Samspil 2015
UT-átak Menntamiðju
Upplýsingatækninámskeið fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara:
Átakið stendur yfir frá mars 2015 - janúar 2016. Tryggðu þér pláss strax, skráning og nánari upplýsingar er að finna á www.samspil.menntamidja.is
Fyrirkomulag:
- Útspil - staðbundið 5 klst. námskeið
- Vefnámskeið - 2x í mánuði tengd mánaðarlegu þema. Fyrsta vefnámskeiðið er þegar komið á vef verkefnisins. Næsta verður miðvikudaginn 25. mars kl. 16:15-17:30 og umfjöllunarefnið verður skýjalausnir.
- Kennslumyndskeið - 3x í mánuði, sjálfsnám - einnig tengd mánaðarlegu þema.
- Þátttaka í umræðu á samfélagsmiðlum.
Næstu Útspilsnámskeið verða haldin á eftrifarandi stöðum:
- Reykjanes (Keilir) - 24. mars kl. 14-19
- Akureyri (Brekkuskóli) - 7. apríl kl. 14-19
- Bolungarvík (Grunnskóli Bolungarvíkur) - 10. apríl kl. 14-19
- Egilsstaðir - 16. apríl kl. 13-18
- Borgarnes/Snæfellsnes - 20. apríl kl. 14-19
- Selfoss - 21. apríl kl. 13-18 (ath. breytt staðsetning)
Markmið að þátttakendur:
Kynnist hagnýtum dæmum um notkun upplýsinga- og samskiptatækni
Hafi gagn af námskeiðinu og geti nýtt viðfangsefni þess í eigin kennslu
Geti nýtt sér upplýsingatækni og samfélagsmiðla til að sinna starfsþróun
Séu virkir í starfssamfélögum á netinu og noti þau til að deila reynslu og þekkingu
Geri sér grein fyrir áhrifum tækniþróunar og tæknibreytinga á nám og kennslu
Fái innblástur til frekari þróunar efnis, aðferða og samstarfs
Mynd tekin á Útspilsnámskeiði sem haldið var 16. mars í Reykjavík
Mynd tekin á Útspilsnámskeiði sem haldið var 16. mars í Reykjavík
Mynd tekin á Útspilsnámskeiði sem haldið var 16. mars í Reykjavík
Um 250 kennarar eru skráðir þátttakendur á Samspili 2015 hér fyrir neðan eru nokkur ummæli um Útspilsnámskeiðið
- Takk sömuleiðis fyrir aldeilis frábæran dag - hlakka til áframhaldsins.
- Takk sömuleiðis þetta var mjög skemmtilegt.
- Lærði fullt, takk fyrir mig.
- Það var mjög lærdómsríkt og gaman í dag. Lærði alveg fullt nýtt.
- Takk fyrir mig skemmtilegt og fróðlegt.
- Takk sömuleiðis Bjarndís og þið allar, þetta var mjög skemmtilegt.
- Takk kærlega fyrir mig, þetta var mjög skemmtilegt og lærdómsríkt. Hlakka til að læra meira.
- Takk sömuleiðis. Þetta var skemmtilegt og lærdómsríkt.
- Fanta gott.
- Takk sömuleiðis.
- Takk sömuleiðis frábær dagur og framhaldið lofar góðu
- Frábært að vera með ykkur. Er þegar búin að senda kennarahópnum mínum upplýsingar um tvennt af því skemmtilega sem við lærðum.
- Frábært hjá ykkur sem stóðuð að þessu.
- Frábær dagur með ykkur, hlakka til að kynnast þessu öllu betur.
- Lofar góðu og verður gagnlegt! Gaman að vera á fyrirlestri/námskeiði sem gerandi og fá að prófa!!!
- Skemmtilegur og gagnlegur dagur með ykkur. Takk fyrir.
- Takk sömuleiðis.
- Gagnlegur og skemmtilegur dagur. Takk fyrir mig.
Samspil 2015