HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 34. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 30. MAÍ - 10. JÚNÍ
MÁNUDAGUR 30. MAí
Nemendaverndarráðsfundur í Bs kl. 8:30
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ
Fjölgreindaleikar hjá 1. - 7. bekk 8:00 - 12:30
Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk
Kennarafundur allir í HS 13:30
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ
Fjölgreindaleikar hjá 1. - 7. bekk
Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk
Kynning og sýning á lokaverkefnum í 10. bekk kl. 17:00 í sal Bs
Stjórnendafundur 14:30
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ
Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk
10. bekkur í fríi þennan dag.
Verðlaunahátíð fyrir Fjölgreindaleika í Íþróttahúsinu kl. 11:30
MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ
Starfsdagur - frágangur og tiltekt - muna eftir K-drifinu.
Útskrift hjá 10. bekk í Höllinni kl. 17:30
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ
Skólaslit byrja kl. 8:00 í Hamarsskóla
Starfsfólki boðið í hádegismat á Slippinn kl. 12:30
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ
Samstarfsdagur - frágangur og tiltekt
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ
Samstarfsdagur í Alþýðuhúsinu - fyrirlestrar.
FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ
Handavinnuhópurinn fer í fræðslu og skemmtiferð upp á Ísland.
Stuðningsfulltrúar og skólaliðar á námskeiði ?
Þrif á skólalóðum
6. og 7. bekkur fegra Barnaskólalóðina
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Lokaverkefni í 10. bekk - sýning í Barnaskólanum 2. júní kl. 17:00
- Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk 1. - 3. júní
- Fjölgreindaleikar á mið- og yngstastigi, stöðvar 1 - 16 í Hamarsskóla og Íþróttahúsi stöðvar 17 - 32 þann 1. júní. Þann 2. júní snýst þetta við, stöðvar 17 - 32 í Hamarsskóla og 1 - 16 í Íþróttahúsi.
- 3. júní er bekkjadagur hjá 1. -7. bekk, umsjónarkennari sér um sinn bekk. Í lok dagsins eða kl. 11:30, verður verður verðlaunaafhending fyrir Fjölgreindaleikana í íþróttahúsinu.
- Örnefnagöngur og umhverfisstígar eru á heimasíðu GRV: http://grv.is/is/page/natturuskoli
- Skólaslit hjá 10.bekk í Höllinni 6. júní kl.17:30- allt starfsfólk velkomið.
- Skólaslit 1. -7. bekkur þriðjudaginn 7. júní
Tilkynningar !!
Umsjónarkennarar! Munið að prenta út lokamat og verkgreinamatið, afrit á að fara í bekkjamöppur á skrifstofu.
Starfsfólki boðið í hádegismat á Slippinn kl. 12:30 þann 7. júní. Vinsamlegast verið búin að velja ykkur hvað þið viljið borða hjá ritara Hamarsskóla.
Allt um nýtt námsmat á þessari slóð: http://vefir.nams.is/namsmat/index.htm
Allir starfsmenn þurfa að sækja um sumarorlof inná Vinnustundinni.
Útivakt í Hs - vinsamlegast klæðist vestum á útivöktum í frímó.
- Skólinn er með facbooksíðu - endilega látið foreldra vita af þeirri síðu, slóðin er: https://www.facebook.com/grunnskolivestmannaeyja/?fref=ts
Hrós vikunnar fá
Limra vikunnar
Það er margt, sem er líkt með málfræði
og meginstefnum í sálfræði.
Það veit enginn hvað mál er
og enginn hvað sál er.
Svo útkoman verður tálfræði.
Heimir Pálsson
Spakmæli vikunnar
Robert John Meehan
Uppskrift vikunnar - Bananabrauðið hennar Unnar Katrínar
1 bolli spelt
1 bolli haframjöl
2 tsk vínsteinsduft
1 tsk matarsódi
1/4 tsk salt, 1 og hálf tsk kanill
2-3 stappaðir bananar, 1 egg
8 döðlur soðnar og maukaðar
1/2 til 1 dl mjólk
Allt sett saman í skál og hrært.
Bakað í 40 mín við 180-200° hita, ekki blástur
Ég set ca eina og hálfa uppskrift í formkökumót.