Stiklur
...one down two to go...
Frábær árshátíð
Hápunktur vikunnar sem er að líða var að sjálfsögðu árshátíð yngsta stigs. Frábær skemmtun og margir stórsigrar unnir á sviðinu af krökkunum. Góugleði unglinganna verður síðan 27. mars og árshátíð miðstigs 11. apríl.
Níundu bekkingar stóðu einnig í ströngu í vikunni, þrjú samræmd próf að baki...kannski þau síðustu í níunda bekk!
Í gær var síðan Þóroddur í heimsókn og tók nemendur úr öllum bekkjum í spjall um "Draumaskólann". Starfsmannahluti draumaskólans fer síðan fram n.k. fimmtudag klukkan 14:30.
Reyndar má segja að næsta vika verði viðburðarík því á miðvikudeginum fáum við fyrirlestur sem nánar er getið hér að neðan. Vinaselið okkar á erfitt með að komast á þessum tíma þannig að ef einhverjir ætla ekki á fyrirlesturinn og geta hjálpað til við að leysa af á Vinaseli ...þá endilega senda mér línu...:)
Á mánudaginn og þriðjudaginn verð ég á námskeiði...sjáumst á miðvikudagsmorgun.
Skólapúlsinn
Skólapúlsinn er mikilvægt tæki fyrir skólastjórnendur við mat á skólastarfi. Á hverju ári eru nemendur þátttakendur, foreldrar og starfsfólk taka svo könnunina á þriggja ára fresti...þetta þriggja ára fresti er akkúrat núna fyrir starfsfólk. Mjög mikilvægt er að allir svari könnuninni en við fáum ekki niðurstöður nema svarhlutfall nái 80%
Orðarugl útsvars
Skemmtilegur möguleiki til að brjóta upp kennslustundir getur verið að fara í orðarugl. Hér er orðarugl vefur RÚV. Hægt að nota gamla leiki eða búa til nýja.
Event Information
Ég er unik
When?
Wednesday, Mar 20, 2019, 02:00 PM
Where?
Nesskóli, Nesgata, Neskaupstadur, Iceland
Erasmus +
Í næstu viku verða trillurnar þrjár...Helga, Klara og Þórfríður á Erasmus+ námskeiði, við óskum þeim að sjálfsögðu góðrar ferðar sem og skemmtunar. Við njótum svo vonandi góðs af afurðum námskeiðsins í apríl.
Event Information
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti - Alþjóðlegur dagur gegn kynþáttamisrétti
... tökum höndum saman... :)
When?
Thursday, Mar 21, 2019, 10:30 AM
Where?