Föstudagspóstur
9. - 13. mars
Kæru foreldrar og forráðamenn
Þá er föstudagurinn 13. mars genginn í garð og er heldur betur búinn að vera tíðindamikill.
Í ljósi frétta í dag er klárt að næstu vikur eru óráðnar. Þrátt fyrir það höldum við ótrauð áfram. Við hvetjum ykkur að lesa póst frá skólanum sem kom í dag ásamt því að fylgjast með yfir helgina þar sem frekari tíðindi eru væntanleg.
Næstkomandi þriðjudag er stefnt á skíðaferð upp í Hlíðarfjall. Við biðjum ykkur, þau sem við náðum ekki tali af í dag, að senda okkur línu ef þið kjósið að fá lánaðan búnað upp í fjalli, ykkur sjálfsögðu að kostnaðarlausu (Hvernig búnað, hæð og skóstærð).
Við erum á fullu í árshátíðarundirbúningi. Allir hópar eru komnir á fullt í æfingar og hann Magnús okkar stjórnar tónlist og söng eins og herforingi. Þetta árið ætlum við að setja upp Litlu Hryllingsbúðina.
Bestu kveðjur
Unglingastigskennarar