Vikupistillinn
Tímabilið 3. - 9. desember 2018
Heilræði vikunnar
"Hamingjan er heimafengin
og verður ekki tínd í garði annarra."
D. Jerrold.
Punktar
- Öðruvísi jóladagatal: Mánudaginn 3. desember hefst það. Fyrsta landið sem við sjáum er Kolumbía.
- Jólahvalamiði: Nú er komið að þvi! Kennarar fá afhenda jólahvalamiða sem á að gefa í desembermánuði. Hver miði gildir 2 stig.
Sveinn UT stjóri mun leysa tæknimálin á meðan Úlfhildur er í veikindaleyfi.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu barnsin
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 3. desember
- 7. SHS - fer í kirkjuheimsókn í Fríkirkjuna.
- Verið - miðdeild - Ævintýraleikur Versins.
- Verið - elsta deild - Skotboltamót.
Þriðjudagur 4. desember
- Samvera hjá miðdeild í umsjón 7. SHS.
- Heimanám Rauða krossins er í fríi og verður því ekki.
- Kennarafundur Kl. 15:00 - 15:50 í fyrirlestarsalnum.
Miðvikudagur 5. desember
- Samvera hjá yngstu deild í umsjón 3. IVJ.
- Leikstjóranámskeið kl. 8:20 - 9:40 í umsjón íþróttakennara. Upplýsingar um þátttakendur kom til nemenda frá Huldu Sólveigu.
- Leikstjóranámskeið kl. 10:00 - 11:20 í umsjón íþróttakennara. Upplýsingar um þátttakendur koma til nemenda frá Huldu Sólveigu.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:15.
- Foreldrafélagið er með piparkökumálun frá kl. 16:00 - 18:00.
- Jólabingó Versins og nemendaráðs kl. 19:30 - 21:30.
Föstudagur 7. desember
- Jólagleði starfsfólks á Krydd mæting kl. 19:00.
- Verið - miðdeild - feluleikur.
- Verið - elsta deild - jólamynd.
Fréttir frá Bjargi
Hana Lagain Hneidi Fares, hún er frá Sýrlandi og fer í 9. MS og Shaimaa Rasul Raoul frá Kúrdistan og fer í 5. BG.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Starfsmannamál
Kjartan Ingi Jónsson kemur til með að leysa Svandísi okkar af á meðan hún er í veikindaleyfi. Kjartan Ingi er á síðasta ári í að ljúka M.Ed námi til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri. Hann var að klára æfingakennslu í Stóru-Vogaskóla og stefnir að ljúka náminu í vor. Við bjóðum Kjartan Inga velkomin til starfa og tökum vel á móti honum.
Samvera hjá 4. EÞ
Það var flott samvera hjá 4. EÞ á miðvikudagsmorgun. Leikrit, upplestur, karatesýning og dans.
Samvera hjá 4. EÞ
Nemendur í 4. EÞ sýndu dans undir styrkri stjórn Mörtu.
Skólinn skreyttur
Það tók nú ekki langan tíma að skreyta skólann. Það var notalegt að ganga um skólann rétt fyrir kl. 16:00, nokkrar myndir. Desember alveg við hornið.
Tiltekt vikunnar
Við ætlum að biðja nemendur í 1. AUS og Auði umsjónarkennara þeirra að sjá um tiltekt á skólalóðinni þessa vikuna.
Afmælisdagar í desember
Hulda Sólveig þann 6. desember, Marfríður þann 7. desember, Zulaia þann 8. desember, Sigurborg þann 12. desember, Malen þann 14. desember, Páll þann 16. desember, Gunnur þann 20. desember og Alda þann 29. desember. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Sjáið þið stærðfræðina í hluta afmælisdaganna í desember? Gaman að þessu.
Á döfinni
- Miðvikudaginn 12. desember ætlum við að bjóða starfsfólki upp á jólamat frá Skólamat í hádeginu.
- Þann 12. desemer hvetjum við alla bæði starfsfólk og nemendur að koma í ljótum jólapeysum :-)
- Hér má nálgast skipulag á litlu jólunum 2018 hjá öllum árgöngum.
- Hér má nálgast skiptingu starfsfólks á litlu jólunum 2018.
- Hér má nálgast skipulag á 19. desember fyrir kennara elstu deildar.
https://www.youtube.com/watch?v=yXQViqx6GMY&list=PLyn1b86Ad_a6KrXeRMyX2LMSgStSeQUgb
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=Im_octtkUis
https://youtu.be/Nk9Yu9wx3-Q
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200