Stiklur
Gleðilegt nýtt ár
Á þriðjudaginn kemur
verður starfsmannafundur. Á fundinn mætir Ásta Sigríður mannauðsstjóri Fjarðbyggðar ásamt fríðu föruneyti....ffF...Farið verður yfir niðurstöður vinnustaðagreiningarinnar sem lögð var fyrir í desember.
Meira af
vinnustaðagreiningunni. Við stjórnendur fengum líka mat...reyndar ekki Stella greyið... :) bætum úr því næst...Ásta fer ekki yfir það en ég mun fara yfir með ykkur síðar matið hjá mér. Stefnt er að því að Vinnustaðagreiningin verði árviss, svarhlutfall okkar núna var 70% og þakka ég þeim sem svöruðu fyrir...svo gerum við betur næst...alltaf má gott bæta :)
Frábærar fréttir
Í vikunni hófst sundkennsla að nýju hjá okkur. Það er að sjálfsögðu okkar eina sanna Ragna Dögg sem sér um kennsluna. Kennt verður í törnum...sjötti og sjöundi bekkur ríða á vaðið núna í janúar, því næst taka áttundi og níundi bekkur törn, í mars verða það fjórðu og fimmtu bekkingar sem svamla um í lauginni og eftir páskafrí annar og þriðji bekkur. Óvíst er með fyrsta bekk og sund í maí en vonandi tekst okkur að finna lausn á því.
Því miður
þá er Fanney að fara í leyfi frá okkur...vonandi tímabundið...en hún fékk aðra vinnu hjá Fjarðbyggð, við óskum henni að sjálfsögðu velfarnaðar þar en vonumst samt eftir að sjá hana síðar. (ég þarf reyndar að taka frænku mína og yfirmann Fanneyjar á teppið fyrir að taka hana frá okkur ;) )
En sem betur
fer fengum við annan harðjaxl í vinnu. eins og þið hafið væntanlega orðið vör er Lilja Tekla Jóhannsdóttir byrjuð að vinna hjá okkur. Bjóðum við hana hjartanlega velkomna um borð til okkar.
Tölvuskjáir, stólar og borð
Jólasveinninn gaf okkur nokkra tölvuskjái, ætlunin er að sjálfsögðu að bæta vinnuaðstöðu ykkar við vinnuborðin. Mér sýnist reyndar að æg hafi ekki beðið hann um nógu marga skjái þannig að ef ykkur vantar þá endilega komið að máli við mig og við bætum úr því. Einnig komu nokkrir nýir starfsmannastólar í kennslustofur og hringborð. ég reikna með mað skipta út borðunum í vísindastofunni okkar fyrir hringvorð og einnig úr námsverinu á unglingastigi, þá eru samt nokkur borð laus og ef ykkur líst vel á má athuga með að skella þeim inn til einhvers...
Erasmus
Eins og þið munið þá erum við þátttakendur í tveimur Erasmus verkefnum. Það vill svo til að í síðustu vikunni fyrir páskafrí, 30. mars - 3. apríl fara hópar erlendis í báðum verkefnunum. Sjöunda bekkjar hópurinn til Finnlands og hinn til Eistlands. ef þið hafið áhuga á að vera með í verkefnunum og komast í ferð er ykkur velkomið að koma til mín og láta vita... :)
Snjalltækjareglurnar... viðhorfskönnun
Fyrir tæpu ári síðan eða 1. febrúar 2019 voru settar nýjar reglur um um notkun snjalltækja í grunnskólum Fjarðabyggðar. Um leið og þær voru samþykktar var ákveðið að endurskoða þær að ári liðnu. Sem lið í endurskoðuninni ákvað fræðslunefnd að útbúa þrjár stuttar viðhorfskannanir, eina fyrir nemendur í 6. – 10. bekk í grunnskólum Fjarðabyggðar, aðra fyrir starfsmenn grunnskólanna í Fjarðabyggð og þá þriðju fyrir foreldra nemenda í 6. – 10. bekk, og kanna þannig hug fyrrnefndra aðila til reglnanna.
Það myndi hjálpa mikið ef þú gæfir þér tíma til að svara þessari stuttu könnun, með því að smella á tengilinn hér að neðan... :)