Nesskólafréttir
Í stað skólaslitaræðu
Skólalok ´19 - ´20
Breyttar áherslur
Þær breyttu áherslur í skólastarfi sem birtust í nýrri aðalnámskrá frá árinu 2013 gerðu m.a. þær kröfur á skóla að endurskoða bæði kennsluaðferðir og námsmat. Við í Nesskóla höfum unnið að því síðustu ár að tileinka okkur þessa nýju hugsun sem birtist í námskránni. Meðal áhersluþátta er aukin áhersla á þema- og teymisvinnu þvert á árganga og/eða námshópa. Þessa hefur gætt í skólastarfi okkar en mun vonandi verða meira áberandi á komandi árum. Markmið breyttra kennsluhátta eru m.a. að:
- Efla samvinnu kennara.
- Auka við fjölbreytta kennsluhætti.
- Fjölga tækifærum til samþættingar og þemaverkefna.
- Efla hæfnimiðað nám.
- Aukin einstaklingsmiðun.
- Aukin samvinna nemenda.
- Aukin félagsfærni nemenda.
- Samábyrgð kennara á námi nemenda.
- Vænleg starfsskilyrði og aukin fagmennska.
- Gagnrýni og endurmat.
- Samræmdara námsmat.
Yngsta stig
Á yngsta stigi verður þessara breytinga hvað mest vart. Töluverð breyting verður á kennarahópi yngsta stigs sem og breytt skipulag.
Í fyrsta bekk munu á komandi hausti innritast 26 nýir nemendur. Í stað þessa að festa þau strax í tvo ákveðna kennslu hópa þá munu þau verða þau í einum hóp en með tvo umsjónarkennara sem síðan vinna saman með hópinn, kynnast honum og skipta eftir því hvað þeir telja nemendunum fyrir bestu. Umsjónarkennarar hópsins verða Fanney Halldóra Kristjánsdóttir og Guðrún Jónína Sveinsdóttir.
Í öðrum og þriðja bekk verða samtals 50 nemendur eins og staðan er í dag. Það nægir ekki til að skipta hópnum í fernt og að okkar mati yrði annar árgangurinn of stór fyrir einn kennsluhóp. Því höfum við ákveðið að blanda árgöngunum saman og skipta í þrjá svipað stóra kennsluhópa. Umsjónarkennarar þessara þriggja hópa verða Klara Sigríður Sveinsdóttir, Unnur Ása Atladóttir og Sigurlaug Björk Birgisdóttir.
Hvað varðar fjórða bekk þá eru minnstu breytingarnar þar, Guðrún Smáradóttir mun áfram vera umsjónarkennari bekkjarins.
Stuðningsfulltrúar munu síðan vera til aðstoðar í öllum námshópum yngsta stigs en ekki ljóst á þessu stigi hvernig skipulagi þeirra verður háttað. Í vetur voru Björn Ágúst Ólsen Sigurðsson, Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir, Elín Lára Árnþórsdóttir og Krisrún Thanyathon í stuðningsteymi fyrsta og annars bekkjar, Bryndís Helga Ólafsdóttir bættist svo við í lok skólaársins. Í þriðja bekk bekk var Soffía Anna Helga Herbertsdóttir stuðningsfulltrúi. Öll halda þau áfram nema Kristrún en hlutverk gætu breyst.
Miðstig
Á miðstigi verða einnig breytingar og skal þar fyrst taka til tilvonandi fimmta bekk. Í vetur var þessum 24 nemenda árgangi skipt í tvennt. Næsta vetur er útlit fyrir að nemendurnir verði einungis 23 og það nægir ekki til að tvískipta hópnum. Höskuldur Björgúlfsson og Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir hafa verið umsjónarkennara s.l. tvö ár. Höskuldur mun halda áfram með hópinn og honum til aðstoðar verða þau Óskar Ágúst Þorsteinsson og Jenný Sigrún Jörgensen.
Sjötti bekkur mun einnig finna fyrir ákveðnum breytingum í anda teymisvinnu. Núverandi bekkjarskipting verður lögð af en þess í stað munu kennarar hópsins skipta hópnum upp eftir því sem þeim finnst henta nemendum best hverju sinni, eftir námsgreinum. Umsjónarkennarar hópsins verða þær Úrsúla Manda Ármannsdóttir og Helga Ósk Snædal Þórormsdóttir, Sigríður Margrét Guðjónsdóttir hefur verið stuðningsfulltrúi hópsins og mun verða það áfram. Fleiri kennarar og starfsmenn munu síðan koma að hópnum en það er ekki alveg frágengið á þessu augnabliki.
Sjöundi bekkur er nú að hefja sitt þriðja ár sem einn hópur. Viktoría Gilsdóttir mun áfram verða umsjónarkennari þeirra og Halldóra Guðrún Hákonardóttir stuðningsfulltrúi. Því miður er Svala Skúladóttir að færa sig um set og verður ekki með okkur næsta vetur.
Unglingastig
Umsjónarkennarateymi unglingstigs verður áfram það sama og undanfarin ár; Sigríður Helga Ármannsdóttir, Sigrún Júlía Geirsdóttir og Guðrún Ásgeirsdóttir. Sigga Helga skilar nú af sér tíunda bekk og tekur við komandi áttundu bekkingum. Sunna Björg Guðnadóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Grímur Magnússon hafa verið nemendum unglingastigs til aðstoðar á ýmsa vegu. Sunna og Kristín verða áfram en eins og áður hefur komið fram kveðu Grímur okkur eftir tæplega fimm áratuga starf í öllum skólunum okkar...nema leikskólanum... :)
Vinasel næsta haust
Mannabreytingar
Eins og sjá má af ofan töldu þá er töluvert um breytingar hjá okkur milli ára. Grímur Magnússon kveður nú kennslustarfið eftir hátt í fimm áratuga starf á þeim vettvangi, geri aðrir betur! Berglind Guðmundsdóttir heldur á vit nýrra ævintýra en hún hefur verið umsjónarkennari hér hjá okkur í um áratug. Sama má segja um Rögnu Dögg Ólafsdóttur sem hefur kennt íþróttir og sund hjá okkur í næstum 15 ár. Hafrún Ósk Pálsdóttir tekst á við ný ævintýri líkt og þær Berglind og Ragna. Þá munu umsjónarkennararnir Jóhann Tryggvason og Brynja Björg Vilhjálmsdóttir ekki vera í þeim hlutverkum næsta skólaár.
Í vetur nutum við krafta tveggja tiltölulega nýútskrifaðra nemenda okkar, allavega fannst okkur stutt síðan þær voru hér, þeirra Amelíu Rúnar Jónsdóttur og Kristrúnar Thanyathon. Þær verða því miður ekki með okkur næsta skólaár en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Svala Skúladóttir hefur í vetur verið 6. bekk innan handar bæði sem aðstoðarkennari og leiðbeinandi. Ný ævintýri bíða hennar en því miður ekki hjá okkur.
Öllu þessu frábæra fólki þökkum við kærlega fyrir störf þeirra við skólann.