Stiklur
347 - 18
Þriðjudaginn
sautjánda desember klukkan 14:36 að íslenskum tíma, sem verður klukkutíma síðar á næsta ári...eða er það fyrr...eða bara ...allavega þá er starfsmannafundur á þriðjudaginn kemur.
The final countdown
Næsta vika
er líka síðasta vika haustannar. Hefðbundin vika fjóra fyrstu dagana og svo er kominn enn einn fössarinn. Fyrir þá sem til þekkja þá verður litlu- og bekkjarjóladagurinn með tiltölulega hefðbundnu sniði...
Dansað í kringum jólatréð
Frímínútur
Bekkjarjól
Ekki matur
Skólalok nemenda
Hátíðarkaffi starfsfólks
Jólafrí
Nýtt ár
hefst síðan væntanlega fyrsta janúar. Þá fáið þið náðarsamlegast frí og einnig annan janúar...þriðji er hinsvegar fyrsti starfsdagur ársins 2020. Að ýmsu er að hyggja þann dag, t.d. undirbúa mánudaginn...og reyndar komandi önn. Janúar er samskiptadagsmánuður svo tilvalið er fyrir kennara og stuðningsfulltrúa bekkja að hefja undirbúning samskiptadagsins. Samskiptadagur janúarmánaðar er unnin með frammistöðumati Mentors, en þá færa bæði nemendur og kennarar inn mat á stöðunni sem síðan er umræðugrundvöllur viðtalsins. Ég vil einnig minna á hæfnikortið sem á alltaf að vera lifandi (up to date) og þar eiga foreldrar og nemendur einnig að geta séð stöðu nemendanna.
Muna að opna fyrir viðtöl 20. janúar og loka 27. janúar.
Heimsóknir
Það hefur verið gaman að fylgjast með nemendum okkar á faraldsfæti undanfarið...aðventustund 3. og 8. bekkjar á Breiðabliki tókst frábærlega, krakkarnir í 5. bekk skelltu sér í heimsókn á leikskólann til að hitta tilvonandi vinabekk. fyrstu bekkingar á bæjarrölti að drekka kakó o.mfl. Talandi um vinabekki þá hafa margir verið duglegir að hittast undanfarið, t.d. hjálpuðu 7. bekkingar 2. bekk við Kóðun til góðs við góðan orðstír. Barnabókahöfundar framtíðarinnar í 10. bekk lásu úr verkum sínum fyrir 1. bekk. #mikiðfjör #mikiðgrín #mjöggaman
Skemmtinefndin
er líka búin að vera á fleygiferð í desember. Kakó, snakk, jólapakkaleikur...baranefnaþað...og skemmtinefndin framkvæmir... #takkfyrirokkur #égersamtekkibúinnaðvinnaneitt
Skólaliðar, Dæja og
fleiri hafa passað upp á að jólaskrautið gleymist ekki... :)
#éggætinæstumgleymtjólunumefekkertskrautfæriupp