HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 17. TBL
DAGSKRÁ 30. janúar - 3. febrúar
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR
Foreldrafundir í Hs frá kl. 13:00 í fundarherbergi - erlendir nem.
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR
Foreldrafundir í Hs frá kl. 13:00 í fundarherbergi - erlendir nem.
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR
Lífshlaupið hefst - stutt kynning á verkefninu og dregið í lið
Fagfundur - stærðfræði
Deildarfundir - undirbúningur fyrir smiðjudaga. (8-10. bekkur)
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR
Stjórnendafundur í Bs kl. 15:00
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR
Dagur stærðfræðinnar
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Dagur stærðfræðinnar föstudaginn 3. febrúar. Þemað í ár verður Pokemon
- Allir lesa - landsleikur í lestri hefst 27. janúar og stendur til 19. febrúar. Leikurinn er fyrir allla landsmenn, allir geta myndað lið. Keppnin er ekki bara liðakeppni því stóra keppnin er á milli sveitafélaga.
- Lestrarátak Ævars vísindamanns hófst 1. janúar frekari upplýsingar má finna á bókasöfnum skólans eða á http://www.visindamadur.com/lestraratak
- Þorrablót hjá 1. - 5. bekk verður mánudaginn 13. febrúar.
- Kynning frá umboðsmanni barna fyrir 6. -8. bekk. 6. febrúar:
- Könnunin Ungt fólk: lögð fyrir 5. -10. bekk í vikunni 7. -9. feb.
- Smiðjudagar á unglingastigi 14.- 16. febrúar, árshátíð 16. feb.
Tilkynningar !!
- Lífshlaupið hefst 1. febrúar, búið er að skrá alla bekki skólans til leiks, upplýsingar verða sendar á kennara og foreldra.
- Hvetjum starfsfólk skólans til að vera með í Lífshlaupinu, skráningarblöð á kaffistofum skólans. Umsjónarmenn eru Anna Lilja í Hs og Anna Rós í Bs
- Ýmsir viðburðir verða á dagskrá fyrir starfsfólk á meðan Lífshlaupið stendur yfir, dgskrá verður send út í næstu viku.
- Lesið við sama borð - hófst aftur þriðjudaginn 17. janúar. Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00. Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð.
- Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hug á að koma til Eyja með tónleika fimmtudaginn 2. mars gangi allt upp. Sýna á nemendum í 1. - 4. bekk Maxímús Músíkús.
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
Uppskrift vikunnar - Tagliatelle alla carbonara (fyrir 3-4)
Tagliatelle alla carbonara (fyrir 3-4)
- 400 grömm tagliatelle eða spaghetti
- 1 egg og 4 eggjarauður
- 100 gr rifinn parmesan ostur
- 1 dl rjómi
- Beikon – 1 bréf, ca. 150-200gr, skorið í litla bita
- 1/4 tsk múskat
- Sjávarsalt og nýmalaður pipar (ég nota hvítan pipar í þennan rétt)
- Handfylli fersk steinselja, söxuð
Aðferð: Byrjið á að sjóða vatn í stórum potti og setjið pastað útí. Sjóðið samkvæmt leiðbeiningum þar til pastað er al dente. Á meðan pastað sýður, hitið pönnu og steikið beikonið þar til það er stökkt. Hrærið eggið, eggjarauðurnar, rjómann, parmesan (skiljið smá eftir til að strá yfir í lokin), múskat og pipar saman í skál. Þegar pastað er tilbúið, takið þá einn bolla frá af pastavatninu og hellið vatninu svo af pastanu.
Slökkvið undir beikonpönnunni, hellið pastanu yfir beikonið og því næst eggjablöndunni. Passið að taka pönnuna af hitanum og blandið öllu vel saman. Þynnið sósuna með pastavatninu eftir smekk. Kryddið með salti ef þarf, nýmöluðum pipar og stráið yfir steinselju og meiri parmesan osti.
Hrós vikunnar fá
Spakmæli vikunnar
Anthony J. D´Angelo.
Vissir þú um mat og drykk #4
Vissir þú um mat og drykk #5
Vissir þú um mat og drykk #6
Íslenska sem annað tungumál - facebook
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.