HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 11. TBL
DAGSKRÁ 14. NÓV. - 18. NÓV.
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER
Nemendaverndarráðsfundur í Bs. kl. 9:00
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER
Nemendaverndarráðsfundur í HS 14:00
Fagfundur stærðfræði Hs 14:15
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER
Dagur íslenskrar tungu, söngur á göngum í Hs kl. 8:05
Fagfundur samfélagsfræði Bs - fagfundur stærðfræði í Hs
Fagstjórafundur- allir fagstjórar í Bs kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER
Starfskynning hjá 10. bekk, eru ekki í skólanum þennan dag.
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER
Takk fyrir vikuna og góða helgi :)
Áhugaverð atriði næstu vikur
- 18.- 28. nóv. Lestrarsprettur í HS
Norræn bókasafnavika 14.-20. nóvember. Stóri upplestrardagurinn er mánudaginn 14. nóv., upplestrarstundin fyrir börn er haldin kl. 9:00 að morgni til. Öllum er þó frjálst að laga tímasetningar að eigin þörfum. Sagan sem lesið er úr heitir: Sumarið hans Hermanns.
- 17. nóv. Starfskynning í 10. bekk
- 22. nóv. Örnámskeið í google forms - Guðbjörg
- 24. nóv. Þorgrímur Þráinsson kemur með fyrirlestur fyrir 10.bekk.
- 1. des. Jólaföndurdagur í Hs
- 7. - 9. des. Smiðjudagar í 6. og 7. bekk.
- 9. des. Jólamatur: Í ár verður jólamatur starfsfólks GRV hjá Einsa Kalda. Takið daginn frá.
- 13. des. Jólasundmót hjá 6. og 7. bekk
Tilkynningar !!
- Allir eru hvattir til að koma með eitt hjarta í matsalinn síðasti skiladagur er föstudagurinn 18. nóvember
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
- GRV fékk góða gjöf frá foreldrafélaginu, kubbar sem verða staðsettir í HS. Einnig styrkti foreldrafélagið fyrirlesturinn með Siggu Dögg.
- Nemendaráðsfundir í HS verða framvegis klukkan 14:00 í stað 8:15.
- Fagstjóra vantar í samfélags- og náttúrufræðigreinar í HS
- Lesið við sama borð - Breyttur tími, er núna þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00. Sjálfboðaliðar aðstoða erlenda nemendur skólans við lestur og heimanám. Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð. Þátttaka hefur verið frekar dræm nú í vetur, megum ekki láta þessa aðstoð falla niður.
Afmælisbörn vikunnar
Afmælisbörn vikunnar:
Berglind Þórðardóttir 14. nóvember
Inga Þórarinsdóttir 14. nóvember
Helga Sigrún 15. nóvember
Sigurbjörg Jónsdóttir 18. nóvember
Snæborg Þorsteinsdóttir 18. nóvember
Kristín Sigurðardóttir 19. nóvember
Hrós vikunnar fá
Uppskrift vikunnar - AMERÍSK ostakaka með bláberjum
Uppskrift
- 300 gr Digestive kex
- 150 gr ósaltað smjör
- 1 dl sykur
- 1 dl maizenamjöl
- 2 tsk vanillusykur
- 600 gr Philadephia rjómaostur
- 1 dós sýrður rjómi 10%
- 3 egg
- 1 dl rjómi
- 200 gr hvítt súkkulaði
- 2.5 dl. bláber (má nota frosin ber sem búið er að afþýða)
Hindberjasósa:
- 300 gr hindber (má nota frosin ber sem búið er að afþýða)
- 2-3 msk sykur
Aðferð:
- Ofn stilltur á 175 gráður. Smjör brætt og kex mulið í matvinnsluvél eða mixer og því blandað saman við smjörið. Sett í bökunarform með lausum botni og blöndunni þrýst i í botninn og aðeins upp í hliðar á forminu. Botnin bakaður í 10 mínútur og látin kólna.
- Ofninn lækkaður í 160 gráður. Sykri, maizenamjöli og vanillusykri blandað saman í skál. Sýrðum rjóma og rjómaosti bætt við og þeytt þar til að blandan verður kremkennd. Eggjum bætt við og þeytt vel, en þó ekki of lengi eftir að eggjum hefur verið bætt við. Rjómanum smám saman bætt við og þeytt á meðan. Súkkulaði brætt yfir vatnsbaði og bætt út í. Hellið blöndunni yfir kexbotninn og dreifið báberjunum yfir kökuna.
- Bakið við 160 gráður í 45-55 mínútur, eða þar til að kakan er bökuð að öllu leiti nema bara dálítið blaut í miðjunni. Þá er slökkt á ofninum og henni leyft að standa í ofninum í allavega hálftíma í viðbót. Notið álpappír yfir kökuna ef hún fer að dökkna mikið þegar líður á bökunartímann.
- Fyrir þá sem vilja prófa hindberjasósuna með! Afþýðið 300 gr. af hinberjum, bætið við 2-3 msk. af sykri og hrærið vel saman með gafli eða töfrasprota. Bætið við örlitlu vatni ef sósan er of þykk
Spakmæli vikunnar
Vissir þú um stærðfræði ... 4
Vissir þú um stærðfræði ... 5
Vissir þú um stærðfræði ... 6
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.