HÚSBRÉFIÐ
15. ÁRG., 9. TBL
DAGSKRÁ 4. MARS. - 8. MARS
MÁNUDAGUR 4. MARS
Bolludagur
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS
Örfundur stuðningsfulltrúa í Hs kl. 8:00 í stofu 9
Þróunarfundur
Sprengidagur
Handavinnuhittingur í Bs. 20 - 22
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS
Kennarafundur í Bs.
Öskudagur - fjör á miðstigi
FIMMTUDAGUR 7. MARS
Stjórnendafundur í Bs. 14:00
Upplestrarkeppni 7. bekkjar í Tónlistaskólanum.
FÖSTUDAGUR 8. MARS
Tilkynningar !!
- Prófadagar í unglingadeild 11.-14. mars.
- Samræmd próf í 9. bekk 11., 12. og 13. mars.
- 12. mars - fagfundur verkgreinakennara/íþróttakennara.
- 19. mars Menntabúðir í Visku.
- Munum að vera ekki að ganga um ganga skólans með opna kaffibolla með heitum drykkjum þegar börnin eru í skólanum. Það skapar hættu ! Lokuð kaffimál eru í lagi.
- Sleppum símanum þegar við erum að sinna nemendum.
- Yndislestur fyrst á morgnana - allir að lesa, líka kennarar og stuðningsfulltrúar.
- Minnum umsjónarkennara að senda stjórnendum samantekt frá foreldraviðtölunum.
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara Vinnustundina vikulega. Gott að gera áður en farið er í helgarfrí.
- Nú þurfa kennarar í Bs. að skrá tíma í stofu 15.
Afmælisbörn
Óli Lár. 4. mars
Súsanna Georgsdóttir 4. mars
Ásta Björk Guðnadóttir 5. mars
María Sigurbjörnsdóttir 5. mars
Alda Gunnarsdóttir 6. mars
Guðrún Snæbjörnsdóttir 6. mars
Margrét Jóhannsdóttir 6. mars
Harpa Hauksdóttir 11. mars
Ingunn Arnórsdóttir 11. mars
Spakmæli vikunnar
“Enginn einn er klárari en allur hópurinn"
- Ken Blanchard
Hrós vikunnar
GRV fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.
Niðurstaða könnunar
72 hafa tekið þátt í könnuninni varðandi Húsbréfið.
Niðurstöður eru:
Það lesa allir húsbréfið, 50% rafrænt, 45,8 bæði og 4,2% útprentað.
Það vilja allir hafa dagskrá vikunnar og tilkynningar. Allir nema tveir vilja hafa áhugaverð atriði.
50 aðilar vilja hafa afmælisdaga, þrír vilja það ekki og 13 er alveg sama.
51 aðili vill hafa myndir úr starfinu, tveir vilja það ekki, 11 er alveg sama.
54 vilja hafa áhugaverða tengla, sex vilja það ekki og sex er alveg sama.
37 vilja hafa uppskrift vikunnar, sjö vilja það ekki og 20 er alveg sama.
57 vilja hafa hrós vikunnar, þrír vilja það ekki og sex er alveg sama.
47 vilja hafa þrif á skólalóðinni, fimm vilja það ekki og 13 er alveg sama.
Annað sem kom fram:
Fræðsluefni varðandi geðrækt, heilbrigði og heilsueflingu.
Komi út á miðvikudögum.
Komi út á fimmtudögum.
Hafa áhugaverð atriði næstu viku ekki vikur.
Kynna ákvarðanir og niðurstöður frá kennarafundum og öðrum fundum betur.
Tilkynna handavinnuhittinginn sem er alltaf annan hvern þriðjudag frá 20-22 í handavinnustofunni í BS - allir velkomnir.
Bæta við stuttum myndböndum úr skólastarfinu.
Takk fyrir að vera ekki sama um hvað fólki finnst.
Ánægð með Húsbréfið.
Svör stjórnenda við öðru sem kom fram:
Við munum reyna að verða við óskum ykkar eftir bestu getu og bendum ykkur á að ykkur er ávallt velkomið að koma með ábendingar um það sem betur má fara.
Stjórnendafundir eru eftir hádegi á fimmtudögum. Þar förum við meðal annars yfir það sem fram hefur komið á fundum í vikunni og ákveðum hvort/hvað þarf að koma fram í Húsbréfinu fyrir næstu viku.