið þar sem þau skoðuðu brúnna milli heimsálfa, heimsóttu Skessuhelli og Víkingaheima. Að lokum var farið í Vatnaveröld og nemendur fengu ís frá kennurum.
5. bekkur á Hvaleyrarvatni
Á vordögum skellti 5. bekkur sér á Hvaleyrarvatn. Það var misjafnt hvað nemendur höfðu fyrir stafni. Sumir "týndust" í skóginum í kring á meðan aðrir léku sér að vaða. Þegar líða fór að hádegi var drifið í að grilla pylsur þar sem margir voru orðnir blautir og kaldir. Allir voru mjög duglegir að ganga að næsta strætóskýli í 2 km fjarlægð.
Vorferð 4. bekkjar í Kaldársel
4. bekkur skellti sér í vorferð í Kaldársel. Hófst ferðin á því að ganga inn í 100 metra helli og er óhætt að segja að nemendur hafi verið duglegir og áhugasamir. Hellirinn sjálfur er mjög skemmtilegur en það þarf að klöngrast ofan í hann, þá tekur við gangur og einskonar hraunfoss niður svo að hann reynir aðeins á. Þegar þangað er komið er hellirinn mikill og stór geymur. Þar var nestið snætt og sögur sagðar. Eftir að komið var til baka í húsið léku nemendur sér bæði innan og utan dyra á meðan starfsfólk grillaði hamborgara. Ferðin var virkilega vel heppnuð og nemendur alsælir með ferðina.
Samverustund hjá 1. bekk
Nemendur í 1. bekk stigu á svið og sýndu hinar ýmsu listir. Á meðal þess sem þau sýndu var músadans, söngur, fræðsla um húsdýr og fleira. Gleðin skein úr hverju andliti í salnum og þá skipti engu hvort um var að ræða foreldri eða nemendur. Börnin í 1. bekk stóðu sig mjög vel. Á eftir buðu þau foreldrum sínum upp á kaffi og áttu saman notalega stund þar sem rætt var um heima og geima.
Blái hnötturinn
Nemendur í 4. bekk buðu foreldrum að koma í samverustund og kaffi á eftir. Við erum afskaplega þakklát að geta boðið foreldrum í skólann. Mikil vinna lá að baki og höfðu nemendur lagt mikið á sig. Blái hnötturinn er verkefni sem 4. bekkur vann að á margvíslegan hátt vikurnar á undan og var því leikritið lokapunkturinn á þeirri vinnu. Nemendur stóðu sig með prýði.
Grænfáninn afhentur
Á samveru hjá yngsta stigi var nýr Grænfáni afhentur. Það voru fulltrúar umhverfisnefndar sem tóku á móti fánanum ásamt Hrefnu Sif Heiðarsdóttur deildarstjóra á yngsta stigi , Sólveigu Baldursdóttur náttúrufræðikennari og Hrönn Bergþórsdóttur skólastjóra. Nefndin hefur unnið ötullega að verkefnum í vetur en meðal verkefna var að mæla matarsóun í skólanum. Markmiðið var að draga úr matarsóun og gera nemendur og starfsfólk meðvituð um hversu mikil hún er. Nefndin hefur einnig sent erindi á bæjarfulltrúa og hin ýmsu fyrirtæki í bænum með ábendingar um umbúðir, fjölgun ruslatunna í hverfinu og fleira.
Fulltrúar í umhverfisnefnd hafa svo miðlað inn í bekkina um hvað fer fram á fundunum og hvaða málefni hafa verið ofarlega á baugi hverju sinni.
Vorskólinn/leikskólabörn í heimsókn
Þann 1. Júní var haldinn vorskóli fyrir væntanlega 1. bekkinga og foreldra þeirra. Markmiðið með vorskóla er fyrst og fremst að létta á mestu spennunni sem fylgir því að byrja í grunnskóla. Það er gott að fara inn í sumarfríið og vita aðeins hvernig skólinn og kennararnir líta út. Fyrirkomulagið á vorskólanum er þannig að foreldrum og nemendum er boðið að koma í fyrirlestrarsalinn, þar sem nöfn nemendanna eru lesinn upp. Börnin fara með væntanlegum kennurum sínum í væntanlegar kennslustofur sínar og vinna þar skemmtileg verkefni. Á meðan fá börnin að máta sig í kennslustofunum, fá foreldrarnir kynningu á því helsta sem fram undan er hjá stjórnendum skóla og frístundar. Bæði nemendum og foreldrum er svo boðið í göngu um skólann þar sem helstu staðirnir eru skoðaðir s.s. matsalur, bókasafn og íþróttasalur. Allir enduðu svo úti á lóðinni í góðu veðri í óformlegu spjalli og leik.
Nemendur úr Hjallastefnunni í heimsókn
Nemendur úr grunnskóla Hjallastefnunnar komu í heimsókn til að kynna sér skólann, hitta verðandi bekkjarfélaga og kennara. Þetta er nemendur sem eru að ljúka við 4. bekk og koma í Víðistaðaskóla í 5. bekk. Nemendur gengu með gesti okkar um skólann, kynntu skólareglur og hin ýmsu svæði sem þeim þótti vert að kynna. Að þessu loknu léku nemendur sér saman, teiknuðu eða bara spjölluðu.
Bókabrall
Á vordögum setti Halla bókasafnsfræðingur upp nokkrar bókmenntaþrautir fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Þrautirnar eru árlegt samstarfsverkefni bókasafnsfræðinga á skólasöfnum Hafnarfjarðar og kallast Bókabrall og er markmiðið að skapa skemmtilegan leik. Nemendum var skipt í þrjá aldurshópa og átti hver hópur að leysa fimm þrautir. Þeir hópar sem náðu bestum árangri í sínum bekk fengu skemmtitíma á safninu í verðlaun. Það var ánægjulegt að allir nemendur í fyrrgreindum árgöngum tóku þátt og unnu verkefni sín í sátt og samlyndi.
Vettvangsferðarval - RÚV og varðskipið Þór
Fyrri áfangastaðurinn var RÚV þar sem nemendur fengu skoðunarferð um húsið og kynningu á starfssemi og hinum ýmsu störfum hjá RÚV. Mikið var um að vera í húsinu vegna undirbúnings fyrir sveitastjórnarkosningar og það var því sérstaklega áhugavert að sjá starfsfólk vera á fullu að græja svið, tæki og tól.
Seinni áfangastaðurinn var varðskipið Þór. Þriðji stýrimaður skipsins, Jói, gekk með nemendurna um allt skipið og ræddi við þau um starfssemi skipsins og störf landhelgisgæslunnar. Vettvangsferðin var mjög áhugaverð og heppnaðist ótrúlega vel. Eftir ferðina kíktu nemendur í bæinn og fengu sér að borða áður en haldið var heim.
Áfanginn Vettvangsferðir var nýjung á þessu skólaári og hefur heppnast mjög vel. Hann verður svo sannarlega kenndur aftur. Björgvin Valdimarsson, fyrrverandi starfsmaður við skólann, fær miklar þakkir fyrir hugmyndina af þessum áfanga.
Spænska
Í spænskuvali í vetur hefur höfuðáherslan verið að vekja áhuga á menningu spænskumælandi landa og á tungumálinu. Við höfum lært grunnorðaforða, æft okkur á einföldum setningum, þýtt barnabók og kynnst helstu atriðum spænskrar málfræði. Þá horfðum við á teiknimynd sem þau þekkja vel með spænsku tali.
Franskur bakstur
Spurningakeppni 9. bekkjar
Sápugerð í náttúrufræði
Nemendur í 10. bekk hafa verið að vinna skapandi og skemmtileg verkefni í náttúrufræði á skólaárinu. Undir leiðsögn Sólveigar Baldurs og Siggu Hreins hafa nemendur m.a. verið að búa til sápustykki. Nemendur hafa verið sérstaklega hrifnir af þessari tilbreytingu og staðið sig vel í þessari vinnu.
Lokaverkefni í ensku
Í apríl og maí unnu nemendur í 10. bekk og hraðferð í 9. bekk svokölluð lokaverkefni í ensku. Nemendur máttu velja á milli þess að taka viðtöl, gera heimildarmynd, hlaðvarp eða barnabók. Mörg skemmtileg verkefni urðu til úr þessu.
Nokkrir nemendur leituðu síðan út í bæ og tóku viðtal við ýmsa þekkta einstaklinga þ.á.m. Aldísi Amah Hamilton, Bríet, Gunnar Helgason, Loga Geirs, Pétur Jóhann, Vilhelm Neto og fleiri.
Ingi og Magnús Grétar tóku viðtal við Gylfa Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóra yfir móttöku Úkraínumanna. Þeir áttu mjög áhugavert samtal við Gylfa um móttöku flóttafólks á Íslandi. Drengirnir höfðu einnig samband við Kids Coolshop og fengu leikföng fyrir börn sem eru að koma frá Úkraínu. Þessi leikföng afhentu þeir Gylfa og hann tók við þeim með bros á vör.
Stelpur og tækni
Verkefnið Stelpur og tækni er alþjóðlegt verkefni, haldið víða um Evropu í apríl á hverju ári og er styrkt af IUT (International Telecommunicationn Union). Háskólinn í Reykjavík heldur utan um verkefnið á Íslandi. Í ár var dagurinn haldinn þann 19 maí. Markmið verkefnisins er að hvetja konur til náms í tæknigreinum, vekja áhuga þeirra á ýmsum möguleikum í tækninámi og störfum, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækniiðnaðinn. Að verkefninu stendur Háskólinn í Reykjavík ásamt Ský og Samtökum iðnaðarins.
Stelpum í 9.bekk grunnskóla alls staðar af landinu er boðið að taka þátt. Það var því stór og flottur hópur sem mætti þennan dag. Víðistaðskóli er virkur þátttakandi í þessu verkefni enda mættu nánast allar stelpur úr 9. bekk skólans. Rúta sótti hópinn og keyrði sem leið lá í HR. Þar var tekið á móti okkur af stelpum sem eru í tækninámi í HR, sumar rétt að byrja sinn námsferil, aðrar að ljúka sínu námi þar. Vinnusmiðjur eru haldnar í HR í umsjá /sys/tur, félags kvenna í tölvunarfræði við HR og kennara tölvunarfræðideildar og tækni- og verkfræðideildar. Viðfangsefnin eru af ólíkum toga, til dæmis kynnast þær forritun og gerð vefsíðu með tungumálum vefhönnunar, HTML og CSS, uppbyggingu tölvuleikja, þrívíddarprentun líffæra og brotaþoli beina.
Eftir að vinnustofunum lýkur, var boðið uppá samlokur og safa. Að nestistíma loknum voru tæknifyrirtæki heimsótt þar sem gefin er innsýn í starfsemina og þau tækifæri sem stelpum bjóðast á vinnumarkaði að loknu tækninámi. Konur sem starfa hjá fyrirtækjunum deila reynslu sinni.
Strákar og hjúkrun
Þann 30.maí fengu strákar í 9.bekk kynningu á störfum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða þegar karlkyns hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar komu í heimsókn. Verkefnið á fyrirmynd sína í alþjóðlega átakinu Stelpur og tækni sem Háskólinn í Reykjavík hefur staðið fyrir undanfarin ár ásamt fleirum. Árangur átaksins er eftirtektarverður þar sem konum í tölvunarfræði í HR fjölgaði t.d. úr 11% í 28% árið 2017.
Markmið verkefnisins er að vekja áhuga stráka á hjúkrunarstörfum, breyta staðalímyndum og fjölga körlum sem leggja fyrir sig hjúkrunarstörf, þannig að árið 2030 séu karlmenn a.m.k. 20% þeirra sem hefja nám í hjúkrunarfræði og á sjúkraliðabrautum. Staðalímyndir eru fyrirfram ákveðnar hugmyndir um útlit eða eiginleika fólks. Þannig geta staðalímyndir haft áhrif á það hvernig strákar og stelpur hegða sér og hvaða störf þau telji við sitt hæfi.
Kynningin fór þannig fram að strákarnir fengu upplýsingar um störfin en fjölbreytileiki fjölbreytileiki hjúkrunarstarfsins var líka sýndur á skemmtilegan hátt í vinnusmiðjum. Strákarnir fengu t.d.að spreyta sig á endurlífgun, flókinni aðhlynningu, losun aðskotahluts úr öndunarvegi á dúkku, skipta um umbúðir á gervisárum, æfa sig í að sprauta í gervihandlegg og fleira.
Kynningin heppnaðist einstaklega vel og voru strákarnir mjög virkir og áhugasamir. Við getum því verið bjartsýn á að einhverjir úr þeirra hópi leggi þetta fyrir sig í framtíðinni.
Svipmyndir úr skólastarfinu
Árshátíð nemenda Víðistaðaskóla
1. bekkur vann í vetur með ljós, skugga og form
2. bekkur á ferð og flugi
Svipmyndir frá íþróttadeginum á yngsta stigi
Ritstjórn
Anna Kristín Guðmundsdóttir
Birkir Már Viðarsson
Birna Dís Bjarnadóttir
Guðrún Björg Halldórsdóttir
Hrönn Bergþórsdóttir
Sigrún Erna Geirsdóttir
Valgerður Júlíusdóttir
Viktor Birgisson